Austurglugginn - 10.04.2008, Qupperneq 4
4 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 10. apríl
Á föstudag hitti blaðamaður Austur-
gluggans Vilhjálm á heimili fjölskyld-
unnar að Bláskógum á Egilsstöðum.
Vilhjálmur var heima þennan dag
með dóttur sína.
“Það er ófært í dag til Seyðisfjarðar.
Konan mín verður að vera í vinnu í
dag. Þess vegna er ég heima í dag
með dóttur minni, og get ekki mætt
til vinnu. Ef ég er alveg hreinskil-
inn þá get ég ekki heldur sinnt
barninu algjörlega, þar sem síminn
hringir mikið þegar ég er fjarver-
andi í vinnunni. Stundum er konan
mín (Elísabet) líka bundin heima,
þegar hún vildi heldur vera að vinna.”
Segir Vilhjálmur sem segir stöðuna
erfiða.
Vilhjálmur segir
þau hafa verið komin
með loforð um
leikskólapláss síðasta
haust
“Upphaflega vorum við komin með
leikskólapláss í september á síðasta
ári. Síðan ákváðum við að fresta því
þangað til í desember að taka plássið.
Þá var það með góðum orðum frá
sveitarfélaginu um pláss þá. Hins
vegar þegar stundin rann upp var
komin upp sú staða að við gátum
ekki fengið leikskólapláss í sveitarfé-
laginu, og höfum ekki fengið enn. Þá
var okkur reyndar tjáð að við gætum
búist við plássi í janúar. Þegar við
höfðum samband við sveitarfélagið
síðar í mánuðinum fengum við önnur
svör. Þá var okkur sagt að í september
á þessu ári getum við fengið pláss
fyrir dóttur okkar á leikskóla.” Segir
Vilhjálmur sem finnst súrt í broti
að fá ekki pláss fyrir dóttur sína á
leikskóla.
Nær óvinnandi vegur
og mikill kostnaður
“Konan kennir skíði í hálfu starfi á
vegum bæjarins, og síðan var ætl-
unin að hún ynni hálfan daginn við
að klára lokaritgerð sína í háskól-
anum. Ég veit ekki hvort það tekst,
þetta er erfið staða að ráða við. Ég
sjálfur vinn miklu meira en fullan
vinnudag. Stundum fer ég til vinnu
á Seyðisfirði. Þess vegna reynum
við að leysa þetta mál þannig að ég
keyri henni á leikskóla á Seyðisfjörð.
Suma dagana er ég ekki að vinna þar,
þannig að ég keyri hana á Seyðisfjörð
og keyri aftur til baka í Hérað. Þá
sæki ég hana fyrir fimm og er þannig
að keyra tvær ferðir á Seyðisfjörð á
dag. “
Vilhjálmur viðurkennir fúslega að
heldur vildi hann vera annars staðar
með barnið sitt en á fjallvegi í litlu
skyggni. “Eins og staðan er búin að
vera undanfarið er þetta nær óvinn-
andi vegur. Fjarðarheiði lokast með
stuttum fyrirvara, og í raun glórulaust
að vera að fara með barnið yfir heið-
ina. Því miður er þetta eina lausnin
fyrir okkur. Fyrir utan allt þetta er
bensíneyðslan sem fylgir akstrinum
yfir heiðina þungur baggi. Sama má
náttúrulega segja um vinnutapið.”
Ekki nógu mörg
börn á biðlista
Vilhjálmur og Elísabet hafa spurst
fyrir um af hverju þau fá ekki leik-
skólapláss hjá sveitarfélaginu. “Við
höfum fengið þær skýringar að það
séu ekki nógu mörg börn á biðlista
til þess að opna nýja deild sem er
tilbúin á leikskólanum Skógarlandi.
Helmingurinn af nýju deildinni er
þegar opinn, en þau telja hins vegar
ekki vera nógu mörg börn sem bíða
eftir leikskólavist til að réttlæt-
anlegt sé að opna hinn helminginn.
Samkvæmt mínum upplýsingum
tekur þessa óopnaða deild sextán
börn, en á biðlista eru níu börn. Mér
er sagt að það er útséð með að við
fáum ekki leikskólapláss fyrr en í
september. Fræðsluráð og bæjarráð
eru bæði búin að funda um málið,
og það virðist ekkert vera hægt að
gera.”
Þegar Vilhjálmur er spurður hvort
hann sé ósáttur við þessa stöðu mála
segir hann svo vera. “Það er skrítið
að nýja deildin á Skógarlandi sé ekki
opnuð, þó hún sé ekki fyllt hið snar-
asta. Það hvorki vantar aðstöðuna
né starfsfólkið og skýringarnar eru
þær að þetta væri óhagkvæmt fyrir
sveitarfélagið þar sem deildin væri
ekki full frá byrjun. Ég hef heyrt af
fólki sem er að flytja héðan í burt
vegna þess að það fær ekki leikskóla-
pláss. Ég hef áhyggjur af því að það
verði fleiri. Fólk verður hreinlega að
velja sér búsetu þar sem það fær pláss
fyrir börnin sín á leikskóla eða hjá
dagmömmu. Hér er heldur ekkert
pláss að fá hjá dagmóður. Við erum
ekki ein um að vera í þessari stöðu.
Við höfum reyndar ekki hugsað um
að flytjast brott.”
Í útgáfum Fljótsdalshéraðs um stefnu og framtíðarsýn, er lítið að finna skrifað um leikskóla.
Þó má í stefnu Austur-Héraðs árið 2001-2006, sem enn er birt á vef Fljótsdalshéraðs,
finna eftirfarandi texta:
“Leikskólar 20. Sveitarfélagið verði þekkt fyrir að leikskólar anni alltaf eftirspurn eftir leikskólaplássi og þeir séu í góðum tengslum við aðrar mennta-
stofnanir s.s. tónlistarskóla, lista- og íþróttastarfsemi. Fræðslu- og menningarsvið og skólayfirvöld hafi forgöngu um þetta. 21. Kannaðar verði leiðir
sem miði að því að boðið verði upp á vistun fyrir börn frá lokum fæðingarorlofs foreldra. Fræðslu- og menningarsvið sveitarfélagsins hafi forgöngu
um þetta.”
Í stefnu Fljótsdalshéraðs sem gefin var út í maí 2006 er lítið talað um leikskóla, þó má finna eftirfarandi málsgrein um leikskóla í stefnu sveitarfélags-
ins: “Í sveitarfélaginu eru starfræktir fimm leikskólar með ríflega tvö hundruð börnum.”
Ekkert leikskólapláss á
Egilsstöðum - keyra Fjarðarheiðina
Vilhjálmur Vernharðsson og Elísabet Kristjáns-
dóttir eru ung hjón á Egilsstöðum. Þau eiga tæp-
lega tveggja ára dóttur. Aðstaða þeirra er sér-
stök að því leyti að þau fá ekki pláss fyrir dóttur
sína á leikskóla í heimabæ sínum Egilsstöðum.
Þess vegna keyra þau hana á leikskóla daglega í
annað sveitarfélag, Seyðisfjörð.
Vilhjálmur Vernharðsson var heima að gæta dóttur sinnar á föstudag.