Austurglugginn - 29.08.2014, Síða 4
4 Föstudagur 29. ágúst AUSTUR · GLUGGINN
Ritstjóraspjall
Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Sverrir Mar Albertsson • Fréttir: 477 1750 / frett@austurglugginn.is
Auglýsingar: 696 6110 / auglysing@austurglugginn.is • Áskriftarsími: 477 1571
Efnisvinnsla og auglýsingasala: Austurfrétt ehf. • Gunnar Gunnarsson blaðamaður • Stefán Bogi Sveinsson auglýsingastjóri
Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf., Búðareyri 7, 730 Reyðarfjörður • Umbrot og prentun: Héraðsprent.
Margar þjóðir í einu landi
Mér finnst stundum eins og ég hafi
lent í einhverjum sýndarveruleika –
að ég svífi milli vídda og veruleika. Í
mínum daglegu störfum umgengst
ég mikið fólk og flest er eins og ég
sjálfur og myndi teljast venjulegt
fólk. Yfirleitt er ég mjög stoltur af
því að tilheyra þessari tegund fólks.
Fólk almennt er gott. Fólk hefur
ríka samkennd og er hjálpsamt.
Fólk almennt hefur skýra sið-
ferðisvitund og er ábyrgt. Fólk er
heiðarlegt. Þetta er mín upplifun
af „venjulegu fólki“.
Svona upplifi ég fólk.
Þangað til ég opna fréttasíðurnar
á vefnum. Þar verður fyrir önnur
þjóð – þjóð sem ekki virðist bera
virðingu fyrir náunganum – þjóð
sem virðir engin mörk velsæmi í
orðavali og þjóð sem uppfull er af
þrætugirni, fordómum og sleggju-
dómum og leggur orð við alla um-
ræðu og yfirleitt á veikum grunni.
Eitt sinn blöskraði mér svo klám-
kenndur formælingaflaumur manns
í athugasemdadálki DV að ég sló
á „Facebook“ tengilinn hans og
upp kom vingjarnlegur afi, sem
á „Facebook síðunni“ fjallaði um
barnabörnin og birti myndir af
þeim og honum sjálfum við leiki.
Ég fór að velta því fyrir mér hvort
manninum væri ljóst að barnabörnin
sem hann sinnir sjálfsagt vel – geta
líka lesið það sem hann skrifar – og
hvort að dónaskapur hans, kven-
fyrirlitning og fordómar eru það
sem hann vill leggja til uppeldis
og mótunar ungra barna.
Og einnig – hvort hann muni út-
skýra fyrir afastúlkunum sínum
þegar þær stálpast – að ef þær
hafa skoðanir sem honum þóknast
ekki – finnist honum sjálfsagt að
uppnefna þær eftir kynfærum og
niðurlægja á almannafæri og skipa
þeim aftur inn í eldhús.
Svo er það þriðja þjóðin – þjóðin
sem hefur að einkunnarorði „ég
á´etta – ég má´etta“. Það virðist
ekki skipta máli hvort fulltrúar
þessarar þjóðar eru í stjórnmálum,
viðskiptum, bankakerfi eða stjórn-
sýslu – meðlimir hennar þekkjast
á löngu færi á hroka og yfirgangi.
Þetta er þjóðin sem ekkert hefur
lært og öllu gleymt. Þessi þjóð talar
um „meint efnahagshrun“ og sér
enga ástæðu til að breyta neinu.
Þessi þjóð lítur á sig sem rétt-
borna til auðæfa og áhrifa. Það er
enda ekki skrítið því innan þess-
arar þjóðar eru flestir nátengdir og
skyldir öðrum sömu þjóðar. Þetta
er þjóðin sem stjórnar í hroka og
yfirlæti -nema á fjögurra ára fresti
verða flestir svo innilega auðmjúkir
og miklir alþýðuvinir að það liggur
við að maður tárist. Svo eru kosn-
ingar og venjulega fólkið lætur enn
og aftur teyma sig á asnaeyrunum
og trúir fögrum fyrirheitum. Þá
gengur auðmýktarstigið yfir hjá
þjóðinni sem á þetta og má þetta.
Þá dettur allt í gamla farið.
Stundum er erfitt að vera stoltur
af þjóðerni sínu. - Salb.
Strandveiðum lokið í ár
Strandveiðum á svæði C, frá Húsavík til Djúpa-
vogs, er lokið að þessu sinni. Strandveiðikvótinn
var 2.200 tonn á svæðinu en þar veiddust hins
vegar 2.300 tonn í sumar. Uppistaða aflans var
þorskur, rúm 2.040 tonn en næst mest veiddist
af ufsa, tæp 200 tonn. Alls voru 147 bátar skráðir
við veiðar á svæðinu að þessu sinni.
Fisktegund Bakkafj. Vopnafj, Borgarfj. Seyðisfj. Mjóifj.
Nes-
kaupst. Eskifj.
Fáskrúð
fj.
Stöðvar
fj.
Breið-
dalsv. Djúpiv.
Horna-
fj.
Samtals
fiskteg.
Þorskur 41 29 26 48 1 176 9 0 84 18 34 21 487
Ýsa 2 6 1 4 0 4 0 0 20 2 1 1 41
Ufsi 0 0 0 12 0 3 0 0 0 1 2 7 25
Karfi / Gullkarfi 0 0 0 24 0 5 0 0 1 1 0 0 31
Langa 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 3 3
Blálanga 0 0 0 1 0 0 0 0 0 0 0 0 1
Keila 0 0 0 0 0 1 0 0 3 0 2 1 7
Steinbítur 1 1 0 0 0 0 0 0 5 0 5 0 12
Grálúða 0 0 0 0 0 0 0 0 1 4 0 0 5
Skarkoli 0 10 0 0 0 0 0 0 0 0 1 0 11
Djúpkarfi 0 0 0 3 0 0 0 0 0 0 0 0 3
Samtals botnfiskur 44 46 27 92 1 189 9 0 114 26 45 33 626
Síld 0 736 0 0 0 659 0 15 0 0 0 928 2338
Kolmunni 0 16 0 0 0 75 0 0 0 0 0 63 154
Samtals uppsjávarfiskur 0 752 0 0 0 734 0 15 0 0 0 991 2492
Tindaskata 1 0 0 0 0 1 0 0 0 1 0 0 3
Hlýri 1 0 0 0 0 1 0 0 1 0 0 0 3
Makríll 0 1623 0 0 0 3574 832 349 0 0 1 491 6870
Túnfiskur 0 0 0 0 0 1 0 0 0 0 0 0 1
Grásleppa 0 1 0 0 0 0 0 0 0 0 0 1 2
Samtals aðrar tegundir 2 1624 0 0 0 3577 832 349 1 1 1 492 6879
Samtals alls 46 2422 27 92 1 4500 841 364 115 27 46 1516 9997
Sjávarsíðan
Landaður afli eftir tegundum í austfirskum
höfnum 17. - 23. ágúst 2014. Afli í tonnum upp
úr sjó (óslægt). Tölur frá Fiskistofu.