Austurglugginn - 10.04.2008, Qupperneq 10
10 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 10. apríl
Á mánudag afhenti Steinar Gunnarsson, yfir-
hundaþjálfari ríkislögreglustjóra, embætti lög-
reglustjórans á Seyðisfirði fíkniefnarleitarhund-
inn Codie. Steinar sem er búsettur í Neskaupstað
hefur verið með Codie til grunnþálfunar undan-
farna fimm mánuði. Hann hefur lokið þjálfunar-
tíma sínum með hundinn. Nú eftir að hundurinn
hefur hlotið grunnþjálfun fer hann til áframhald-
andi þjálfunar með hundamanni. Hundamaður er
umsjónarmaður hundsins, en við tekur fjögurra til
fimm mánaða þjálfun hundamannsins með Codie.
Steinar segir hundamanninn ganga í gegnum erfitt
prógramm þar sem hann lærir um þjálfun hunds-
ins og hvernig skuli nota hann til fíkniefnaleitar.
Þessu fylgja meðal annars þung próf.
Það var Lárus Bjarnason sýslumaður á Seyðisfirði
sem veitti hundinum móttöku á lögreglustöðinni á
Egilsstöðum. Af þessu tilefni hafði Steinar hunda-
þjálfari útbúið verkefni fyrir Codie. Verkefnið
var fólgið í því að Codie átti að finna litla bréf-
snepla sem höfðu legið innan um fíkniefni.
Bréfsneplarnir voru faldir í lögreglubíl lögregl-
unnar á Egilsstöðum. Af bréfsneplunum er ákaf-
lega lítil fíkniefnalykt, svona álíka og ef fíkniefni
eru falin í eldsneytistanki eða sérlega vel inn
pökkuð að sögn Steinars.
Eftir að bréfsneplunum hafði verið fundinn staður
í lögreglubifreiðinni fékk Codie að koma inn í
lögreglustöðina á Egilsstöðum í fyrsta sinn. Þar
sýndi Steinar hundinum bílinn og benti honum á
að þefa eftir fíkniefnum. Hundurinn þefaði fram
og til baka af bifreiðinni með skipulegum hætti.
Eftir nokkra stund gaf Codie merki um að hann
hefði fundið lykt af fíkniefnum. Með því að hætta
að þefa og setja rassinn á gólfið gefur hundurinn
merki um að hann hafi fundið lykt af fíkniefnum.
Um leið og hundurinn sýndi merki fékk hann
bolta hjá þjálfara sínum sem verðlaun.
Sérvalinn erlendis
Steinar segir ekki vandalaust að finna góðan fíkni-
efnahund. Hann segir ekki aðalatriðið af hvaða
tegund hundurinn er. Aðalatriðið er að góður
hundur sé virkilega iðinn og duglegur. “Þessi
hundur, hann Codie, er gott dæmi um mjög góðan
hund. Hann er allur á iði, algjörlega ofvirkur.
Svona eiga góðir fíkniefnaleitarhundar að vera,”
segir Steinar, sem taldi að þeir hefðu skoðað vel
á annað hundrað hunda sem voru í boði áður
en Codie var valinn. “Codie er mjög efnilegur
og góður hundur, hann á vafalaust eftir að finna
talsvert af fíkniefnum,” sagði Steinar sem telur
Tollgæsluna og lögregluna búa yfir mjög færum
fíkniefnaleitarhundum, en þeir eru langt á annan
tuginn hér á landi. “Þeir hundar sem við höfum
á að skipa hér á landi eru að mér finnst óhætt að
fyllyrða á heimsmælikvarða.”
Þegar Codie hafði fundið og staðsett bréfsnepla þá
sem lyktuðu af fíkniefnum gat Lárus Bjarnason,
sýslumaður, veitt hundinum móttöku. Enda hafði
hann sannað gildi sitt fyrir viðstöddum. Við þetta
tækifæri kom sýslumaður sérstökum þökkum á
framfæri því kaup á hundinum voru fjármögnuð
með gjafafé. Hann sagði marga hafa komið að því
að gera mögulegt að kaupa og halda hundinn. Hann
vildi skila þökkum til dómsmálaráðuneytis, fjár-
málaráðuneytis, ríkislögreglustjórans, Tollstjórans
í Reykjavík, embætti lögreglustjórans á Eskifirði,
Frímúarareglunnar á Íslandi, Lionshreyfingarinnar
á Íslandi, Landsvirkjun og Fljótsdalshéraði.
Löggæsla og forvarnir
Fíkniefnaleitarhundur
afhentur sýslumanni
Steinar sýndi annan efnilegan hund sem hann er með í þjálfun
sem er ekki síður efnilegur.
Lárus Bjarnason, sýslumaður, tekur við
Codie frá Steinari Gunnarssyni yfir-
hundaþjálfara Ríkislögreglustjóra.
Steinar og Codie, í blíðu og stríðu.