Austurglugginn


Austurglugginn - 10.04.2008, Qupperneq 7

Austurglugginn - 10.04.2008, Qupperneq 7
 Fimmtudagur 10. apríl AUSTUR · GLUGGINN 7 Á föstudag afhenti Ingunn Gunnlaugsdóttir, formaður Kvenfélagsins Hlífar í Breiðdal heilsugæslustöðinni á Breiðdalsvík gjafabréf. Gjafabréfið innihélt andvirði 188 þúsund krónur fyrir hljóðbylgjutæki af gerðinni Soniactor 740. Hljóðbylgjutækið mun verða notað á heilsugæslustöðinni við sjúkraþjálfun, og er mikil framför að fá slíkt tæki til notkunar. Til Breiðdalsvíkur kemur sjúkraþjálfari einu sinni í viku og tekur á móti sjúk- lingum. Það var Auðbergur Jónsson héraðslæknir Djúpavogslæknishéraðs sem veitti tækinu móttöku fyrir hönd heilsgæslunnar. Kári Ólason á Egilsstöðum rekur verktakafyrir- tækið Héraðsfjörð ehf. Í vetur festi Kári ásamt fleirum kaup á húsnæði því sem hýsti Trésmiðju Fljótsdalshéraðs. Um er að ræða stóra lóð og stórt húsnæði. Í húsnæðinu var staðsett húseiningaverk- smiðja auk skrifstofu- álmu. Auk þess var til staðar á lóðinni fokheld skemma. Undanfarna mánuði hefur Kári og starfsmenn hans látið hendur standa fram úr ermum. Skemman sem áður var fokheld er nú orðið að vistlegu, hlýju atvinnuhúsnæði sem hýsir starfsemi Héraðsfjarðar ehf. Austurglugginn tók hús á Kára og starfsmönnum hans á dögunum. Þar unnu þeir hörðum höndum við samsetningu á einingum. “Já, það má segja það að við séum byrjaðir að framleiða húseiningar á nýjan leik hér í trésmiðjunni. Það eru engin stór áform uppi, en við getum framleitt upp í pantanir sem berast. Þessi verksmiðja er fyrir hendi og öll aðstaða góð, það er sjálfsagt að nýta þá kosti sem húsnæðið hefur til góðra verka.” segir Kári. Hann segir að nú sé unnið að því að skipta húsnæðinu niður þannig að úr því fáist góð og hagkvæm nýt- ing. “Nú erum við að vinna að því að skipta því húsnæði sem snýr að götunni niður í fjóra litla hluta til atvinnustarfsemi. Okkur hafa bor- ist þónokkrar fyrirspurnir um hús- næði og þarna ætlum við að leigja út húsnæði til smárrar atvinnustarf- semi.” segir Kári Ólason verktaki á Egilsstöðum hress að vanda. Góðir hlutir að gerast í gömlu Trésmiðjunni Einingaframleiðsla hafin á ný Kári og starfsmenn eru byrjaðir að framleiða húseiningar í gömlu Trésmiðjunni. Kári sýnir okkur inn í skemmuna sem búið er að gera að góðu og hlýlegu atvinnuhús- næði undir verktaka- starfsemi. Frá afhendingu gjafar. Ingunn Gunnlaugsdóttir afhendir Auðbergi Jónssyni héraðslækni hljóðbylgjutækið. Fyrir aftan f. v. Hanna Ingólfsdóttir, Kristrún Gunnlaugsdóttir, Martha Aðalsteinsdóttir, Sigurbjörg Erlendsdóttir, Guðríður Gunnlaugsdóttir og Kristín Skúladóttir. Breiðdalshreppur Kvenfélagið Hlíf gefur hljóðbylgjutæki Dynskógum 4, Egilsstöðum Hef hafið störf í Hárhöllinni, Guðrún Ísaksdóttir Verið velkomin, starfsfólk Hárhallarinnar!

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.