Austurglugginn


Austurglugginn - 18.02.2021, Síða 11

Austurglugginn - 18.02.2021, Síða 11
 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 18. febrúar 11 Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir, frá Möðrudal á Fjöllum, setti nýverið Íslandsmet fyrir æfingar sínar í listhlaupi á skautum á móti í Sviss, þar sem hún býr og æfir lungann úr vetrinum. Skautaáhuginn kviknaði á frosnum tjörnum í Möðrudal. „Ég byrjaði þar á alltof stórum skautum, sem mamma hafði átt. Ég fór í mörg pör af ullarsokkum til að tolla í þeim. Ég skautaði á frosinni tjörninni daglangt, mamma var í mesta veseni með að fá mig inn. Ég fékk síðan hokkískauta í jólagjöf frá frænku minni og þegar við fjölskyldan fluttum til Akureyrar fór ég að æfa hokkí, sem ég gerði í um það bil einn og hálfan vetur. Eitt sinn, þegar ég var að leika mér á svellinu á almenningstíma, kom þjálfarinn í listhlaupinu til mömmu og sagði að ég ætti frekar heima í listhlaupi en hokkí. Sennilega sá hún að ég hafði meiri áhuga á að skauta hratt og snúa mér í hringi heldur en elta pökkinn. Svo eftir að hafa horft á listdanssýningu spurði ég mömmu hvort ég mætti ekki prófa listskauta. Ég byrjaði í listdansinum skömmu síðar,“ segir Ísold Fönn. Hún var sex ára gömul þegar hún byrjaði í listdansinum. Rétt að verða átta ára fór hún á fyrsta alþjóðlega mótið sitt sem var haldið í Riga í Lettlandi. Ísold Fönn kveðst ekki hafa fundið fyrir aukinni pressu af að taka þátt í móti erlendis. „Ég held ég hafi ekki spáð mikið í það. Ég var búin að fara nokkrum sinnum til Reykjavíkur til að keppa. Þangað var langt að keyra. Ég hugsaði bara að það væri svipað að fara til útlanda og Reykjavíkur. Keppnin var öðruvísi að því leyti að í henni voru fleiri sterkir skautarar, einkum í eldri hópunum og fleiri starfsmenn í kringum hana en það vandist fljótt.“ Vildi fylgja þjálfaranum Ísold Fönn var fyrsta veturinn sinn í listhlaupi undir handleiðslu Telmu Eiðsdóttur en fluttist árið eftir í hóp Ivetu Reitmayerrovu, sem var yfirþjálfari hjá Skautafélagi Akureyrar. Eftir að hafa búið á Akureyri í sjö ár og hafa þjálfað Ísold helming þess tíma, ákvað Iveta að fara aftur til síns heimalands, Slóvakíu. Úr varð að Ísold Fönn elti hana þangað líka. „Ég og mamma bjuggum í Bratislava í tvö ár, 2017-19. Eftir að Iveta hætti á Akureyri fórum við að sækja æfingabúðir hjá henni út. Dvölin í Slóvakíu varð hægt og rólega meiri og meiri og við fengum okkur að lokum íbúð á leigu þar. Ég sagði mömmu að samband mitt og Ivetu væri svo gott og ég vildi ekki missa það. Meðan á flakkinu til Bratislava stóð, fékk ég tímabundið leyfi frá skólasókn í Brekkuskóla. Mér hefur alltaf gengið vel í skólanum og að mörgu leyti var þetta þægilegt. Ég var í skólanum mínum á sama tíma og slóvakísku krakkarnir voru í sínum. Við æfðum á morgnana, síðan var skóli áður en æft var aftur seinni partinn. Við æfðum vanalega sex daga vikunnar og á hverjum degi voru tvær æfingar á svellinu og ein utan þess. Við æfum stökk og tækni á ísnum en utan hans gerum við mikið af styrktaræfingum til að tryggja að vöðvarnir í kringum þá sem við notum mest séu í góðu standi.