Austurglugginn


Austurglugginn - 18.02.2021, Side 4

Austurglugginn - 18.02.2021, Side 4
4 Fimmtudagur 18. febrúar AUSTUR · GLUGGINN Vinstrihreyfingin – grænt framboð varð í vikunni fyrst flokka í Norðausturkjördæmi til að velja forustusveit sína á framboðslistann í komandi þingkosningum. Flokkarnir fylgja síðan hver af öðrum í kjölfarið. Óli Halldórsson, starfsmaður Þekkingarnets Þingeyinga og sveitarstjórnarfulltrúi í Norðurþingi, varð efstur í kjörinu. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, sitjandi þingmaður og formaður þingflokks VG hreppti annað sætið. Jódís Skúladóttir, lögfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi varð efst Austfirðinga í þriðja sætinu en Vopnfirðingurinn Kári Gautason varð fjórði. Framboðsfrestur hjá Framsóknar- flokknum rann út um helgina. Þar verður kosið með póstkosningu um sex efstu sætin. Kjörið hefst 1. mars og stendur yfir út mánuðinn. Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður frá Fáskrúðsfirði, og Ingibjörg Ólöf Isaksen, bæjarfulltrúi á Akureyri, berjast þar um fyrsta sætið. Mjótt er á mununum milli þeirra, samkvæmt heimildum Austurgluggans. Píratar eru einnig komnir af stað en þar er sama aðferð notuð fyrir landið allt. Opið er fyrir framboð til 3. mars. Prófkjörið sjálft hefst nokkrum tímum eftir að framboðsfresturinn rennur út og stendur til 13. mars. Einar Brynjólfsson, fyrrum þingmaður, hefur lýst yfir framboði í fyrsta sætið. Línur skýrast í mars Kjördæmisráð Samfylkingarinnar fundaði í lok janúar. Þar var bæði kosin ný stjórn þess og ákveðið að stilla upp á listann. Ráðið hefur óskað eftir tilnefningum um fólk sem áhuga hefur á að taka sæti á listanum. Frestur til að skila inn tilnefningum er til 28. febrúar. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, sem skipaði annað sætið síðast, hefur lýst því yfir að hún gefi ekki kost á sér aftur. Albertína fór inn sem jöfnunarþingmaður í síðustu kosningum en miðað við gengi flokksins í könnunum ætti annað sætið á framboðslistanum að vera líklegt þingsæti. Hjá Sjálfstæðisflokknum stendur til að halda rafrænan aðalfund kjördæmisráðs í mars. Þar verður ákveðið hvaða aðferð verður notuð við að velja á lista. Að sögn Kristins Árnasonar, formanns ráðsins, hafa sóttvarnatakmarkanir áhrif á hvaða leið verður valin og ekki líkur á að málið liggi ljóst fyrir fyrr en í lok mars. Kristján Þór Júlíusson, ráðherra og oddviti flokksins, hefur ekki gefið út hvort hann sækist eftir endurkjöri. Hjá Miðflokknum skýrast málin að loknum aðalfundi kjördæmisfélags, þar sem kjörstjórn verður kosin. Samkvæmt lögum flokksins má velja milli uppstillingar eða kosningar um efstu fimm frambjóðendur. Nýju flokkarnir væntanlega síðar á ferðinni Landshlutaráð Viðreisnar ákveður hvernig valið er á framboðslista í hverju kjördæmi fyrir sig. Sú vinna stendur yfir hjá landshlutaráðinu í kjördæminu en til þessa hefur flokkurinn alfarið haldið sig við uppstillingar. Flokkur fólksins stillir upp á lista sína í öllum kjördæmum. Leit að frambjóðendum er hafin og segir Baldvin Örn Ólason, verkefnastjóri hjá flokknum, hana ganga vel en óvíst sé enn hvenær hægt verði að kynna listana. Sósíalistaflokkurinn undirbýr framboð um allt land. Verið er að móta áherslurnar og síðan taka kjörnefndir, sem valdar eru með slembivali úr félagatali, til við að raða á listana. Því verki á að vera lokið í síðasta lagi fyrir 1. maí. