Austurglugginn - 04.11.2021, Page 2
2 Fimmtudagur 4. nóvember AUSTUR · GLUGGINN
Átján fyrirtæki af Austurlandi eru á
lista Creditinfo yfir framúrskarandi
fyrirtæki fyrir árið 2021. G.
Skúlason í Neskaupstað hefur verið
þar síðan byrjað var að taka listann
saman. Austurtak á Egilsstöðum er
nýtt á listanum.
Af fyrirtækjunum átján eru flest á
Egilsstöðum eða helmingurinn. Það
stærsta er hins vegar í Neskaupstað,
Síldarvinnslan, sem er í sjötta sæti
á landsvísu. Þrjú önnur fyrirtæki
eru frá Norðfirði. Að auki eru tvö
fyrirtæki frá Reyðarfirði, Eskifirði
og Fáskrúðsfirði.
Alls eru 853 fyrirtæki á listanum,
eða um tvö prósent allra virkra
fyrirtækja í landinu. Þetta eru tíu
fleiri fyrirtæki en í fyrra. Til að
komast á listann þurfa fyrirtækin að
standast kröfur um stöðugan rekstur
undanfarin þrjú ár. Fyrirtæki geta
bæst á listann frá kynningu hans þar
til árið er liðið.
Samsetning listans getur breyst
nokkuð á milli ára, en til að teljast
til Framúrskarandi fyrirtækja
þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng
skilyrði um stöðugan rekstur þrjú
ár aftur í tímann. Eiginfjárhlutfall
þarf að hafa verið að minnsta kosti
20%, rekstrartekjur að lágmarki
50 milljónir, ársniðurstaða jákvæð,
rekstrarhagnaður og eignir ekki
undir 100 milljónir þennan tíma.
GG
Stefnt er á að framkvæmdir við nýja
fráveitu á Djúpavogi hefjist í vor.
Áætlað er að framkvæmdir kosti um
300 milljónir króna og verði unnar
í áföngum næstu 4-5 ár. Nýverið
fékkst styrkur í verkið upp á rúmar
28 milljónir króna úr fiskeldissjóði
sem nýtist til að koma fyrst áfanga
í framkvæmd.
Sveitarstjórn Djúpavogshrepps
hóf undirbúning verksins áður en
það sameinaðist Múlaþingi fyrir
rúmu ári. Sveitarstjórnin taldi
fráveituna forgangsverkefni því
skólp fer í dag óhreinsað út í sjó.
HEF veitur tóku síðan við verkinu
og var það á útfært frekar. Áætlanir
nú miðast við að öflugra hreinsivirki
og að öll hverfi bæjarins verði tengd
fráveitunni.
Þessu til viðbótar hyggst HEF
halda áfram borunum eftir heitu
vatni við Djúpavog.
GG
Fjarðabyggð og Rotterdamhafnir
undirrituðu í síðustu viku
viljayfirlýsingu með sérstaka áherslu
á framleiðslu vetnis og annarra
grænna orkugjafa.
„Höfnin í Rotterdam er stærsta
höfn Evrópu og jafnframt stærsta
orkuhöfnin. Hollendingarnir ætla
sér að framleiða mikið vetni sjálfir
en sjá líka fyrir sér að flytja inn.
Þess vegna erum við ein af átján
höfnum sem þeir semja við. Þeir
nálguðust okkur síðasta vetur og
við höfum verið í viðræðum síðan í
sumar,“ segir Jón Björn Hákonarson,
bæjarstjóri Fjarðabyggðar.
Hann sótti í síðustu viku dagskrá
sem hollenska ríkið skipulagði um
vetnisvinnslu og bauð fulltrúum
sextán annarra ríkja. Það er ótrúlega
mikilvægt í öllu þessu ferli að komast
í þær samræður og þekkingu sem hér
eru. Hér er mikil þekking á vetni,
ammoníaki og fleiri hlutum. Það er
mikilvægt fyrir okkur að tengjast
slíkum aðilum og kynnast þeim
möguleikum sem þeir sjá.“
Fjarðabyggð hefur að undanförnu
skrifað undir viljayfirlýsingar vegna
fyrirhugaðs græns orkugarðs á
Reyðarfirði, þar sem fyrirhugað er
að framleiða rafeldsneyti. Jón Björn
segir orkugarðinn og samkomulagið
við Rotterdamhafnir ótengd þótt
vissulega styðji hvort við annað.