“ Tæpt ár frá vegna meiðsla Síðustu 2-3 ár hafa verið Ísold Fönn erfið vegna meiðsla. „Ég braut setubeinið og þurfti að taka mér rúmlega fjögurra mánaða hlé. Þegar ég byrjaði aftur fékk ég bakslag sem tók rúma þrjá mánuði og veturinn eftir það fékk ég beinabjúg í hæl sem tók næstum fjóra mánuði. Þetta voru því alls ellefu mánuðir í meiðslum þegar ég keppti í keppnisflokknum Advanced Novice, á aldrinum 11- 13 ára. Ég komst aftur af stað í janúar í fyrra. Endurhæfingin hefur alltaf gengið vel. Mér fannst ég alltaf fljót að komast aftur á þann stað sem ég var á fyrir meiðsli og svo lengra þegar ég byrjaði að skauta. Ég fékk mikla hvatningu og hjálp frá sjúkraþjálfaranum mínum á Akureyri, honum Helga Steinari. Svo þegar ég mátti ekki enn skauta, en mátti synda eftir einhvern tíma, fékk ég að koma á æfingar með sundfélaginu Óðni á Akureyri. Það skipti miklu fyrir mig að fá að mæta á sundæfingarnar, fá fyrirmæli og tilsögn þjálfaranna og tilheyra öðrum íþróttakrökkum aftur. Þegar maður er vanur að mæta á æfingar daglega er erfitt að þurfa að taka svona löng hlé frá íþróttinni. Það vantar svo mikið í lífið sem gefur manni gleði.“ Ísold þurfti eins og fleira íþróttafólk að gera hlé á æfingum í fyrra vegna Covid-takmarkana en hún átti ráð. „Ég gat gert styrktaræfingar og svo þegar viðraði gat ég farið út að skauta heima í Möðrudal.“ Mæðgurnar dvelja nú yfir vetrarmánuðina í Champéry í Sviss þar sem Ísold æfir hjá Stephane Lambiel og liði hans. „Eftir sjö góð ár með Ivetu ákváðum við að freista gæfunnar í nýjum slóðum. Ég fékk að fara í prufu til Stephane Lambiel rétt fyrir Covid hléið og fékk í kjölfarið inngöngu í liðið þar. Ég fann um leið að þetta voru æfingaaðstæður sem ég var ánægð með og sagði mömmu að við ætluðum að eiga heima hér! Svo byrjaði ég þar á fullu í sumar þegar Sviss opnaði eftir Covid lokun.“ Fyrst Íslendinga til að lenda tvöföldu þreföldu stökki Það var ekki nóg með að Ísold Fönn setti stigamet á mótinu fyrir jól, heldur varð hún fyrst Íslendinga til að lenda tvöföldu þreföldu stökki. Þrefalt stökk þýðir að skautarinn fer þrjá hringi í loftinu. Til að gera stökkið tvöfalt lendir skautarinn á öðrum fæti eftir fyrra þrefalda stökkið og fer strax upp í annað þrefalt. „Það er alltaf gaman að vera fyrstur til að gera eitthvað sem maður hefur unnið að lengi. Svo er eitt að geta hlutina á æfingum og svo annað að ná því á móti. Tilfinningin þegar ég lenti því loks var því ekkert smá góð.“ Skautadansarar geta ekki skipt um skoðun í loftinu, það leiðir til þess að stökkin verða hættuleg eða skrýtin. Þeir sem séð hafa skautadans þekkja að stundum verður skauturum hált á svellinu og detta jafnvel. Ísold segir það eðlilegan hluta af ferlinu. „Æfingarnar eru ekki alltaf fullkomnar, stundum dettur maður og dettur en okkur er kennt að detta þannig við minnkum líkurnar á meiðslum og getum staðið upp og haldið áfram.“ Ísold hefur verið hér á landi lungann úr febrúarmánuði. „Við reynum alltaf að koma heim á þriggja mánaða fresti, það fer eftir keppnum, skólanum eða hvort eitthvað spennandi sé að gerast heima í Möðrudal. Nú eru ekki mörg mót eftir í vetur útaf COVID, mest æfingar fyrir næsta vetur en tímabilið hefst í ágúst. Ég stefni á heimsmeistaramót unglinga og þátttöku í Junior Grand Prix mótaröðinni. Síðan eru Ólympíuleikar á næsta ári en ég verð níu dögum of ung til að geta keppt þar. Þeir verða því að bíða.“ GG Ísold Fönn við æfingar í Sviss. Mynd: Úr einkasafni Skautadansarinn sem byrjaði á frosnum tjörnum í Möðrudal Vetraríþróttir

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.