Austurglugginn


Austurglugginn - 18.02.2021, Qupperneq 2

Austurglugginn - 18.02.2021, Qupperneq 2
2 Fimmtudagur 18. febrúar AUSTUR · GLUGGINN Talsvert var um aurskriður, krapaflóð og snjóflóð á Austfjörðum um síðustu helgi í kjölfar úrkomu og leysinga. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var hið stærsta snjóflóð úr Sörlagili, ofan munna Norðfjarðarganga í Fannardal. Það er þekkt flóðasvæði og stöðvaðist flóðið ofan varnarmannvirkja. Við bæinn Hjarðarhlíð í Skriðdal hrifsaði krapaflóð með sér rúllustæðu sem stóð þar við hlöðu skammt frá bænum og skemmdi hlöðuna lítillega. Rúllustæðan tvístraðist og lentu um 20 rúllur í eða við ána. Bergþór Steinar Bjarnason, bóndi, segir um 15 rúllur hafa skolast burt þegar áin ruddi sig. Við Hellisheiði horfðu starfsmenn Landsnets á snjóflóð falla á sunnudag. Þeir hugðust fara til viðgerða á Vopnafjarðarlínu sem skemmdist um nóttina. Varaafl var keyrt á staðnum þess í stað. Hjá Veðurstofunni voru að auki skráð ofanflóð á Fagradal, í utanverðum Reyðarfirði, í Fljótsdal, Eskifirði, Seyðisfirði og Fáskrúðsfirði. Flest flóðanna féllu seint á sunnudag og aðfaranótt mánudags. FRI Vinnsla hófst á loðnu fyrir Japansmarkað hjá austfirskum fiskiðjuverum í lok síðustu viku. Fyrsti farmurinn kom með norska skipinu Steinevik til Fáskrúðsfjarðar aðfaranótt föstudags. Þau tíðindi hreyfðu við íslensku skipunum sem létu úr höfn skömmu síðar. Beitir kom til Norðfjarðar á þriðjudagsmorgun með 900 tonn sem fengust í fjórum köstum í Meðallandsbugtinni. Eitt kastið skilaði 500 tonnum. „Þetta er fínasta loðna sem við erum með. Þetta er 40% hrygna, 13-14% hrognafylling og átulítil. Hér er um ekta Japansloðnu að ræða. Mér líst vel á framhaldið, það er ekkert annað í boði og gaman að loðnuveiðar skuli hafnar á ný. Nú er allur íslenski flotinn að fara af stað og þá fást betri upplýsingar um hvernig loðnan gengur,“ sagði Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar. Fulltrúar japanskra loðnukaupenda eru á svæðinu og fylgjast grannt með gangi mála en Japanir vilja minnst 13% hrognafyllingu. Norsku skipin hafa verið að veiðum úti fyrir sunnanverðum Austfjörðum en þau eru að klára kvóta sinn. Tíminn sem þau hafa til veiða er knappari en sá sem skip Íslendinga, Grænlendinga og Færeyinga hafa. Þau biðu uns fréttir bárust af hrognafyllingunni en tóku þá stefnuna í Meðallandsbugtina og hafa haldið sig þar síðan. FRI/GG Sveitarfélagið Fjarðabyggð virðist ekki ætla að hvika frá áformum sínum um að rífa húsin að Strandgötu 98 á Eskifirði, rauðmáluð braggahús sem áður hýstu fiskverkun Sporðs, þrátt fyrir mótmæli íbúa og Minjastofnunar. Um 330 einstaklingar skráðu nafn sitt á undirskriftalista þar sem áformunum var mótmælt og Minjastofnun skilaði áliti þar sem mælst var til þess að húsunum yrði þyrmt þar sem þau væru bæði mikilvæg fyrir atvinnusögu bæjarins, fyrir ásýnd hverfisins og hefðu tilfinningalegt gildi fyrir bæjarbúa. Í bókun menningar- og nýsköpunarnefndar Fjarðabyggðar er málflutningi stofnunarinnar mótmælt harðlega. Nefndin hafnar því að húsin, sem byggð eru um 1950, séu skyld öðrum húsum í nágrenninu og þar með hluti af heild. Nefndin telur mikilvægt að varðveita atvinnusögu byggðarinnar en það verði ekki gert með að vernda allt atvinnuhúsnæði og hamla eðlilegri þróun. Nefndin mótmælir einnig fullyrðingu í áliti Minjastofnunar um að húsunum hafi verið vel við haldið en í ástandsskýrslu framkvæmdasviðs sveitarfélagsins segir að húsinu séu í mjög lélegu ástandi og uppfylli illa kröfur nútímans. Því sé hvorki viðgerð né endurbygging fýsilegir kostir. Bæði menningarnefndin og eigna-, skipulags – og umhverfisnefnd Fjarðabyggðar eru sammála um að hvika ekki frá áður útgefnu leyfi til að rífa húsin. GG Sveitarfélögin á Austurlandi taka sjálf yfir verkefni Skólaskrifstofu Austurlands frá og með næsta skólaári. Viðræður standa nú yfir hvernig staðið verði að yfirfærslu verkefnanna. Breytingarnar hafa átt sér nokkurn aðdraganda en bæði Fljótsdalshérað og Fjarðabyggð hafa síðustu ár skoðað möguleika á að taka sjálf að sér þjónustu skrifstofunnar. Málið var meðal annars skoðað í aðdraganda tilurðar Múlaþings og fylgt áfram eftir að sveitarfélagið varð til. Bæði Gauti Jóhannesson, forseti sveitarstjórnar Múla- þings og formaður stjórnar Skólaskrifstofunnar og Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segja markmiðið að efla þjónustuna. „Þótt talið sé að hægt sé að bæta hlutina þýðir það ekki að það sem fyrir er sé slæmt. Okkar hugur stendur til að bjóða eins góða þjónustu og mögulegt er og við erum að vinna í því. Það verður ekki ítrekað nóg að þetta er viðkvæm og mikilvæg þjónusta. En þetta er engin bráðaaðgerð heldur hefur hún átt sér langan aðdraganda,“ segir Gauti. „Við erum ekki að breyta þjónustunni heldur rekstrarforminu og við vinnum það með Múlaþingi og hinum sveitarfélögunum,“ segir Jón Björn. Hann bætir við að breyting á Skólaskrifstofunni sé eðlileg afleiðing sameiningar sveitarfélaga. Skólaskrifstofan varð til árið 1996 eftir að grunnskólinn færðist yfir til sveitarfélaganna. Þá voru sveitarfélögin á Austurlandi yfir 20 talsins en eftir tilurð Múlaþings í haust eru þau fjögur. GG Vinnsla loðnu fyrir Japansmarkað hafin Ofanflóð eftir leysingar Standa við niðurrif Rauðu bragganna Sveitarfélögin taka yfir verkefni Skólaskrifstofu Austurlands Húsin að Strandgötu 98b. Mynd: Áhugahópur um verndun Rauðu bragganna Við Hjarðarhlíð. Mynd: Bergþór Steinar Bjarnason Skriða við Landsenda á Borgarfirði. Mynd: Eyþór Stefánsson Fulltrúar japanskra kaupenda fylgjast grannt með. Mynd: GG

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.