Austurglugginn - 29.08.2014, Síða 8
8 Föstudagur 29. ágúst AUSTUR · GLUGGINN
www.alcoa.isHraun 1 • 730 Reyðarfjörður • Sími 470 7700
Samfélagsstyrkir Alcoa Fjarðaáls
– haustúthlutun
Frestur til að sækja um samfélagsstyrki hjá Alcoa Fjarðaáli rennur út
10. september næstkomandi.
Umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu fyrirtækisins www.alcoa.is.
Það er stefna fyrirtækisins að styrkja fyrst og fremst verkefni á Austurlandi.
Sérstök úthlutunarnefnd fjallar um umsóknirnar og er stefnt að úthlutun í
október.
Héraðshátíðinni Ormsteiti lauk
á sunnudag með Fljótsdalsdegi.
Miðpunktur dagsins var á Skriðu-
klaustri þar sem haldnir voru hinir
árlegu Þristarleikar og hljómsveitin
Valdimar spilaði úti undir berum
himni við Gunnarshús. „Ég veit þið
áttuð öll miða á Justin Timberlake
en skiluðuð þeim þegar þið fréttuð
af okkur á leiðinni,“ sagði Valdimar
sjálfur við áhorfendur.
Síðar um daginn var vígður endur-
byggður kláfur yfir Jökulsá, milli
Glúmsstaðasels og Kleifar innst í
Norðurdal í Fljótsdal. Gerð kláfs-
ins er samstarfsverkefni Laugarfell
Highland Hostel og Óbyggðaseturs
Íslands sem verið er að standsetja
á Egilsstöðum í Fljótsdal. Búið er
að stika gönguleið frá Kleif inn að
Laugarfelli og sögðu forsvarsmenn
ferðaþjónustuaðilanna frá því að hún
hefði hlotið góðar viðtökur en gengið
er meðfram fossunum í Jökulsánni í
gegnum Kleifarskóg. Til stendur að
lengja hana enn frekar í samvinnu
við Vatnajökulsþjóðgarð þannig
stikað verði alla leið inn í Snæfell.
Nýi kláfurinn tekur við öðrum sem
gerður var árið 1951 en slíkt tæki
hefur öldum saman tengt saman
innstu bæina tvo þótt heimildir um
þá séu takmarkaðar. Ásgeir Jónas-
son bar hitann og þungann af smíði
kláfsins með aðstoð Sigurðar Kjer-
úlf og helstu nágranna. GG
Kláfur vígður á Fljótsdalsdegi
Gestir á Klaustri létu ekki smá skúrir á sig fá.
Gunnþórunn Ingólfsdóttir, oddviti Fljóts-
dælinga, opnaði kláfinn formlega með því að
skera á blátt baggaband.
Um 100 gestir mættu í Glúmsstaðasel við vígslu kláfsins
og notuðu sumir tækifærið til að fara eina ferð með honum.
Gríðarleg átök hjá Einari Sveini Friðrikssyni, sigurvegara í steinatökum á Þristarleikum.