Austurglugginn


Austurglugginn - 09.10.2009, Blaðsíða 3

Austurglugginn - 09.10.2009, Blaðsíða 3
Þriðjudaginn 13. október 2009 kl. 16:00 er boðað til fundar á Hótel Héraði, Egilsstöðum um atvinnumál. Til fundarins er boðið ráðherrum úr ríkisstjórn Íslands, fulltrúum fjár- málafyrirtækja, þingmönnum kjördæmisins, sveitarstjórnarmönnum á Fljótsdalshéraði og Austurlandi og fulltrúum frá fyrirtækjum á Fljótsdalshéraði. Fundurinn er öllum opinn og íbúar og atvinnurekendur á Austurlandi eru hvattir til að mæta. Fundarstjóri verður Eiríkur B. Björgvinsson bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði. Dagskrá: Fundarsetning: Guðmundur Ólafsson form. atvinnumálanefndar Fljótsdalshéraðs. Framsögu fl ytja: - Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og 1. þingmaður kjördæmisins eða Björn Valur Gíslason 8. þingmaður kjördæmisins. - Jón Steindór Valdimarsson frkvstj. Samtaka iðnaðarins. - Halldór Jörgensson frkvstj. Lýsingar – eða annar fulltrúi fjármálafyrirtækja. Tilefni fundarins er umræða og eftirfarandi bókun bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs: „Eins og nú horfi r er mikil óvissa um fl est mál á Íslandi. Það á ekki síst við um allar verklegar framkvæmdir, byggingariðnað, jarðvinnslu, vegagerð og skylda starfsemi. Þar er skuldsetning í erlendum lánum að kollkeyra rótgróin fyrirtæki og verkefna- staðan og framtíðin verulega óljós. Nauðsynlegt er að allir leggist á eitt og leiti leiða til að minnka óvissu og koma verkefnum af stað á nýjan leik. Næg verkefni eru fyrirliggjandi og með sameiginlegu átaki, réttri fjármögnun og öguðum vinnubrögðum er hægt að endur- reisa þennan hluta atvinnulífsins á nýjan leik.“ Sveitarfélagið Fljótsdalshérað vill leggja sitt af mörkum og leita allra leiða til þess að forða því að heil undirstöðuatvinnugrein hverfi úr landi og leggist af. Bæjarráð Fljótsdalshéraðs mun hið allra fyrsta, kalla eftir samráði hjá stoðstofnunum, atvinnulífi nu og nágrannasveitarfélög- um og boða ríkisvaldið og þingmenn, peningastofnanir og aðila vinnumarkaðarins til fundar um aðgerðir á Fljótsdalshéraði og Austurlandi.” Fundurinn hefst kl. 16:00 og reiknað með að honum ljúki milli kl. 19 og 20. Þórarinn Egill Sveinsson atvinnumálafulltrúi Fljótsdalshéraðs sími 4700 700 gsm 899 5553 netfang thorarinn@egilsstadir.is veffang www.egilsstadir.is Fundur vegna verkefna- og fjárhags- stöðu fyrirtækja

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.