Austurglugginn


Austurglugginn - 13.07.2012, Side 12

Austurglugginn - 13.07.2012, Side 12
Hugleiðing Heimþrá Þessi pistill er skrifaður í Saudi Arabíu þar sem ég er að vinna þessa dagana. Ég er nýkominn aftur hingað út eftir þrjár vikur heima á Íslandi. Þegar þetta er skrifað er ég þjakaður af heimþrá. Langar ekkert meira en að finna hafgolu á vanga, faðma börnin mín og konu, hlusta á lóuna og drekka kaldan bjór. Ekkert af þessu er í boði þar sem ég sit núna, í víggirtu þorpi við Arabíuflóann. Heimþrá er ekki þægileg tilfinn- ing, en hún er samt ekki alslæm. Hún minnir mann nefnilega á það hvað maður á. Það er eitt- hvað sem er auðvelt að gleyma í annríki dagsins. Maður veit ekki hvað maður á fyrr en maður missir það. Og eflaust hefur maður gott af því að missa það sem maður á svona tímabundið til að minna mann á hvað maður er ríkur. Dvöl hér syðra gerir manni líka dagljóst hvað maður er heppinn að búa í landi þar sem stjórnvöld eru kjörin í lýðræðislegum kosningum og allir hafa kosningarétt. Þar sem gjáin á millri ríkra og fátækra er gil en ekki óbrúanlegt gljúfur, varið með her og trúarvaldi. Þar sem fólk getur trúað því sem það vill og tjáð sig að vild. Þar sem fólk getur lifað sínu lífi eins og það kýs, svo lengi sem það gengur ekki á rétt annarra. Þar sem karlar og konur eru jafningjar. Þar sem fólk ber almennt sæmilega virðingu fyrir umferðarreglum. Þar sem maður getur dreypt á vínglasi að loknum ströngum vinnudegi. Þar sem ekki er rusl út um allt. Þar sem hitinn er ekki óbærilegur. Þar sem maður andar ekki stöðugt að sér ryki. Íslenskt samfélag er að mörgu leyti stórfínt. Það er hollt af fara í nógu langt ferðalag til að minna sig á það. En við þurfum að standa saman um að halda í og efla það sem gerir samfélagið okkar gott. Ég vil nefnilega ekki hætta að fá heimþrá! Sigurður Ólafsson Stæk ýldulykt fannst á Reyðarf irði um síðustu helgi. Við eftirgrennslan kom í ljós að lyktin barst frá fiskeldis- poka við þvottastöð Fjarðanets og segir framkvæmdastjóri þess að farið verði „rækilega yfir þetta með þeim sem sendu pokann“. Pokinn var geymdur þar fyrir utan þvottastöðina, dragúldinn og eftir að hafa hitnað mikið í sólinni á laugar- daginn gaus upp mikil lykt sem barst svo með vindáttinni og olli talsverðum óþægindum á laugardag og sunnu- dag. Að frátöldum kvörtunum íbúa Reyðarfjarðar þá höfðu tjaldgestir á tjaldstæðinu á Reyðarfirði kvartað undan stækri ýldulykt á tjaldstæðinu og þá olli lyktin einnig talsverðum óþægindum hjá viðskiptavinum Olís. Jón Einar Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Fjarðanets, segir að pokarnir komi til þeirra frá fiskeldis- fyrirtækjum í þvott og viðhald. „Við þvoum þá í þar til gerðri þvottavél og eftir þvott fara þeir í viðgerð og við- hald á verkstæði okkar í Neskaupstað og síðan aftur í þvottastöðina þar sem þeir eru oftast litaðir með gróður- hamlandi efnum áður en þeir fara í sjó aftur“. Aðspurður að því hvers vegna lyktin hafi verið svo áberandi segir Jón Einar að fyrirtækið hafi verið að fá poka í þvott að vestan sem í var mikil skel. „Hann hefur trúlega farið beint í gám þegar hann kom úr sjó og þá fór strax að hitna í honum og hann var búinn að vera nokkra daga í gámnum þegar hann kemur til okkar.“ Jón Einar segir að Fjarðanet fari yfir þetta með viðskiptavinum fyrirtækisins enda sé enginn hagur í því að vera að flytja skel milli lands- hluta. Hann segir að Fjarðanet muni fara „rækilega yfir þetta með þeim sem sendu okkur pokann til að tryggja að þetta komi ekki fyrir aftur.“ Jón Einar bendir á að fyrirtækið sé búið að reka þvottastöðina í níu ár og „svona lagað hefur aldrei komið fyrir áður, þó svo að oft sé einhver skel í pokunum sem koma til okkar“. Helgu Hreinsdóttur, fram- kvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Austurlands, var gert viðvart á laug- ardaginn sem hafði þá samband við forsvarsmenn Fjarðanets. Hún segir að fyrirtækið hafi gert viðeigandi ráð- stafanir með því að breiða yfir pok- ann og hamla útbreiðslu lyktarinnar. Síðan verður pokinn fjarlægður þegar vindátt er hagstæð og fremur svalt. Helga segir að Heilbrigðiseftirlitinu hafi aldrei áður borist kvörtun vegna umræddrar atvinnustarfsemi en engu að síður þá eigi íbúar ekki að þurfa að þola svona óþægindi frá atvinnustarfsemi. RS Megn ýldulykt yfir Reyðarfirði Hér sést vel þegar rýkur úr úrganginum við þvottastöðina sl. laugardagskvöld. Mikil stækja kom frá f iskeldispoka að vestan. Búið að breiða yfir sökudólginn.

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.