Austurglugginn - 10.04.2008, Blaðsíða 2
2 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 10. apríl
Fimmtudaginn 3. apríl sl. var árs-
reikningur Fjarðabyggðar 2007 tek-
inn til fyrri umræðu bæjarstjórnar
en eins og sveitarstjórnarlög kveða
á um skal fjalla um ársreikninginn
á tveimur fundum í bæjarstjórn.
Seinni umræða um ársreikning
Fjarðabyggðar 2007 fer fram 17.
apríl nk.
Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna
og fjármagnsgjalda var jákvæð sem
nam 773,4 millj. kr í samsstæðuárs-
reikningi, A og B hluta. Þar af var
rekstarniðurstaða A hluta jákvæð um
589,6 millj.kr. Að teknu tilliti til fjár-
magnsgjalda var rekstur samstæðu
jákvæður sem nam 500,9 millj.kr.
og A hluta 507,8 millj. kr.
Tekjur rúmir
4 milljarðar
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á
árinu 2007 námu 4.042,8 millj. kr.
í samstæðu, en þar af námu rekstr-
artekjur A hluta 3.283,3 millj. kr.
Hækkuðu tekjur samstæðu í heild
um 6,6% frá fyrra ári. Mest hækkuðu
útsvarstekjur eða um 16,6% og aðrar
tekjur um 13,3%. Ljóst er að bygging
álvers í Fjarðabyggð og umsvif vegna
framkvæmda í sveitarfélaginu höfðu
mikil áhrif á tekjumyndun og þá
sér í lagi áhrif frá starfsmannaþorp
Bechtel á Haga. Þá lækkuðu fram-
lög Jöfnunarsjóðs um tæp 50% frá
fyrra ári, en með hækkandi tekjum
sveitarsjóðs lækka framlög jöfnunar-
sjóðsins umtalsvert.
Rekstrargjöld án afskrifta í sam-
stæðu námu 2.997,7 millj. kr. og þar
af rekstrargjöld A hluta 2.565,8 millj.
kr. Heildar rekstrargjöld í samstæðu
hækkuðu um 14,5%. Laun og launa-
tengd gjöld hækkuðu um 17,2% og
annar rekstarkostnaður um 14,2%.
Líkt og á árinu 2006 er kostnaður
hækkandi vegna stækkandi rekstr-
areininga og aukinna umsvifa hjá
sveitarfélaginu. Þá hækkaði lífeyr-
isskuldbinding um 114,5 millj. kr.
milli ára.
Veltufé frá rekstri samstæðu nam
949,5 millj. kr. og handbært fé
frá rekstri nam 1.130,0 millj. kr.
Á árinu 2006 var handbært fé frá
rekstri jákvætt um 972,0 millj. kr.
og aukningin því á milli ára 16%.
Veltufjárhlutfall í lok árs 2007 var
1,77 í A hluta og 1,06 í samstæðu.
Langtímaskuldir
4,8 milljarðar
Niðurstaða fjármagnsliða á árinu
2007 var 270,0 millj. kr samanborið
við 631,2 millj. kr. á árinu 2006.
Skýrist munurinn fyrst og fremst
af háum vaxtatekjum vegna sterkrar
sjóðsstöðu, markvissar skuldastýr-
ingar og sterku gengi íslensku krón-
unnar. Vaxta- og verðbótatekjur
ársins 2007 námu 82,7 millj. kr. og
gengishagnaður ársins vegna erlends
lánasafns var 118,4 millj. kr. Þá námu
vaxta- og verðbótagjöld 455,8 millj.
kr.
Fjárfestingar samstæðu nettó í var-
anlegum rekstrarfjármunum námu
770,8 millj. kr. Eignir sveitarfélags-
ins eru í lok árs 2007 8.596,5 millj.
kr. þar af 7.540,1 millj. kr. í fasta-
fjármunum. Langtímaskuldir við
lánastofnanir eru 4.827,3 millj. kr.
og skammtímaskuldir 6,3 millj. kr.
Eigið fé samstæðu í árslok nam
1.757,4 millj. kr. þar af 1.681,3, millj.
kr. í A hluta. Handbært fé í árslok
2007 nam 305,3 millj. kr.
Um síðastliðna helgi gengu nokkrir
vaskir starfsmenn Símans og Sensa
upp á Hvannadalshnjúk með það
að markmiði að prófa sambandið við
nýja 3G senda sem búið er að setja
upp á Háöxl rétt undir Vatnajökli
og Háfelli sem er rétt austan Víkur
í Mýrdal. Gangan gekk vel í blíð-
skaparveðri og á ýmsum stöðum á
leiðinni var staldrað við og hringt í
fjölskyldumeðlimi sem fylgdust með
göngunni sem var í beinni útsend-
ingu á internetinu í gegnum 3G net-
kort í fartölvu.
Fjarðabyggð
773 milljónir í afgang
Vélsleðamenn
varaðir við
snjóflóðum
Lögreglan á Eskifirði hefur varað
vélsleðamenn við snjóflóðahættu.
Í fjöllum á Austurlandi hefur skapast
talsverð snjóflóðahætta undanfarið.
Snjóflóð féll ofan við Kollaleiru síð-
astliðna helgi, en þá þótti snjósleða-
maður sleppa vel.
Vitað er til þess að snjóflóð hafa verið
að falla utan byggðar á Austurlandi
síðastliðna viku. Til að mynda féll
svokallað flekaflóð skammt frá
gangamunna Fáskrúðsfjarðarganga
á mánudag.
Bein útsending frá Hvannadalshnjúk
Síminn prófar nýja
langdræga 3G kerfið
Með símann í annarri hendinni og göngustaf
í hinni.
Reyðarfjörður
(Elvar Ingólfsson)