Austurglugginn - 22.08.2014, Blaðsíða 9
AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 22. ágúst 9
Sælkerar
vikunnar
Þóroddur Helgason og Hildur
Magnúsdóttir á Reyðarfirði er sæl-
kerar Austurgluggans að þessu sinni.
Þau bjóða upp á apríkósulambalæri,
byggrétt og rabarbara-chutney.
Apríkósulambalæri
Lambalæri
1 krukka apríkósumarmelaði
1 dl. sojasósa
4 – 5 hvítlauksrif
Um 3 sm. biti af ferskum engifer
Setjið hvítlauk og engifer í matvinnslu-
vél og saxið smátt. Setjið marmelaði og sojasósu saman við og blandið vel.
Penslið lærið að utan með blöndunni, það má gjarnan stinga hvítlauk hér
og þar í lærið áður. Geymið afganginn af blöndunni. Það er gott að bæta
örlitlu kryddi á lærið í lokin, t.d. Cajun Rub frá Nomu eða „Best á lambið“
kryddblöndu. Lærinu á síðan annað hvort að pakka vel inn í álpappír og
grilla það eða setja það í steikarpott og inn í ofn. Grilltími er 1½ - 2 tímar
á 180°. Snúið lærinu á 20 mínútna fresti. Best er að nota kjöthitamæli og
hætta við 65-70°, eftir því hve rautt kjötið á að vera. Lykilatriði er að láta
lærið bíða undir stykki í um 15 mínútur eftir steikingu. Allur vökvi sem
kemur af lærinu er settur í pott ásamt afgangnum af blöndunni, sem er
hituð og notuð sem sósa með lærinu. Bragðbætið ef þörf er á.
Byggið hennar Hildar
1 bolli bankabygg frá Vallanesi
3 bollar vatn
1 grænmetisteningur
1 box ferskir sveppir
1 rauðlaukur
1 rauður ferskur chili, fræhreinsaður
1 rauð paprika
Karrí
Sojasósa
Fetaostur, án olíu
Setjið bygg, vatn og grænmetistenging saman í pott og sjóðið samkvæmt
leiðbeiningum. Saxið sveppina smátt og steikið upp úr olíu og karrí, hálfri
til einni matskeið allt eftir smekk hvers og eins. Setjið sveppina til hliðar.
Saxið annað grænmeti smátt og steikið á pönnunni, blandið sveppum og
soðnu byggi saman við. Bragðbætið með sojasósu og viðbótar karrí ef þörf
er á. Látið kólna í smá stund og áður en byggrétturinn er borinn fram er
fetaosti blandað saman við. Þessi byggréttur passar vel með kjöti, kjúklingi
og fiski og hægt að elda hann með góðum fyrirvara.
Rabarbara-chutney
1 kg. rabarbari
5 – 7 dl. sykur
1 poki þurrkaðar apríkósur
Um 2 sm. biti af ferskum engifer
1½ rauðlaukur
Karrí
2 rauðir ferskir chili, fræhreinsaðir
1½ msk. edik
1½ dl. vatn
Rabarbarinn er settur í pott og hitaður í 10 mínútur. Þá er sykri bætt út í
og fer magnið eftir smekk hvers og eins. Apríkósur eru svo saxaðar smátt
í matvinnsluvél og settar út í pottinn, ásamt söxuðum rauðlauk, engifer
og chili. Karrí eftir smekk sett í pottinn en varist að nota of mikið til að
byrja með, gott að byrja með ½ - 1 msk. og bæta síðan við. Að lokum er
edik og vatn sett út í pottinn. Soðið áfram í 30 – 40 mínútur. Geymist
vel í krukkum í ísskápnum. Passar vel með kjöti, kjúklingi, fiski og ostum.
Við skorum á matgæðingana Hólmgrím Elís Bragason og Guðlaugu
Árnadóttur að koma með upskrift í næsta blað.
Þóroddur Helgason og Hildur Magnúsdóttir
Skipstjóri skemmtiferðaskipsins Vo-
yager neitaði að leggjast að bryggju
eða hleypa farþegum í land á Seyðis-
firði á laugardaginn var. Skipið átti
að leggja að bryggju um morguninn
og vera þar í tæpan sólarhring. Skip-
stjóranum leist hins vegar ekkert á
veðrið og óttaðist að komast ekki
aftur frá landi þannig að hann sigldi
aftur út á fjörðinn og varpaði akkeri
þar. Nokkur vindur var á Seyðisfirði
á laugardaginn en að sögn heima-
manna ekki verra veður en oft gengur
og gerist. Hafnsögumaður var sendur
út í skipið til aðstoðar en skipstjórinn
afþakkaði hjálpina. Heimamenn á
Seyðisfirði gagnrýndu ákvörðun skip-
stjórans harðlega enda Norræna, sem
er ívið stærra skip, vön að leggjast að
bryggjunni í töluvert verri veðrum.
Í skipinu voru um 450 farþegar og
átti hluti þeirra pantaðar skoðunar-
ferðir um Austurland. Díana Mjöll
Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri
Tanna Travel sem skipulagði mót-
töku skipsins eystra, vonast til að
ferðaþjónustuaðilar beri ekki skaða
af en meðal annars voru undirbún-
ar máltíðir fyrir hundruð farþega
sem von var á í land. „Við munum
fara yfir þann kostnað sem hlaust
af þessu og fáum það að öllum lík-
indum greitt frá ferðaskrifstofunni
sem sá um skipið. Þau krefja skipið
svo um þau útgjöld. Ég á ekki von
á hagnaði, en heldur ekki tapi. Ég
veit ekki hvernig er með veitingar
sem búið var að undirbúa. Vonandi
kemur enginn út í tapi.“
Austurglugginn hefur sent útgerð
skipsins ósk um skýringar á ákvörðun
skipstjórans en svör höfðu ekki borist
þegar blaðið fór í prent.
SL/GG
Skipstjórinn neitaði að
leggjast að bryggju
Í vikunni hefur hópur tónverkafólks
úr ýmsum áttum verið í fræðslu og
akkorðsvinnu í Tónafjósi í Eiðaþinghá.
Tónafjósið er tónverkstæði sem er
staðsett í húsakynnum Barnaskólans
á Eiðum. Verk og smíðar hópsins
verða sýnd almenningi um helgina.
Byrjað var á klukkustundarlangri tón-
verkssýningu í skólanum í gærkvöldi
undir yfirskriftinni „Lagaleysi“ en
næsta sýning verður í Sláturhúsinu á
Egilsstöðum í kvöld. Þar verður alls
herjar tónverkssýning og tónleikar
og skrall fram eftir kvöldi. Skrallið
heldur svo áfram í Kirkju- og menn-
ingarmiðstöðinni á Eskifirði klukkan
15:00 á morgun.
Eftirtaldir aðilar gengu að verk-
samningi við Tónafjósið á Eiðum
árið 2014:
Sunna C. Ross, Páll Ivan frá Eiðum,
Per Åhlund, Lilja María Ásmunds-
dóttir, Guðmundur Steinn Gunn-
arsson, Halldór Úlfarsson, Þórunn
Gréta Sigurðardóttir, Ingibjörg Ýr
Skarphéðinsdóttir, Jóhann Valur
Klausen, Ásthildur Ákadóttir, Kir-
stine Lindemann, Charles Ross og
Bára Sigurjónsdóttir.
Afurðir úr Tónafjósinu
á Eiðum
Voyager á Seyðisf irði á laugardag. Mynd: Einar Bragi Bragason.