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hefur fengið úthlutað listabókstafnum O fyrir kosningarnar. Leiðtogi hans, Guðmundur Franklín Jónsson, hefur í fjölmiðlum sagt að bæði stefnumál og frambjóðendur flokksins komi fram eins seint og hægt er. GG Austurglugginn - Fréttablað Austurlands // Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir // S: 477-1750 • Ritstjórn: Gunnar Gunnarsson ritstjóri og áb.m: gunnar@austurfrett.is • Friðrik Indriðason blaðamaður: frett@austurglugginn.is • Auglýsingar: Stefán Bogi Sveinsson: auglysing@austurglugginn.is • Áskriftir: Stefán Bogi Sveinsson: askrift@austurglugginn.is • Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf. • Umbrot og prentun: Héraðsprent Leiðari Kosningaár í Norðausturkjördæmi Línur eru lítillega teknar að skýrast í framboðsmálum í kjördæminu fyrir þingkosningarnar í lok september. Úrslit úr fyrsta forvalinu benda til þess að baráttan verði hörð og átakalínur innan flokkanna margslungnar. Það sætir alltaf tíðindum þegar sitjandi þingmaður verður undir í baráttunni og þannig var þegar Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, formaður þingflokks VG, varð undir í baráttu við nýliðann Óla Halldórsson. En fleira sætir tíðindum í valinu. Til dæmis náði varaþingmaðurinn og ritari flokksins, Ingibjörg Þórðardóttir úr Neskaupstað, ekki inn í efstu fimm sætin en Jódís Skúladóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi varð þriðja. Framundan er forval hjá Framsóknarflokknum. Þar keppast Ingibjörg Ólöf Isaksen frá Akureyri og Líneik Anna Sævarsdóttir frá Fáskrúðsfirði um fyrsta sætið. Línurnar eru óskýrari hjá öðrum framboðum sem eru skemur á veg komin. Þó er líklegt að þingsæti sé í boði hjá Samfylkingunni eftir að Albertína Elíasdóttir ákvað að halda ekki áfram og beðið er eftir hvað Kristján Þór Júlíusson gerir hjá Sjálfstæðisflokki. Kosið hefur verið í Norðausturkjördæmi síðan 2003. Þá leið gamla Austurlandskjördæmi undir lok, Hornafjörður fór yfir í Suðurkjördæmi en restin sameinaðist í raun Norðurlandi eystra. Eyjafjarðarsvæðið, einkum Akureyri, vegur langþyngst í mannfjöldasamsetningu kjör- dæmisins. Því er eðlilegt að flokkarnir vilji fulltrúa þaðan ofarlega. Miðað við samantekt Austurgluggans fyrir síðustu tvær kosningar er dreifingin milli frambjóðenda eftir búsetu nokkuð jöfn. Þó má merkja vissa tilhneigingu, Akureyringar hafa bæði verið uppistaðan í oddvitasætum sem og frambjóðendum almennt meðal nýrri framboða. Hjá fjórflokknum hefur dreifingin verið meiri, enda byggja þeir á nokkuð föstu flokksskipulagi þar sem reynt er að tryggja aðkomu úr mismunandi héruðum. Þótt frambjóðendur lýsi allir yfir vilja til að þjóna kjördæminu á víðum grundvelli er það alltaf svo að fólk tengist best sínu nærumhverfi. Austfirðingar þurfa að tryggja sinn hag á þingi áfram. Nú er til dæmis ljóst að fjórðungurinn kemst ekki að í líklegum þingsætum VG og spurningin er hvort Austfirðingar, eða aðrir, verði sáttir við að báðir þingmenn Sjálfstæðisflokksins komi frá Akureyri. Þannig var staðan hjá Samfylkingunni líka, Austfirðingar verða að gera alvöru tilkall til annars sætisins þar nú. Austurland hefur átt tvo þingmenn á kjörtímabilinu, báðir hafa setið fyrir Framsóknarflokkinn. Væntanlega vilja önnur svæði koma sínu fólki þar að, eins og framboð Ingibjargar í oddvitasætið ber með sér. Hafi hún betur gæti staðan orðið sú að þrír af fjórum oddvitum fjórflokksins verði frá Akureyri, í versta falli missa þeir af tveimur efstu sætunum hjá framboðunum líka. Þá á Miðflokkurinn tvo fulltrúa í kjördæminu. Annar þeirra, formaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hafði lengi lögheimili á Héraði en hefur flutt það í Garðabæ. Ekki er komið í ljós hvort hann færi sig en hinn þingmaður flokksins, Anna Kolbrún Árnadóttir, er Akureyringur. Í grófum dráttum hefur mátt skipta kjördæminu landfræðilega í fjóra eða fimm hluta. Akureyri, Tröllaskaga, Eyjafjörð, Þingeyjar- sýslur og Austurland. Að auki er ýmis barátta um málefni, kynslóðir og kyn við val á frambjóðendum. En Austfirðingar hafa væntanlega hag af því að hafa sannarlega sitt fólk á Alþingi. Það gerist ekki af sjálfu sér. GG Flokkarnir velja frambjóðendur Stjórnmál

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.