Austurglugginn


Austurglugginn - 09.10.2009, Blaðsíða 9

Austurglugginn - 09.10.2009, Blaðsíða 9
 Föstudagur 9. október AUSTUR · GLUGGINN 9 Hart hefur verið deilt í meira en tvo áratugi um samgöngubætur í formi jarðganga á landsbyggðinni til að stytta vegalengdirnar á milli litlu sjávarþorp- anna og auðvelda heimamönnum að sækja vinnu í næsta kauptún á sem stystum tíma. Hvort sem búið er úti á landi eða á höfuðborgarsvæðinu koma samgöngubætur öllum lands- mönnum við. Í umræðu um byggða- mál og leiðir til að sporna við stöðugri fólksfækkun á landsbyggðinni hefur áhersla á byggðakjarna utan höfuð- borgarsvæðisins farið vaxandi. Samþykkt var á Alþingi í mars 2007 samgönguáætlun sem átti að gilda til 2010. Á þessum fjórum árum átti að verja um 109 millj- örðum króna til verkefna á sviði samgöngumála. Stærsti hluti fjármagnsins, um 98 milljarðar króna átti að fara til vegaframkvæmda án þess að þáverandi samgönguráð- herra, Sturla Böðvarsson, hefði lofað Djúpavogsbúum að heilsársvegur um Öxi væri á dag- skrá. Eftir kosningarnar 2007 tóku þeir gleði sína þegar þingmaður Siglfirðinga í samgönguráðuneytinu lofaði því að þessi vegur yrði lagður upp úr Berufirði yfir þetta svæði í 530 m hæð sem verður alltaf snjóþungt og illviðrasamt á veturna. Margir flutn- ingabílstjórar sem telja slysahættuna á þessari leið alltof mikla vilja frekar skoða möguleika á neðansjávargöngum undir Berufjörð. Vegna slysahættunnar sem vonlaust er að losna við í Hvalnes- og Þvottárskriðum hníga nú öll rök að því að Lónsheiðargöng verði efst á blaði. Þá verða heilsárssamgöngur milli Hornafjarðar og Djúpavogs örugg- ari. Með tilkomu neðansjávarganga undir Berufjörð, auk styttri vegganga sem leysa af hólmi hættulegan veg í Kambaskriðum, yrðu Djúpivogur, Breiðdalsvík og Stöðvarfjörður eitt atvinnusvæði. Milli Hornafjarðar og Suðurfjarðanna hverfa þá tvær slysa- gildrur sem eru Hvalnes- Þvottár- og Kambaskriður þegar vetrarsamgöngur verða öruggari. Með gerð jarðganga undir Lónsheiði, sem brýnt er að ráðast í eftir fimm til sex ár, verður stigið fyrsta skrefið til að losna við hætturnar á grjóthruni, aurskriðum og snjóflóðum. Reynslan af gerð jarðganga sannar að hér er um að ræða varanlega lausn í vega- gerð sem leysir af hólmi hættulegar brekkur í meira en 14% halla og vegi í 500 til 600 m hæð á snjóþungum svæðum. Sjálfgefið verður það ekki að Vegagerðin geti tryggt að vel upp- byggður vegur um Öxi sem er alltof illviðrasöm verði öruggur fyrir 6 til 10 metra háum snjóþyngslum í þess- ari hæð yfir sjávarmáli. Útilokað er að Vegagerðin geti tryggt að þessi vegur standist stórhertar nútímaöryggis- kröfur ESB. Á Djúpavogi og víðar á Suðurfjörðunum týna stuðningsmenn Axarvegar tölunni í hörðum deilum við andstæðinga sína sem spurt hafa hvort þessi vegur verði nú afskrifaður næstu áratugina. Á illviðrasömum svæðum þar sem hæð snjóþyngsla getur farið yfir 8 metra eiga heilsársvegir ekki heima. Nærri 800 milljóna króna tap sem varð á vetrarþjón- ustu Vegagerðarinnar á síð- asta ári vakti litla hrifningu fjárveitingavaldsins þegar ákveðið var að hætta snjó- mokstrum á svonefndum G vegum á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi. Hægt er að stíga fyrsta skrefið til að rjúfa einangrun Fjórðungssjúkrahússins við Suðurfirðina með því að grafa neðansjávargöng undir Berufjörð að loknum framkvæmdum við fyr- irhuguð