Austurglugginn - 10.04.2008, Side 6
6 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 10. apríl
Þ
að er erfið þynnka sem Austfirðingar þurfa að hrista af sér
á næstu árum. Eftir nokkur ár framkvæmda og fjármagn-
streymis, stöndum við frammi fyrir því að í fjórðungnum er
íbúafjöldi nánast sá sami eftir að framkvæmdum lýkur og
árið 1998. Íbúafjöldi hefur aðeins vaxið á Mið-Austurlandi, meðan
umtalsverð fækkun íbúa hefur átt sér stað í til dæmis Neskaupstað,
Stöðvarfirði, Breiðdalshreppi, Djúpavogshreppi, Borgarfirði, Seyðisfirði,
Vopnafirði, Langanesi og víðar. Þetta er dágóð upptalning og hana
verður að taka alvarlega.
Það allra versta sem hægt er að gera í þynnkunni er að fá sér
afréttara. Afréttari á borð við netþjónabú hugnast til dæmis sveit-
arstjórnarmönnum á Fljótsdalshéraði vel. Reynsla vel reyndra manna
af drykkjuskap segir hins vegar að afréttari frestar aðeins kvölinni, sá
dagur muni alltaf koma að horfast þurfi í augu við vandann og leita
lausna til framtíðar.
Hér með er ekki sagt að netþjónabú sé slæmur kostur. Hins vegar er
hér sagt að netþjónabú sé ekki eitt af mikilvægari framþróunarmálum
sveitarfélaganna eins og staðan er í dag. Menntun og samgöngur, er
eldgömul tugga sem stjórnmálamenn og vel upplýstir þjóðfélagsþegnar
halda á lofti oftast nær. Þetta er tugga sem virkar vel í lýðinn, enda
alveg kórrétt.
Það hins vegar sem hefði átti að gera fyrir um 20 árum síðan og
allar götur síðan þá er að undirbúa heildstæða samgönguáætlun fyrir
fjórðunginn í samvinnu við ráðherra byggðamála, samgönguráðherra,
samgöngunefnd alþingis og sveitastjórnir á Austurlandi. Heildstæð
samgönguáætlun til 30 ára fyrir fjórðunginn í heild gæti orðið til þess
að skapa samstöðu og sátt milli íbúa og stjórnvalda um nauðsynlegar
samgönguframkvæmdir.
Á Mið-Austurlandi vinna sveitarfélög mjög gott starf þessi misserin
í þá átt að geta boðið háskólamenntun í heimabyggð. Þar fer fram
öflugt og markvisst starf sem miðar að því að hér verði hægt að sækja
menntun eins og hún gerist best. Að þessum málum er unnið með
ákveðna framtíðarsýn í huga. Þó að það gangi ekki alltaf eins hratt
og flestir hefði viljað, þá þokast í þá áttina að íbúar Austurlands geti
eignast þekkingu og menntun á ákveðnum sviðum í heimabyggð.
Þannig þurfa samgöngumál líka að vinnast.
Áform öll um samgöngur liggja hins vegar á hakanum. Stefna
samgönguráðherra og Vegagerðarinnar er undanfarin ár mæld áfram
í mánuðum, misserum og einu eða tveimur árum, aldrei skal litið til
lengri tíma. Þannig er hægt að ala á ósamstöðu heimamanna sem
bítast í hvert skipti um að fá framkvæmdir Vegagerðarinnar í sína
þjóðvegi. Svo er svar ráðamanna og Vegagerðarinnar: “Það vantar
samstöðu á Austurlandi.”
Ef til vill þarf framkvæmdavaldið að koma fram með metnaðarfulla
áætlun í samstarfi við heimamenn, þá fá þeir fram samstöðu – þar
sem ekki er efast um einstakar framkvæmdir. Menntun og samgöngur
eru það sem Austfirðingar eiga að heimta, öllu frekar.
Leiðari
Póstfang: Brekkugata 9, 730 Reyðarfjörður
Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf.
Umbrot & prentun: Héraðsprent
Auglýsingastjóri: Erla Sigrún Einarsdóttir 477 1571 - 891 6484 - erla@agl.is
Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Einar Ben Þorsteinsson 896 5513 - frett@agl.is
Fréttaritari á Vopnafirði - Bjarki Björgólfsson 854 9482 - kompan@vortex.is
Fréttaritari í Neskaupstað: Áslaug Lárusdóttir - 695 8498 - aslaugl@gmail.com
Fréttaritari í Reykjavík: Gunnar Gunnarsson - 848 1981 - zunderman@manutd.is
Aðalsími: 477 1571
Fréttasímar 477 1750 - 477 1755
Fax 477 1756 - www.agl.is
Sigurjón Bjarnason endurskoðandi á Egilsstöðum bloggar
um skattamál á heimasíðu Skrifstofuþjónust Austurlands,
www.skraehf.is
klippan
Blogg
Tekjur 0 kr. -
tekjuskattur 1,5 millj. kr.
