Austurglugginn - 22.03.2013, Page 3
Fréttir frá Fjarðaáli
KYNNING
Umsjón: Hilmar Sigurbjörnsson ritstjóri Álpappírsins,
fréttabréfs starfsmanna Alcoa Fjarðaáls.
Skipafélagið Cargow er byrjað að flytja afurðir og
forskaut fyrir Fjarðaál. Cargow sér jafnframt um
að koma afurðum álvera Alcoa í Mosjoen og Lista í
Noregi til Rotterdam. Fjögur skip verða í ferðum milli
Reyðarfjarðar, Rotterdam og Mosjoen. Fimmta skipið
mun sigla á milli Rotterdam og Lista.
Cargow er nýtt skipafélag með höfuðstöðvar í
Hollandi. Félagið er að hálfu í íslenskri eigu og hefur
aðgang að vöruhúsi og skrifstofum í Hafnarfirði.
Samningur Alcoa Fjarðaáls við Cargow er til tíu ára.
Eimskipafélagið mun áfram reka vöruafgreiðsluna og
höfnina á Mjóeyri.
Helsta breytingin fyrir Fjarðaál verður sú að skip
munu nú fara vikulega með afurðir til Rotterdam.
Þaðan fara skipin til Mosjoen og svo aftur til Rotter-
dam, áður en þau sigla til Íslands. Í annarri hverri ferð
koma skipin við í Englandi.
Hagkvæmt er að samnýta skipin fjögur með
álverinu í Mosjoen. Það einfaldar jafnframt og styrkir
sölukerfi Alcoa að afurðir frá Fjarðaáli, Mosjoen og
Lista munu fara í gegnum sömu afgreiðslu Steinweg í
Rotterdam í Hollandi, sem er nýjung.
Fyrsta skipið á vegum Cargow, MV Margaretha,
kom til Fjarðaáls í byrjun mánaðarins. Skipin sem
munu sinna flutningunum verða með um 11.000
tonna flutningsgetu.
VEL HEPPNAÐUR TÆKNIDAGUR FJÖLSKYLDUNNAR
SKIPAFÉLAGIÐ CARGOW HEFUR FLUTNINGA FYRIR FJARÐAÁL
Flutningaleiðir Cargow Fyrsta skipið á vegum Cargow, MV Margaretha, á leið til Mjó-
eyrarhafnar í Reyðarfirði.
Harpa Vilbergsdóttir og Sveinbjörn Egilsson afhenda skipstjóra
Margaretha, D. Antoshenko, mynd af Reyðarfirði og Eskifirði.
Fjölmargir lögðu leið sína á Tæknidag fjölskyldunnar
sem haldinn var í Verkmenntaskóla Austurlands
16 mars. Tilgangurinn var að vekja athygli á tækni-
greinum, vísindum og iðnaði í Fjarðabyggð. Starfs-
menn Fjarðaáls fræddu gesti um tækni og tækni-
menntun í áliðnaði.
Gísli Gylfason útskýrir virkni tæknibúnaðar í álverinu á Tæknidegi
fjölskyldunnar.
Jón Björn Ríkarðsson sýnir upprennandi tæknimönnum hita-
myndavél sem notuð er til að greina ástand búnaðar í álverinu.
Geir S igurpáll Hlöðversson sýnir Sóldísi dóttur sinni hitamyndir.