Hann segir mikla þörf á
rafeldsneyti framundan og því þurfi
ekki að óttast samkeppni, spurningin
sé fremur hvort hægt verði að
framleiða það sem kaupendur vilji.
GG
Auglýsa eftir tilboðum í
Vopnafjarðarflug
Vegagerðin hefur auglýst eftir
tilboðum í sérleyfi á flugi
milli Vopnafjarðar, Þórshafnar
og Akureyrar, sem og milli
Akureyrar og Grímseyjar. Skylt
er að bjóða í báðar leiðirnar.
Gerðar eru um kröfur um
tveggja hreyfla vélar sem að
lágmarki taki sex farþega og 600
kg hleðslu. Tilboðsfrestur er til
7. desember og verða tilboðin
opnuð síðar þann dag.
Telja ekki nóg að þrífa
með brómi
Heilbrigðiseftirlit Austurlands
íhugar að fella í burtu undan-
þágu sem Blábjörg ehf. á
Borgarfirði hafa haft frá árinu
2017 til að hreinsa heita potta
með brómi. Sýni sem eftirlitið
tók þar nýverið stóðust ekki
reglur um hollustuhætti á sund-
og baðstöðum. Þá gerir eftirlitið
athugasemd við að í ljós hafi
komið að brómið sé notað til
að hreinsa tvo potta en ekki einn.
HAUST fer fram á úrbætur og
að vatnið reynist í lagi, ella verði
undanþágan afnumin.
Þarft að fara yfir
hreppamörk í
skipulagsgerð
Umhverfis- og framkvæmdaráð
Múlaþings telur nauðsynlegt
að fara betur fyrir mörk
sveitarfélagsins og Fjarðabyggðar
við endurskoðun aðalskipulags
Fjarðabyggðar sem nú stendur
yfir. Ráðið bendir sérstaklega
á að teningar orku- og
fjarskiptaleiða frá Seyðisfirði til
Mjóafjarðar virðist vanta inn á
uppdrátt auk þess sem fara þurfi
yfir gönguleiðir sem merktar séu
á milli.
Halda áfram brúagerð
Gönguklúbbur Seyðisfjarðar
undirbýr að halda áfram
endurbótum á leiðinni
úr Seyðisfirði yfir til
Loðmundarfjarðar. Í sumar var
með aðstoð þyrlu Landhelgis-
gæslunnar komið á brú yfir
Hjálmá, sem smíðuð var á
vegum klúbbsins. Fleiri varasöm
vatnsföll eru á leiðinni og nú
hefur klúbburinn óskað eftir
leyfi til að setja upp brú yfir
Selsstaðaá í Kolstaðadal.
MOLAR
Viljayfirlýsing um samstarf hafnanna í
Rotterdam og á Reyðarfirði
Undirbúa fráveituframkvæmdir á Djúpavogi
Tuttugu austfirsk fyrirtæki á lista yfir
framúrskarandi fyrirtæki
Síldarvinnslan hf.
Eskja hf.
Loðnuvinnslan hf. Fáskrúðsfirði
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga svf.
(KFFB)
Þ.S. Verktakar ehf.
HEF veitur ehf.
Haki ehf
Launafl ehf.
Ylur ehf.
J Hlíðdal ehf
Myllan ehf.
Austurverk ehf.
G. Skúlason vélaverkstæði ehf.
Framjaxlinn ehf
Nestak ehf.,byggingaverktaki
Jónsmenn ehf.
Héraðsverk ehf.
Lostæti-Austurlyst ehf.
Fiskmarkaður Austurlands ehf.
Egilsstaðabúið ehf
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri og René Van Der Plas framkvæmdastjóri alþjóðlegra samskipta
hjá Rotterdamhöfn eftir undirritun viljayfirlýsingarinnar í Rotterdam í gær. Mynd: Fjarðabyggð