Eins og áður hefur komið fram í skattabloggi heimila skattalög álagningu
tekjuskatts á úttektir eigenda úr einkahlutafélögum sínum, sem óheimilar
eru samkvæmt lögum um einkahlutafélög.
Beiting þessa ákvæðis hefur ekki verið algeng frá setningu þess, en nú virð-
ast skattstjórar hafa tekið upp þann hátt að beita því að fullri hörku, enda
ástæðulaust að hafa ákvæði í skattalögum, sem ekki eru í notkun.
Nú síðast hefur einstaklingi borist bréf, þar sem fyrirhuguð er skattlagning
slíkra úttekta. Væri það ekki í frásögur færandi, nema vegna þess að hann
seldi félagið á árinu 2007 og endurgreiddi þá skuld sína við það.
Nú er honum gert að greiða 36% skatt af þessum “tekjum”, sem hann hefur
aldrei fengið
Eins og áður hefur komið fram í skattabloggi heimila skattalög álagningu
tekjuskatts á úttektir eigenda úr einkahlutafélögum sínum, sem óheimilar
eru samkvæmt lögum um einkahlutafélög.
Beiting þessa ákvæðis hefur ekki verið algeng frá setningu þess, en nú virð-
ast skattstjórar hafa tekið upp þann hátt að beita því að fullri hörku, enda
ástæðulaust að hafa ákvæði í skattalögum, sem ekki eru í notkun.
Nú síðast hefur einstaklingi borist bréf, þar sem fyrirhuguð er skattlagning
slíkra úttekta. Væri það ekki í frásögur færandi, nema vegna þess að hann
seldi félagið á árinu 2007 og endurgreiddi þá skuld sína við það.
Nú er honum gert að greiða 36% skatt af þessum “tekjum”, sem hann hefur
aldrei fengið og mun aldrei fá. Vegna þessa tilviks er rétt að benda á eft-
irfarandi:
1. Í reglu reikningsskilaráðs , grein 4.2 segir: Tekjur eru að jafnaði skráðar
þegar viðskiptaaðili hefur til þeirra unnið ..... (Reglur reikningsskilaráðs
má finna á heimasíðu Félags löggiltra endurskoðenda, www.fle.is )
2. Í 90. grein skattalaga segir að rekstraraðilar skuli láta fylgja skattfram-
tali undiritaðan ársreikning í samræmi við ákvæði laga um bókhald
eða eftir atvikum laga um ársreikninga. Þessi gögn eru unnin í samræmi
við áður tilvitnaða reglu reikningsskilaráðs og tel ég að enginn eðlismunur
sé á rekstrartekjum í félagi og tekjum einstaklings.
3. Í 95. grein skattalaga segir að skatta skuli leggja á samkvæmt framtali
hans (með fyrirvara um leiðréttingu reikningsskekkna o.s.frv.)
4. Í 3. mgr. 1. tl. og í 2. mgr. 4. tl. A-liðar 7. gr. tskl. segir berum orðum að
“Til tekna sem laun teljast og lán til ....” og “Til skattskyldra gjafa teljast
lán....”
Svo virðist því sem skattyfirvöldum sé að óbreyttum lagaheimildum heim-
ilt að leggja tekjuskatt á fengin lán, sem þverbrýtur reglur um bókhald og
reikningsskil.
Nú hefur viðkomandi einstaklingur enga möguleika á að innheimta til
baka sína greiddu skuld við félagið, þar sem það er nú í annarra höndum
og meira að segja búið að sameina það öðrum tveim félögum. Hann þarf
því að greiða 1,5 milljón í tekjuskatt af tekjum sem eru kr. 0.
Það er álit mitt að þessi leið löggjafans til að koma reglu á samskipti eig-
enda við félög sín, sé með öllu ófær og væri rétt að umboðsmenn þolenda
tækju sig saman um að koma í kring lagabreytingu, þannig að öllu réttlæti
verði fullnægt.
Mjög mikilvægt er að skattalög skilgreini tekjuhugtakið í samræmi við
góða reikningsskilavenju.
Mér er einnig mikil spurn hvort að ólögmætt atferli, sem lengi hefur verið
stundað án sýnilegs eftirlits, sé unnt eða réttlætanlegt að stöðva, með svo fyrir-
varalausum aðgerðum, sem skattyfirvöld hafa nú gripið til. Vísa ég meðal
annars til meðalhófsreglu stjórnsýslulaga því áliti mínu til stuðnings.