Austurglugginn - 04.10.2013, Blaðsíða 7
Geymdu mig
Heildstætt samgöngukerfi sem
þjónar heilum landshluta
Strætisvagnar Austurlands (SVAust) hófu formlega göngu sína í sumar en með
þjónustunni var brotið blað í almenningssamgöngum í fjórðungnum þar sem
Strætisvagnar Austurlands eru fyrsta heildstæða almenningssamgöngukerfið
sem þjónar heilum landsfjórðungi.
Í desember á síðasta ári efndi framkvæmdastjórn SSA til hugmyndasamkeppni
um nafn og merki fyrir nýja almenningssamgöngukerfið sem var þá í burðar-
liðunum. Hlutskörpust varð Alma J. Árnadóttir, en alls bárust átta tillögur. Í
rökstuðningi dómnefndar kom m.a. fram að vinningstillaga Ölmu sameini þá
kosti að vera einföld, skýr og alþjóðleg.
Ný gjaldskrá
Með SVAust tók gildi gjaldskrá sem byggir á gjaldsvæðum. Hvert gjaldsvæði
spannar 15 km og tekur almennt fargjald mið af þeim fjölda gjaldsvæða sem
ferðast er um.
Forsagan
Leiðarkerfi SVAust hefur verið rekið í hálft annað ár sem þróunarverkefnið
Skipulagðar almenningssamgöngur á Austurlandi. Því var upphaflega hrundið
af stað af Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) og Austurbrú á grund-
velli samnings Vegagerðar ríkisins og landshlutasamtaka sveitarfélaga um
sérleyfisakstur. Grunnur kerfisins byggist hinsvegar á öflugu samgöngukerfi
Alcoa Fjarðaáls sem viðkemur starfsmannaakstri auk þess sem alþjóðlegi sam-
félagssjóðurinn Alcoa Foundation styrkir verkefnið til þriggja ára.
Rekstur leiðakerfisins byggir á þremur stoðum; sérleyfissamningum, starfs-
mannaaksti Alcoa Fjarðaáls og akstri sveitarfélaga. Við þá þjónustu sem áður
byggðist á sérleyfissamningum á milli Vegagerðarinnar og sérleyfishafa bætist
annars vegar sá akstur sem var á vegum einstakra sveitarfélaga og hins vegar
starfsmannaakstur Alcoa Fjarðaáls. Fjarðabyggð, Seyðisfjörður og Djúpivogur
hafa haft milligöngu fyrir hönd þeirra átta sveitarfélaga sem eru á Austurlandi
um samningagerð við viðkomandi akstursaðila, ásamt þeim sérsamningi sem
gerður hefur verið vegna aksturs til Borgarfjarðar eystri.
Markmið sveitarfélaganna á Austurlandi er að heildstætt kerfi í almenningssam-
göngum gegni því tvíþætta hlutverki að tengja byggðir landshlutans saman og
veita íbúum og ferðamönnum raunhæfan valkost í ferðum jafnt innan fjórð-
ungsins sem til hans og frá. Framtíðarþróun verkefnisins felst í því að bjóða
uppá tíðari ferðir auk þess að tengja inní kerfið akstur milli Breiðdalsvíkur og
Djúpavogs og frá Vopnafirði.
Nánari upplýsingar veitir Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, fulltrúi nýsköpunar og
þróunar hjá Austurbrú, netfang asta@austurbru.is.