Austurglugginn


Austurglugginn - 18.02.2021, Qupperneq 8

Austurglugginn - 18.02.2021, Qupperneq 8
8 Fimmtudagur 18. febrúar AUSTUR · GLUGGINN Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur aðkomu að 28 nýjum íbúðum sem eru annað hvort nýlega tilbúnar eða munu rísa á Austfjörðum á næstu misserum. Helmingur þeirra verður á Seyðisfirði. Forstjóri stofnunarinnar segir uppsafnaða þörf fyrir nýtt húsnæði hafa verið víða um landið. Í byrjun mánaðarins var undirritað samkomulag um aðkomu Bríetar, leigufélags á vegum stofnunarinnar, að byggingu sex íbúða á Seyðisfirði. Áður var búið að semja um aðkomu HMS að átta íbúðum þar fyrir 55 ára og eldri. Að auki hefur ýmist stofnunin sjálf eða Bríet keypt tvær nýjar íbúðir á Vopnafirði og komið að uppbyggingu fjögurra íbúða fyrir fatlaða á Egilsstöðum, fjögurra íbúða á Borgarfirði, tveggja íbúða á Fáskrúðsfirði og tveggja íbúða á Djúpavogi. „Stofnunin starfar náið með sveitarfélögum um allt land. Við unnum með þeim að gerð húsnæðisáætlana til að kortleggja íbúðaþörfina og svo setti félagsmálaráðherra af stað tilraunaverkefni með nokkrum sveitarfélögum á landsbyggðinni. Það leiddi til úrræða eins og rýmri lána, sérstaks byggðaframlags í stofnframlagakerfinu og leigufélagsins Bríetar,“ segir Hermann Jónasson, forstjóri HMS. Uppbygging íbúðakjarna fyrir 55 ára og eldri á Seyðisfirði var til dæmis afrakstur húsnæðiskönnunar. Hún sýndi að þörf væri á íbúðum fyrir eldri íbúa sem vildu minnka við sig, sem aftur myndi leiða til þess að stærra húsnæði fyrir fjölskyldur myndi losna. Lítil uppbygging áratugum saman Hermann segir stöðuna vissulega misjafna milli byggðarlaga en þó séu ákveðnir þættir áþekkir frá einum stað til annars. „Það er rauður þráður að lítil uppbygging hefur verið síðustu áratugi. Því er þörfin uppsöfnuð. Samantekt á húsnæðisáætlunum sveitarfélaganna sýnir að þörf er á minni og hagkvæmari íbúðum.“ Leigufélagið Bríet er í eigu sjóðsins og leigir út íbúðir á landsbyggðinni. Það er ekki rekið í hagnaðarskyni og er því leigutekjunum aðeins ætlað að standa undir rekstrarkostnaði. Hermann bendir á það sem lykilatriði í uppbyggingu fasteignamarkaðar á landsbyggðinni, sem og samfélagsins þar. „Það eru ekki margir sem hafa lagt í að byggja húsnæði til leigu á landsbyggðinni. Við teljum að virkari leigumarkaður á landsbyggðinni styðji vel við byggðaþróun og geri fólki kleift að færa sig á milli eftir atvinnu. Það er stór ákvörðun að þurfa að flytja og kaupa eða byggja. En með leigumarkaði er hægt að fá vinnu, leigja húsnæði og ef þér líkar vel á staðnum byggirðu eða kaupir.“ Hann kveðst ekki hafa áhyggjur af árekstrum Bríetar og einkarekinna leigufélaga. „Alls ekki. Þau eru fyrst og fremst á höfuðborgarsvæðinu en þar er Bríet ekki.“ Aðgerðir til að brúa bil milli byggingakostnaðar og söluverðs Eitt af helstu vandamálum fasteignamarkaðar á landsbyggðinni hefur verið mismunur milli byggingarkostnaðar og söluverðs, það er að kostnaðurinn hefur verið það hár, eða verðið ekki nógu hátt, að ekki hefur borgað sig að byggja til að selja. HMS hefur einnig þurft að glíma við þetta vandamál sem Hermann segir að ekki verið leyst á einu bretti. „Þessi mismunur hefur leitt til þess að lítið hefur verið byggt víðast hvar um landið. Við leysum hann ekki á einu bretti