Austurglugginn


Austurglugginn - 22.03.2013, Síða 16

Austurglugginn - 22.03.2013, Síða 16
Sex lið skráðu sig til keppni í haust en fimm luku keppni. Á sunnudag fór fram úrslita- keppni fjögurra efstu liðanna í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Sérdeildin 1, sem hafnaði í þriðja sæti for- keppninnar, vann Sérdeildina 2 í fyrri undanúr- slitaleiknum. Liðin skiptust á að hafa forustuna en Sérdeildin 1 seig fram úr í fjórða leikhluta. Sérdeildin 2 fékk þrjú færi til að jafna í síðustu sókninni en þau geiguðu öll. Hinn undanúrslitaleikurinn var mun hraðari og meira skorað í honum en mun minni spenna. Ásinn var með um tuttugu stiga forskot allan leikinn gegn Austra og vann 89-55. Sérdeildin 1 og Austri mættust því í leiknum um þriðja sætið. Austri hafði þá bætt við sig leikmönnum frá undanúrslitunum. Sérdeildin hafði samt öruggt forskot allan leikinn og vann að lokum 78-49. Ásinn, sem varð efstur í deildakeppninni með 16 stig líkt og Sérdeildin 2 en hafði betur í inn- byrðis viðureignum, tók forustuna strax í fyrsta fjórðungi gegn Sérdeildinni 1 í úrslitaleiknum og hélt henni til loka. Helst var það í síðasta leikhluta sem saman dró með liðunum en það kom ekki í veg fyrir að nýtt nafn yrði skráð á bikarinn. Þetta er í þriðja sinn sem UÍA og Bólholt standa fyrir bikarkeppni á Austurlandi í körfu- knattleik. Fannar Magnússon var stigahæstur í keppninni, skoraði 159 stig í átta leikjum. Ásinn – Sérdeild 1 58-46 (20-12, 38-20, 50-28, 58-46) Stig Ássins: Jónas Hafþór 16, Ívar Karl 14, Rúnar 11, Jónas Ástþór, Elvar Ægisson 5, Valdemar 3, Villi Pálmi, Elís 2. Stig Sérdeildarinnar 2: Viggó 16, Hjálmar Baldursson 7, Dóri, Sigurdór, Sigfús 6, Hjalli Jóns 5. Sérdeild 2 – Austri 78-49 (16-9, 42-22, 65-37, 78-49) Sérdeild 2: Fannar 19, Máni Vals 15, Kjartan, Anton Helgi 12, Siggi 7, Ingvar 6, Davíð Logi 4, Brói 3. Austri: Siggi Sölvi 14, Steini, Ólafur Hlynur 10, Nikki 6, Jóhann Örn 3, Pétur, Heimir, Konráð 2. Ásinn – Austri 89-55 (23-13, 53-21, 78-37, 89-55) Ásinn: Elvar Ægis 28, Jónas Hafþór 13, Jónas Ásþór, Rúnar 11, Ívar Karl 10, Elís 8, Valdemar 2. Austri: Siggi Sölvi 16, Steini 12, Ólafur Hlynur 11, Pétur 6, Nikki, Heimir 5, Jóhann 1. Sérdeild 2 – Sérdeild 1 37-40 (11-10, 16-20, 31-29, 37-40) Sérdeild 2: Fannar 12, Anton Helgi 8, Ingvar 6, Máni Vals 5, Davíð Logi, Davíð Skúlason, Kjartan 2. Sérdeild 1: Sigfús 14, Viggó 13, Dóri 8, Ævar 3, Hjalli 2. Ásinn vann Bólholtsbikarinn Ungmennafélagið Ásinn fagnaði á sunnudag sigri í Bólholtsbikarnum í körfuknattleik eftir 58-46 sigur á Sérdeildinni 1, sigurvegurum tveggja síðustu ára, í úrslitaleik.

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.