Austurglugginn


Austurglugginn - 04.10.2013, Blaðsíða 4

Austurglugginn - 04.10.2013, Blaðsíða 4
4 Föstudagur 4. október AUSTUR · GLUGGINN BúðAReyRI 7, 730 ReyðARFjöRðUR Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Kristborg Bóel Steindórsdóttir • frett@austurglugginn.is • Fréttasími: 477 1750 Auglýsingastjóri og þjónusta við áskrifendur: Guðmundur Y Hraunfjörð • 477 1571 & 891 6484 - auglysing@austurglugginn.is Fréttaritari á Vopnafirði: Bjarki Björgólfsson s. 865 7471 - fagri15@simnet.is. útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf. • Umbrot og prentun: Héraðsprent. Ritstjóraspjall Austurskáld Kálfur er fæddur og það að haustlagi. Austurbrúar- kálfurinn sko, upplýsinga- heftið um hið stórglæsilega almenningssamgöngukerfi á Austurlandi. Ég man alveg óskaplega lítið úr æsku minni. Sumar vinkonur mínar geta þulið upp heilu bálkana úr grunnskólagöngu sinni og muna jafnvel fötin sem þær klæddust fyrstu þrjár vikurnar í öðrum bekk. Þetta þykir mér alveg einstaklega merkilegt, en efast þó á sama tíma um að ég hafi yfirhöfuð verið uppi öll þessi ár. Auðvitað man ég þó einstaka atriði. Eins og þegar Jói bróðir skar upp sparibaukinn minn og stal öllum bláu tíköllunum sem ég var búin að safna heilan vetur. Hann vantaði víst nauðsynlega pening fyrir bensíni á skellinöðruna sína blessaður. Mamma lét hann heyra‘ða og hann sá sóma sinn í því að borga mér til baka. Eins fallegt. Einnig man ég eftir ákveðinni rútuferð. Í þá daga var aðeins flugrútan á ferðinni. Einhverju sinni fórum við mamma með henni frá Stöðvarfirði. Ekki þó til móts við flug, heldur til þess að fara til tannlæknis á Egilsstöðum. Þessa ferð man ég eins og hún hafi gerst í gær, í allra mesta lagi í síðustu viku. Ég hef verið sirka sex ára. Við mæðgur vorum einar í rútunni, fyrir utan unglingsstelpu. Hún sat fremst. Ég man ég virti hana fyrir mér og fannst hún fallegri en álfadís. Ó hvað mig langaði að vera eins og hún.. Með sítt ljóst, liðað hár. Líklega af því að sjálf var ég með spegilslétt og hrafnsvart. Nema bara hvað. Á miðri leið fór stelpan á ferðina. Gekk í áttina til okkar. Stoppaði svo fyrir framan sætið hjá okkur, rétti út hendina og sagði; „Viltu sleikjó?“ Ég man ennþá hvernig sleikjóinn var. Ljósbleikur, þunnur með blómamynd í miðjunni. En hvað gerði ég? Hristi hausinn og kom ekki upp orði. Mamma reyndi að koma fyrir mig vitinu og þiggja gjöfina, en það var ekki við það komandi. Ástæðan var hvorki sú að mig langaði ekki í sleikjóinn eða hafði fyrirfram samviskubit vegna sælgætisáts á leið minni til Ragnars tannlæknis. Ég hafði aldrei séð nammi sem mig langaði meira í. Aldrei. Ástæða neitunarinnar var sú að ég var svo stjarnfræðilega feimið barn að leitun var að öðru eins. Treysti mér engan vegin til þess að segja já og þurfa þá að eiga í samskiptum um framhaldið. Aumingja álfadísin brosti bara kurteislega, dró hendina til baka og hélt aftur í sæti sitt. Þetta eru nánast einu kynni mín af almenningssamgöngum á Austurlandi. Ég á þó líklega eftir að bæta úr því, enda hef ég mannast til muna með árunum. Geymið blaðið, fyrir alla muni – hver veit hvenær þið ætlið næst að skella ykkur í ferð. Ljósm. Kormákur Máni - KOX Hrafnkell Lárusson, Austurskáld síðasta blaðs, skoraði á Svein Snorra Sveinsson að kasta fram ljóði. Sveinn gerði það með glöðu geði og sendi jafnframt með örlitla hugleiðingu. Barátta góðs og ills hefur lengi verið mér umhugsunarefni eins og í öðru óbirtu ljóði eftir mig þar sem myrkrið er þeirrar náttúru að ljósið getur ekki lýst það upp, þá tefli ég þessum andstæðum fram með ákveðna hugsun í huga: Hið vonda getur aldrei sigrað því sigur felur í sér eitthvað gott en það vonda verður alltaf vont. Sveinn Snorri skorar í framhaldinu á Arndísi Þorvaldsdóttur að koma með næsta innlegg á þessum stað í blaðinu. Hollráð Hunda