Austurglugginn - 10.04.2008, Qupperneq 12
Verslið þar sem
úrvalið er…
…allt í einni ferð
Opið
mánud. - föstud. 9-19
laugardaga 10-18
sunnudaga 12-18 EGILSSTÖÐUM
EGILSSTÖÐUM
Tóti segir
Þetta minnir mig á
kvikmyndahátið í
Rússlandi sem ég
sigraði.
Opið 8:00 - 23:30
alla daga
Ávallt í alfaraleið...
verið velkominn
✗
✗
Meira í leiðinni!
Egilsstöðum / Sími 470 1235 / Fax 470 1239 www.khb.is
Kvikmynda – og vídeólistahátíðin
700IS Hreindýraland fagnar, þriðja
árið í röð, vel heppnaðri hátíð. Um
600 manns mættu á hátíðina í ár
sem hófst með formlegri opnun
laugardaginn 29. mars í menningar-
setrinu Sláturhúsinu á Egilsstöðum.
Á opnuninni var m.a. boðið upp
á tónlistargjörninginn Hanaegg
sem er samstarfsverkefni Þuríðar
Jónsdóttur, Ólafar Nordal og
Ásgerðar Júníusdóttur og graffíti-
verk með vídeóinnsetningu, en höf-
undar þess eru Sigrún Lýðsdóttir
og Tom Goulden. Einnig var form-
lega opnuð sýning á þeim tæplega
70 verkum sem voru valin úr fjölda
innsendra verka. Verðlaun voru veitt
á opnunni en þau hlutu þjóðverjinn
Max Hattler fyrir verk hátíðarinnar
og Þórður Grímsson fyrir íslenska
verk hátíðarinnar.
Námskeið og
lokahátíð á Eiðum
Mikið var um að vera vik-
una sem hátíðin stóð yfir og
má þar nefna rússneska kvik-
myndadagskrá, sýningar á
Skriðuklaustri, Á Hreindýraslóð
og í Menningarmiðstöð
Hornafjarðar. Lokahóf 700IS var
síðan haldið á Eiðum en það var
einnig uppskeruhátíð listnema
frá LHÍ í Reykjavík, Vesteralen í
Noregi, Arizona í Bandaríkjunum
og Manchester á Englandi auk
nemenda frá framhaldsskólum
á Austurlandi. Listnemendurnir
höfðu eytt viku saman á Eiðum þar
sem þau tóku þátt í fjölbreyttu og
krefjandi námskeiði í boði 700IS,
yfirskrift námskeiðsins var “leikur á
mynd” (/performance on camera/)
og lauk námskeiðinu með sýningu
á verkum nemendanna sem öll voru
tekin upp á Austurlandi. Hátíðinnni
var síðan slitið með dansi og fjöri
fram á nótt við undirleik hljóm-
sveitarinnar Miri og komu einnig
fram VJ/DJ listamennirnir Ívar og
Garðar.
700IS – Vonum framar
Verk Sigrúnar Lýðsdóttur og Tim Goulden var sérstaklega hannað fyrir 700IS 2008.
Úr verki Max Hattler, Collision, sem valið var verk hátíðarinnar.