Austurglugginn - 04.11.2021, Page 11
AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 4. nóvember 11
„Áhuginn á þessu kom mér
þægilega á óvart og við töldum
um fimmtíu manns sem mættu í
salinn,“ segir Dr. Hjalti Hugason,
prófessor í guðfræðideild Háskóla
Íslands. Hann hélt málstofu um
heimagreftranir í Kirkjuseli í
Fellabæ fyrir skömmu en Hjalti
hefur lengi rannsakað það fyrirbæri
hérlendis.
Heimagreftranir voru um tíma
vinsælar hérlendis en sá siður náði
fyrst nokkurri útbreiðslu í landinu
á síðustu áratugum nítjándu aldar
og slíkar greftranir voru aldrei
vinsælli en frá 1930 til 1963 þegar
sett voru lög sem bönnuðu greftrun
í túnfætinum heimavið.
Rannsóknir Hjalta hafa sýnt að
þó oft hafi legið beinar praktískar
ástæður fyrir þessu vali fólks þá
voru margvíslegar aðrar ástæður
fyrir heimagreftrun og um tíma
virðist slíkt nánast hafa verið í tísku
á tilteknum svæðum. Öðruvísi sé
erfitt að geta sér til um hvers vegna
heimagreftanir voru eins fjölmennar
í landinu og raun ber vitni.
„Oft var einfaldlega mjög erfitt um
vik að flytja lík í vígða kirkjugarða
langt fjarri. Það var til dæmis raunin
á Sleðbrjót í Jökulsárhlíð. Kirkja
þeirra og grafreitur var löngum hinu
megin Jökulsárinnar og ekki lítið mál
að komast yfir hana til jarðsetningar.
Aðrar ástæður sem tilteknar voru
gat verið mjög djúp sorg sem þýddi
að fólk gat ekki hugsað sér að grafa
ástvin fjarri heimilinu. Enn aðrir
vitnuðu í átthagaást hins látna sem
vildi láta jarða sig á jörð sinni. Svo
auðvitað nokkrir sem ekki tilheyrðu
kirkjunni og játuðu henni ekki trú
sína og vildu því hinstu hvíld annars
staðar en í kirkjugarði.“
Austurlandið sér á parti
Möguleg ástæða þess hve málstofa
Hjalta var vel sótt gæti verið sú
að heimagreftranir voru hvergi
algengari en á Austurlandi og
slíkar grafir töluvert dreifðar um
fjórðunginn þó flestar finnist þær í
Fellum. Slíkir grafreitir aðeins færri
á Norðurlandi og mun sjaldgæfari
vestan- og sunnanlands.
„Ástæður þess hve margir
heimagrafreitir finnast í Fellum
eru þekktar,“ segir Hjalti. „Þar
var vandamálið að á þriðja áratug
tuttugustu aldar var kirkjugarðurinn
við Áskirkju í Fellum fullgrafinn og
þegar búið var að taka útbúa nýjan
reit og jarða átti á staðnum kom í ljós
að hann reyndist ónothæfur vegna
hárrar grunnvatnsstöðu. Þetta var
lykilatriði til að heimild fékkst til
að stofna fyrsta heimagrafreitinn í
sókninni og þeir urðu alls fimmtán
talsins eða fleiri en í nokkurri annarri
sókn á landinu.“
Alls eru staðfestar heimildir um
170 heimagrafreiti í landinu öllu
og þar af 57 í því sem nú kallast
Múlaprófastsdæmi. Það gerir
svo mikið sem 34 prósent allra
heimagrafreita í landinu. Þó ber að
hafa þann varnagla á að hér auðvitað
aðeins um þekktar grafir að ræða en
þær kunna að vera mun fleiri sem
fallið hafa alfarið í gleymskunnar dá.
Hjalti segir heildarfjölda
heimagrafreita merkilegan fyrir þær
sakir að lengi vel þurfti leyfi bæði
frá konungi í Kaupmannahöfn og
innlendum yfirvöldum til að grafa
ástvin eða nákominn ættingja á
heimaslóð. Heimildir eru til um
allt að 200 formlegar slíkar beiðnir.
„Þetta var ferli sem tók marga
mánuði og jafnvel ár og jafnvel eftir
allan þann tíma var ekki gefið að fá
jákvætt svar. Jafnvel þó konungur
tæki erindinu vel voru svo yfirvöld
hérlendis og jafnvel kirkjan sjálf sem
gátu sett skorður við slíkum óskum
þannig að þetta var ekki einfalt mál
að fá í gegn oft á tíðum.“
Ekki séríslenskt fyrirbæri
Hjalti segir erfitt að segja til um
hversu útbreidd heimagreftrun hafi
verið annars staðar í heiminum.
Til þess séu gögn og rannsóknir
einfaldlega af of skornum skammti.
„Þetta tíðkaðist líka í Noregi á
svipuðum tíma en þar er munurinn
þó sá að heimagrafir þar eru í
heildina nánast jafnmargar og slíkar
grafir hérlendis. Með tilliti til að í
Noregi bjó margfalt fleira fólk má
ljóst vera að þetta var hlutfallslega
mun vinsælla hérlendis og það
verður að viðurkennast að við gerum
okkur ekki alveg grein fyrir ástæðum
þessara vinsælda um tíma.“
„Um tíma var nánast í tísku
að grafa ástvini heimavið“
Heimagreftrun
AE
Dr. Hjalti Hugason hefur lengi rannsakað tilurð heimagrafreita hérlendis en fyrirbærið þykir
um margt æði sérstakt. Mynd: AE
Heimagrafreitur í Ekkjufelli í Fellum. Hvergi er meira um slíka grafreiti en á því svæðinu á landsvísu. Mynd: AE