Hönnu Sæl HundaHanna Við fjölskyldan vorum að fá okkur hvolp og langar til þess að hann sé áreiðanlegur þegar við köllum á hann. Hvernig getum við þjálfað upp gott innkall? Hvolpar vilja yfirleitt ólmir vera hjá manni og fara sjaldan langt en stundum gera eigendur þau mistök að ætlast til þess að hvolpurinn viti hvað „komdu“ þýðir, án þess að hafa kennt honum það. Þetta merkir að alltaf verður að segja „komdu“ þegar hvolpurinn er á leið í áttina til þín en ekki frá þér. Hann þarf að tengja orðið við það að hlaupa til þín – og ekki er verra að það bíði honum eitthvað gúmmelaði þegar hann er kominn alla leið til þín. Passaðu þig á því að ef þú verðlaunar hann fyrir að koma, þarftu að verðlauna akkúrat það, en ekki segja „komdu“ og svo „sestu” og verðlauna svo. Alltaf verðlauna um leið og hundurinn kemur. Gangi ykkur vel! ISSN1670-3561 40. tbl. - 9. árg. - 2010 - Föstudagur 15. október Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði - Verð í lausasölu kr. 450 ÞÚ ERT Á GÓÐUM STAÐ Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Mjóifjörður Neskaupstaður FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is Fréttablað Austurlands Ný og betri afgreiðsla sig um set í stærra og betra húsnæði. Er afgreiðslan opin virka daga frá 9:00-16:00. Nýja heimilisfangið er: Sími 458 8840 www.svn.is Fjölmenn mótmæli um allt Austurland. Reiði á íbúafundi á Egilsstöðum. Sjá nánar á bls. 6. Austurglugginn og Þekkingarnet Austurlands eiga samstarf um útgáfu Austurgluggans þessa viku. Í blaðinu er sérstök áhersla lögð á þekkingarsamfélag Austurlands. Skráðu þig á póstlistann á síðunni og þú færð nýjustu tilboðin send beint til þín í tölvupósti. Skoðaðu bonus.is og nýjustu tilboðin Einungis 2 af 10 þingmönnum norðausturkjördæmis styðja óbreytt fjárlagafrumvarp. Enginn þingmaður Samfylkingarinnar. Fellir landsbyggðin ríkisstjórnina? Umfjöllun bls. 6 ISSN1670-356138. tbl. - 9. árg. - 2010 - Föstudagur 1. október Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði - Verð í lausasölu kr. 450 ÞÚ ERT Á GÓÐUM STAÐ Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Mjóifjörður Neskaupstaður FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is Fréttablað Austurlands Ný og betri afgreiðsla sig um set í stærra og betra húsnæði. Er afgreiðslan opin virka daga frá 9:00-16:00. Nýja heimilisfangið er: Sími 458 8840 www.svn.is Stórhuga blakdeild í Neskaupstað Sjá nánar á bls. 2 Sjá nánar á bls. 12 Steingrímur J. á SSA aðalfundi Skráðu þig á póstlistann á síðunni og þú færð nýjustu tilboðin send beint til þín í tölvupósti. Skoðaðu bonus.is og nýjustu tilboðin Breið samstaða SSA á Breiðdalsvík 7-6 .slb A Ð A L F U N D U R ISSN1670-3561 39. tbl. - 9. árg. - 2010 - Föstudagur 8. október ÞÚ ERT Á GÓÐUM STAÐ Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Mjóifjörður Neskaupstaður FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is Sjá nánar á bls 2. Aðalfundur Sambands ísl nskra sveitarfélaga Fréttablað Austurlands Ný og betri afgreiðsla sig um set í stærra og betra húsnæði. Er afgreiðslan opin virka daga frá 9:00-16:00. Nýja heimilisfangið er: Sími 458 8840 Skráðu þig á póstlistann á síðunni og þú færð nýjustu tilboðin send beint til þín í tölvupósti. Skoðaðu bonus.is og nýjustu tilboðin www.svn.is Sjá nánar á bls. 5. Vinavika Vopnafjarðar - fengu kveðju frá biskupi Íslands Tillögur að fjárlögum næsta árs bitna harkalega á landsbyggðinni og munu koma niður á starfsemi HSAÍtarleg yfirferð um fjárlagafrumvarpið í opnu blaðsins Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði - Verð í lausasölu kr. 450 Fer svona fyrir fjárfestingum fyrri ára í heilbrigðisþjónustu á Austurlandi? Áskriftarsími austurgluggans er 891 6484 Viltu auglýsa í Austurglugganum? Auglýsingasíminn er 891 6484

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.