Norðfjarðargöng þótt meira vanti upp á. Þarna myndu neðansjáv- argöngin stytta vegalengdina um 30 km. Án vegganga inn í Stöðvarfjörð sem ein og sér stytta vegalengdina frá Breiðdalsvík til Fáskrúðsfjarðar um 15 km rofnar einangrun Fjarðarbyggðar við Suðurfirðina aldrei að fullu. Samgöngubætur í formi jarðganga og uppbyggðir vegir í lítilli hæð yfir sjávarmáli sem stytta vegalengdirnar milli sjávarþorpanna eru ein forsendan fyrir því að heima- menn á Austurlandi búsettir utan Norðfjarðar fái greiðan aðgang að stóra Fjórðungssjúkrahúsinu. Til að heima- menn á öllu svæðinu milli Fagradals og Hellisheiðar fái líka aðgang að heil- brigðisþjónustunni í Neskaupsstað þarf að skoða möguleika á jarðganga- gerð undir Eskifjarðarheiði. Eðlilegt er að Vopnfirðingar, Seyðfirðingar og Borgfirðingar vilji líka réttláta umfjöllun. Ákveðum Lónsheiðargöng strax. Höfundur er farandverkamaður og áhugamaður um raunhæfar sam- göngubætur. Verður Axarvegur afskrifaður? Guðmundur Karl Jónsson skrifar Verði ykkur að góðu. Ég skora á Þuríði Jónsdóttur vinkonu mína og nágranna að vera matgæðingur næsta Austurglugga Humar í forrétt Sósa Ferskir ávextir í eftirrétt Fyllt grágæs í aðalrétt 500 g humar 3 msk smjör ½ tsk karrý ½ tsk paprikuduft ½ tsk salt ½ tsk ný malaður svartur pipar Cayenne pipar á hnífsoddi 1 g saffran 1 ½ dl hvítvín 2 ½ dl rjómi 5 dl gæsasoð smjör og hveiti gráðostur eftir smekk hrútaberjasulta eftir smekk 2 ½ dl rjómi salt og svartur pipar púrtvín eftir smekk S.s. jarðarber, bláber, vínber, kiwi, melónur og fleiri ávextir skornir niður og skipt niður í eftirréttaskálar. Grágæs heil Salt og svartur pipar 6-7 sneiðar beikon smjör 100 g sveppir 100 g sellerí 100 g laukur 6-8 skorpulausar brauðsneiðar 100 g salthnetur muldar smátt 50-100 g gráðostur salt og svartur pipar púrtvín ,,Á Djúpavogi og víðar á Suðurfjörðunum týna stuðningsmenn Axarvegar tölunni í hörðum deilum við andstæðinga sína sem spurt hafa hvort þessi vegur verði nú afskrifaður næstu áratugina.“ Guðmundur Karl Jónsson Dressing: 1 eggjahvíta ½ dós sýrður rjómi. 1-2 tsk agavesýróp 1-2 tsk vanilludropar Hákon Viðarsson Hákon er starfsmannastjóri Síldarvinnslunnar hf. og búsettur í Neskaupstað. Á myndinni með Hákoni er sonur hans, Hákon Huldar. Haustlegur veislumatur fyrir fjóra Hreinsið humarinn og klippið skel- ina að neðanverðu. Hitið smjörið á pönnu og steikið humarinn við mikinn hita í 3-4 mínútur ásamt kryddinu. Hellið hvítvíninu og rjómanum yfir og látið suðuna koma upp. Ef vill má þykkja sósuna með sósuþykki. Berið fram með hvítlauksbrauði. Sósan bökuð upp með smjöri, hveiti og gæsasoði. Gráðosti, hrúta- berjasultu og rjóma bætt út í ásamt púrtvíni. Saltað og piprað í restina. Eggjahvítan er stífþeytt og hinu hrært út í. Sett yfir ávextina og geymt í kæli í smástund. Beikon steikt á pönnu þar til það er orðið stökkt. Sveppir, sellerí og laukur steikt upp úr smjöri, brauðið rifið niður og blandað saman við á pönnunni ásamt gráðostinum. Beikon mulið út í og salthnetum blandað saman við. Fyllingin söltuð og pipruð eftir smekk. Púrtvínið er síðan notað til að bleyta aðeins í fyllingunni áður en hún er sett inn í gæsina og saumað fyrir. Gæsin er síðan söltuð og pipruð og elduð við 150°C í 75 mín. Borið fram með gamaldags meðlæti s.s. rauð- káli, brúnuðum kartöflum, gulum baunum o.s.frv.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.