Austurglugginn


Austurglugginn - 29.08.2014, Side 3

Austurglugginn - 29.08.2014, Side 3
Fréttir frá Fjarðaáli Umsjón: Hilmar Sigurbjörnsson ritstjóri Álpappírsins, fréttabréfs starfsmanna Alcoa Fjarðaáls. Alcoa Foundation veitir styrk til uppgræðslu Alcoa Foundation hefur veitt Landbótasjóði Norður-Héraðs styrk til að halda áfram uppgræðslu. Landbótasjóðurinn var stofnaður fyrir framlag frá Landsvirkjun árið 2003 í því skyni að græða upp land til mótvægis við það gróðurlendi sem tapaðist undir Hálslón. Einnig á sjóðurinn að standa að uppgræðslu á áreyrum Jökulsár á Dal en með minnkun vatnsmagns eykst hætta á uppfoki á áreyrum. Vel hefur gefist að bera áburð á mela til að örva þann gróður sem er þar fyrir. Markmiðið er að gera melana að sjálfbæru gróðursvæði. Eftir bankahrunið hækkaði áburður mikið í verði og því hefur sjóðurinn ekki getað keypt eins mikinn áburð og áður til uppgræðslunnar. Með fram- lagi Alcoa Foundation, sem nemur 75.000 USD eða um 8,8 milljónum króna, verður hægt að auka áburðargjöfina og efla þannig verkefnið. Styrkurinn var afhentur formlega 14. ágúst í ferð sem Landbótasjóður- inn boðaði til svo hægt væri að skoða árangur af uppgræðslu síðustu ára. Fyrst voru eyrar Jökulsár á Dal skoðaðar í Tungu og Hlíð og síðan var ekið um Jökuldalsheiðina alveg inn að Kárahnjúkum. Þrír fulltrúar Alcoa tóku þátt í ferðinni, þau Magnús Þór Ásmundsson, Dagmar Ýr Stefáns- dóttir og Hilmar Sigurbjörnsson. Fjölmiðlar voru einnig með í ferðinni og hafa henni þegar verið gerð góð skil fréttum RÚV og í Glettum á N4. Hér sést árangur af uppgræðslu á eyrum Jökulsár á Dal. Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, afhendir Sigvalda H. Ragnarssyni styrkinn til Landbótasjóðs Norður-Héraðs. Hópurinn borðaði hádegisverð í Sænautaseli og naut lífsins í veðurblíðunni. Víðirinn lagar sig að erf iðum aðstæðum og bindur jarðveg uppi á Jökuldalsheiði. Blóðbergið á Jökuldalsheiðinni nýtur líka góðs af áburðargjöf. Blóðberg er vinsæl kryddjurt og á að hafa mikinn lækningamátt. Hér hefur tekist að snúa vörn í sókn og loka rofabarði. Áburðargjöf hægra megin við veginn hefur greinileg áhrif.

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.