en við örvum markaðinn með leigufélaginu og í gegnum lánaflokka HMS hefur almenningur aðgengi að lánsfé til að byggja fyrir sig. Við erum líka komin með sérstakan lánaflokk, Landsbyggðarlán, sem einstaklingar, sveitarfélög og félög sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni, geta sótt um. Þau eru veitt á svæðum þar sem erfitt er að fjármagna verkefni eða vaxtakjör eru mun hærri en á virkari markaðssvæðum. Hægt er að fá þessi lán greidd út á framkvæmdatíma eftir framvindu verkefna. Síðan erum við komin með hlutdeildarlánin, sem reyndar eru í boði um allt land, þar sem ríkið lánar fyrir 20% af kaupverðinu í formi eignarhalds. Þú þarft að eiga 5% útborgun en við lánum þér síðan 20% af afganginum, án afborgana á vöxtunum. Afganginn færðu hjá lánastofnun. Síðan endurgreiðirðu okkur með hlutfalli í verði húsnæðisins.“ Markaðsverðið hækkar á landsbyggðinni Annað vandamál sem bent hefur verið á er að fólk sem flytji út á landsbyggðinni ætlist til að fá húsnæði þar afar ódýrt, í raun undir markaðsvirði. Hermann segir það standa til bóta. „Ég held að það ástand hafi batnað því það hefur verið jákvæð þróun í fasteignaverði um land allt.“ Hann segir mikilvægt að reglulega séu byggðar nýjar íbúðir til að halda uppi markaðsverði. „Það sem stuðlar að hærra verði er að fasteignir séu góðar, reglulega séu byggðar nýjar eignir, leigumarkaður sé virkur og leigugjald í samræmi við kostnað húsnæðisins. Þannig myndast heilbrigður leigumarkaður sem kannski hefur ekki verið um allt land. Sums staðar hafa sveitarfélögin leigt mest, þau þurfa að eiga húsnæði fyrir félagslega notkun, en annars ættu þau sem minnst að vera í leigu. Við vonumst til að Bríet breyti þessu þegar við verðum komin vel af stað um land allt.“ GG Húsnæðismál 28 nýjar íbúðir á vegum HMS á Austurlandi Hermann Jónasson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Mynd: GG Verkefni á Austurlandi sem HMS hefur komið að, svo sem fjármagnað með stofnframlögum, sérstöku byggðaframlagi eða lánum og í gegnum Bríeti. Seyðisfjörður Hvað? Kjarni með 8 íbúðum fyrir 55 ára og eldri ásamt samverurými. Staðan? Unnið að skipulagi og hönnun. Framkvæmdir hefjist í vor. Seyðisfjörður Hvað? Sex 80-100 fm íbúðir með 3-4 svefnherbergjum, að líkindum í par eða raðhúsum. Staðan? Auglýst eftir byggingaraðilum til samstafs. Íbúðirnar verði tilbúnar í vor. Djúpivogur Hvað? Tvær 80-100 fm íbúðir með 3-4 svefnherbergjum, að líkindum í par eða raðhúsum. Staðan? Auglýst eftir byggingaraðilum til samstarfs. Framkvæmdir hefjist í vor, íbúðir tilbúnar í byrjun árs 2021. Fáskrúðsfjörður Hvað? Tvær 80-100 fm íbúðir með 3-4 svefnherbergjum, að líkindum í par eða raðhúsum. Staðan? Auglýst eftir byggingaraðilum til samstarfs. Framkvæmdir hefjist í vor, íbúðir tilbúnar í byrjun árs 2021. Borgarfjörður eystri Hvað? Fjórar íbúðir í tveimur parhúsum. Staðan? Framkvæmdir hófust í nóvember 2020 og á að ljúka innan skamms. Egilsstaðir Hvað? Fjórar íbúðir í raðhúsi fyrir fatlaða á Egilsstöðum. Staðan? Framkvæmdir hófust 2019 og er lokið. Vopnafjörður Hvað? Alls átta íbúðir í tveimur raðhúsum, af þeim keypti Bríet tvær til leigu. Staðan? Húsin voru byggð í fyrra og tilbúin að mestu fyrir áramót. Hvað er HMS að gera eystra?

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.