Austurglugginn - 09.10.2009, Blaðsíða 1
ISSN1670-3561
Fréttablað Austfirðinga
Verð í lausasölu kr. 450
Föstudagur 9. október
40. tbl. - 8. árg. - 2009 Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði
ÞÚ ERT
Á GÓÐUM
STAÐ
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Stöðvarfjörður
Mjóifjörður
Neskaupstaður
FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is
Unga fólkið okkar á Austurlandi leggur margt fyrir sig nám í æðri listum
og hefur oft náð langt á þeim vettvangi. Birna Pétursdóttir er að stíga sín
fyrstu spor í Rose Bruford leiklistarskólanum í London, en hún byrjaði
sem barn að leika með Leikfélagi Fljótsdalshéraðs. Nánar á bls. 7.
Raðþraut með fimm gangtegundum íslenska hestsins er
ný afurð úr smiðju Mariettu Maissen og Péturs Behrens á
Höskuldsstöðum í Breiðdal. Raðþrautin er kölluð ,,Tölt in
a Box“ og má nota sem kennslu- og þjálfunartæki, nú eða
gestaþraut. Nánar á bls. 11.
Gangtegundir á teningumLeikhúsið er rammpóli-
tískur vettvangur
Nýr afgreiðslustaður
á Seyðisfirði
Shellskálinn á Seyðisfirði hefur tekið
við vöruafgreiðslu Landflutninga á
Seyðisfirði og er afgreiðslan opin
virka daga frá kl. 09.00 – 18.00.
Nýtt heimilisfang er:
Landflutningar-Samskip
Shellskálanum, Hafnargötu 2,
710 Seyðisfjörður - S.: 472 1700
Net.: landflutningar@landflutningar.is
T
in
n
a
H
al
ld
ór
sd
ót
ti
r
M
yn
d/
S
Á
T
in
n
a
H
al
ld
ór
sd
ót
ti
r
M
yn
d/
S
Á
,,Austfirðingar eru einstaklingshyggjumenn og hugsa
ekki um sig sem heild; hver er sinnar gæfu smiður, ég
bjarga mér, ég á mína eigin pumpu.“
Þetta segir Tinna Halldórsdóttir, sem gert hefur rann-
sókn á stöðu kvenna á Austurlandi, að tilstuðlan
Tengslanets austfirskra kvenna. Rannsóknin er hluti
af meistaraverkefni í félagsfræði við Háskóla Íslands.
Hún tók ítarleg viðtöl við fjórtán konur í Fjarðabyggð
og á Fljótsdalshéraði.
Tinna vinnur nú að framhaldsrannsókn á tveimur
sérlega áhugaverðum þáttum skýrslunnar, sem lúta að
ríg og klíkumyndun á Austurlandi og að konur standi
ekki með sjálfum sér til að knýja fram úrbætur á t.d.
velferðarþjónustu. Tinna segir einsýnt að samþætting
kynjasjónarmiða hafi brugðist, aldurspíramídi fjórð-
ungsins sé enn skakkur og endurnýjun skorti. Börn
á aldrinum 0-5 ára vanti, sem og fólk á aldrinum 20
til 35 ára og þá sérstaklega ungar konur.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru um margt for-
vitnilegar. Komið er meðal annars inn á búsetuskil-
yrði, heilbrigðisþjónustu, verslun og þjónustu og
takmarkaða uppskeru kvenna af uppbyggingu virkj-
unar og stóriðju.
Nánar á bls. 2.
Forvitnilegar niðurstöður
nýrrar rannsóknar um stöðu
kvenna á Austurlandi
Hver er uppskera
austfirskra kvenna?