Austurglugginn


Austurglugginn - 10.04.2008, Qupperneq 9

Austurglugginn - 10.04.2008, Qupperneq 9
 Fimmtudagur 10. apríl AUSTUR · GLUGGINN 9 Staðan í Íslands- mótinu í Snjókrossi: Keppendur og stig til íslands- meistara Meistaraflokkur 24 Jónas Stefánsson 333 29 Steinþór G. Stefánsson 307 7 Reynir H. Stefánsson 305 154 Ásgeir Frímannsson 288 132 Sæþór Sigursteinsson 242 5 Alexander V. Kárason 58 54 Helgi Reynir Árnason 50 173 Fannar Magnússon 44 Sportflokkur 85 Baldvin Þór Gunnars. 330 162 Ármann Ö. Sigursteins. 289 112 Páll Snorrason 281 700 Gestur K. Jónsson 232 43 Jón Geir Friðbjörnsson 222 690 Kristófer Finnsson 193 270 Valdimar Þórðarson 192 18 Hjalti B. Bjarkason 160 281 Guðmundur Skúlason 119 379 Tryggvi F. Valdimarsson 96 188 Guðjón Ármannsson 61 77 Ævar Freyr 47 802 Pálmi G. Baldursson 38 13 Bjarki Þór Halldórsson 36 Unglingaflokkur 670 Bjarki Sigurðsson 369 430 Hafþór Ágústsson 332 44 Árni Ásbjarnarson 298 84 Andri Þór Eyþórsson 257 108 Sigþór Hannesson 115 26 Arnar Gunnarsson 92 222 Haukur Sigurgeirsson 31 Kvennaflokkur 12 Vilborg Daníelsdóttir 337 19 Berglind Ó. Guttormsd. 327 995 Hulda Þorgilsdóttir 239 342 María S. Ingadóttir 230 350 Vibeke S. Kristinsdóttir 211 117 Hafdís Svava 66 590 Halla Berglind 62 611 Guðný Ó. Gottliebsd. 45 35 ára og eldri 8 Hákon G. Hákonarson 282 55 Freyr Aðalgeirsson 269 47 Þór Kjartansson 262 454 Sigurður R. Sigþórsson 218 66 Birgir Guðbjartsson 112 195 Ágúst Þór Bjarnason 50 177 Jóhannes Sveinbjörns. 38 342 Stefán Gunnarsson 0 Keppt er í kvennaflokki, unglinga- flokki, sportflokki, 35 ára og eldri og meistaraflokki en þar eru hröðustu ökumennirnir með mestu reynsl- una. Mótið er alþjóðlegt og fær sigurveg- arinn í meistaraflokki þátttökumiða sem gefur honum keppnisrétt á X-games keppninni sem er haldin Bandaríkjunum árlega og er stærsta Jaðarsportsmót heimsins. Undarfarin ár hafa útlendingar komið víðsvegar að úr heiminum og hirt þennan miða með flottum akstri. Á síðasta ári kom enginn annar en heimsmeistarinn sem er frá Svíþjóð og árið áður komu tveir Kanadamenn sem bitust um 1. sætið. Á þessu ári verður engin breyting þar á og munu eflaust koma margir af flottum ökumönnum utanúr heimi. Íslendingarnir munu berjast við þá og án efa færa áhorfendum mikla skemmtun. Þrír austfirskir snjósleðameistarar Eins og áður var komið inná er meistaraflokkurinn með hröðustu ökumennina sem eru með mestu keppnisreynsluna og eru þar þrír ökumenn frá Austurlandi sem eru í sérflokki, þeir Steinþór og Brói Stefánssynir frá Brú. Þeir eru að berjast um Íslandsmeistaratitilinn í harðri baráttu við Jónas sem kemur frá Mývatssveit. Það eru aðeins tvö stig sem skilja bræðurna að þegar eitt mót er eftir. Einnig hefur Sæþór Sigursteinsson keyrt í meistaraflokki en hann hefur ekki náð sér á strik þrátt fyrir að hafa landað íslands- meistaratitlinum í sportflokki í fyrra. Hann á án efa eftir að láta mikið að sér kveða á næstu árum enda ungur og upprennandi í sportinu. Austfirðingar í titil- baráttu í sportflokki Í sportflokki aka tveir Austfirðingar og eru þeir báðir í titilbaráttu, það eru þeir Páll Snorrason og Ármann Sigursteinsson sem er bróðir Sæþórs sem ekur í meistaraflokki. Báðir þessir ökumenn hafa verið að gera góða hluti í Íslandsmótinu og munu án efa koma sterkir inn á næsta ári. Þá munu þeir vafalaust aka í meist- araflokki, gaman er frá því að segja að aðeins 8 stig skilja þá að í baráttunni um annað sætið til íslandsmeistara. Úr þeirra baráttu verður skorið úr um helgina. Í kvennaflokki má með sanni segja að það sé búin að vera mikil keppni það sem af er vetri því átta keppn- iskonur hafa spreytt sig þrátt fyrir að þetta sé fyrsta árið sem kvennaflokk- urinn er keyrður í þessari mynd. Þar ekur Berglind Guttormsdóttir fyrir hönd Austfirðinga og stendur hún sig með stakri prýði þar sem hún trónir á toppnum ásamt Vilborgu Daníelsdóttur frá Akureyri, stelp- urnar eru harðar og eru að veita hvorri annarri mikla keppni. Forvitnilegt verður að sjá hvað gerist á næsta ári því heyrst hefur að fleiri stelpur séu að undibúa sig fyrir keppni næsta vetur. Flokkurinn þykir líklegri til að verða meira spennandi næsta tíma- bil því hraðinn hjá stelpunum er að aukast og gefa þær strákunum brátt ekkert eftir. Á mótinu í Fjarðarheiði verður líka keyrður nýr flokkur, hann kallast “old farts” eða gömlu fartarnir, þarna verða settir saman á ráslínu allir elstu sleðarnir sem finnast á Austurlandi og víðar og látnir keppast um að aka einn hring sem hraðast eða með sem mestum tilþrifum. Allir sem eiga gamlan sleða og vilja vera með er velkomið að mæta. Sleðarnir þurfa að vera eldri en 1980 árgerð. Þó má sleðinn vera nýrri ef hann er með blaðfjöðrun að framan. Þessi flokkur er ekki beint keppnisflokkur og er meira til skemmtunar og sýningar. Hillcross – spyrnt upp brekku Að snocrossi loknu verður ekið svo- kallað hillcross. Þar eru ræstir tveir sleðar í einu. Þeir spyrna í kapp upp brekku og er útsláttarfyrirkomulag á úrslitunum. Talsverð upplifun þykir að sjá og heyra 150-200 hestafla snjósleða þeytast upp brekkur með tilheyrandi hávaða, stökkum og til- þrifum. Spyrnt er þar til 3 sleðar eru eftir og eru þeir þá settir saman í einn riðil til að fá úrslit. Kristdór Þór Gunnarsson hjá Akstursíþróttklúbbnum START á Egilsstöðum hvetur Austfirðinga ein- dregið til að kíkja á keppnina á laug- ardaginn kl 14:00. “Það er ekki hægt að missa af þessari snocross veislu þar sem keppnisgræjurnar verða látnar finna fyrir því á síðasta móti vetr- arins.” Hann segir aðgangseyrir vera 1000,- kr. og frítt fyrir 12 ára og yngri og er sýningin vel þess virði. SnjóKross á Fjarðarheiði: Brúar-Bræður munu berjast Sjötta umferðin í WPSA snjókrossinu, og jafn- framt sú síðasta á árinu verður haldin í Stafdal á Fjarðarheiði neðan Skíðaskálans næstkom- andi laugardag, þar mun verða skorið úr um það hver hreppir íslandsmeistaratitilinn í þeim fimm flokkum sem eknir eru.

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.