Austurglugginn - 25.11.2021, Qupperneq 2
2 Fimmtudagur 25. nóvember AUSTUR · GLUGGINN
Formaður heilbrigðisnefndar
Austurlands telur Heilbrigðiseftirlit
Austurlands (HAUST) vel geta
tekið að sér fleiri verkefni. Því miður
hafi þróunin verið í aðra átt.
Umhverfisstofnun ákvað nýverið
að endurnýja ekki þjónustusamning
við HAUST um eftirlit með
fiskimjölsverksmiðjum. Nokkur
misseri eru síðan stofnunin hafði
gert slíkt hið sama með eftirlit með
sorpurðunarstöðum.
Jón Björn Hákonarson, formaður
nefndarinnar, telur þetta vera þróun
í öfuga átt. „Heilbrigðiseftirlit
sveitarfélaganna hefur byggst
upp síðustu ár með öflugum
starfsstöðvum með vel menntuðu
starfsfólki. Þótt það starfsfólk sem
flýgur hingað austur sé allra góðra
gjalda vert og vel hæft í sínu starfi
þá teljum við vænlegra til árangurs
að efla eftirlitið heima í héraði.
Sigrún Ágústsdóttir, framkvæmda-
stjóri Umhverfisstofnunar, segir
skorta skýrari lagaheimildir fyrir
útvistun eftirlits stofnunarinnar
auk þess sem það hafi almennt ekki
gefist vel. Breyttar forsendur vegna
viðskiptakerfis með losunarheimildir
gróðurhúsalofttegunda hafi einnig
haft áhrif á ákvörðunina. Fyrir
henni séu aðeins faglegar forsendur,
stofnunin hafi sýnt það í verki
með auglýsingum um störf án
staðsetningar undanfarin misseri að
það sé henni kappsmál að byggja upp
störf á landsbyggðinni.
GG
Einar Þorsteinsson tekur við starfi
forstjóra Alcoa Fjarðaáls þann 1.
desember 2021. Tor Arne Berg sem
hefur sinnt starfinu síðastliðin tvö
ár snýr aftur til Noregs í nýtt starf
hjá Alcoa en hann mun vera Einari
innan handar út desembermánuð.
Einar hefur fram til þessa starfað
hjá Elkem og þar hefur hann gegnt
margvíslegum stöðum um víða
veröld. Starfsstöðvar hans hafa
verið á Íslandi, í Frakklandi og í
Kína og störfin fjölbreytt, þeirra á
meðal forstjóri, ráðgjafi, yfirmaður
ferlaþróunar og umdæmisstjóri í
Asíu. Áður en Einar tók til starfa
hjá Elkem vann hann hjá nokkrum
fyrirtækjum í stjórnunarstöðum og
hefur því víðtæka reynslu á því sviði.
Einar er menntaður vélvirki,
vélaverkfræðingur og með
meistaragráðu í iðnaðar- og
vélaverkfræði frá Álaborgar háskóla.
Sérsvið hans eru viðskipta- og
stefnumótun, markaðssetning,
ferla- og rekstrarstýring og
hagræðing í aðfangakeðju, að því er
fram kemur í tilkynningu.
Eiginkona Einars er Edda
Elísabet Kjerúlf, þau eiga fjögur börn
og fimm barnabörn. Einar mun flytja
frá Reykjavík til Austurlands eftir að
hann tekur við starfinu.
GG
Sveitarstjórn Múlaþings hefur
samþykkt að breyta aðalskipulagi sem
heimilar Orkusölunni að koma upp
tilraunamastri með vindmyllum til
raforkuvinnslu við Lagarfossvirkjun.
Níu fulltrúar greiddu atkvæði með
breytingunni, tveir á móti og tvær
bókanir voru lagðar fram.
Nokkuð er síðan Orkusalan sótti
fyrst um leyfi til vindmælinga við
Lagarfoss en skriður komst á málið
á ný í haust. Áformað er að gera 50
metra hátt tilraunamastur sem rekið
verði til að safna gögnum í 2-3 ár.
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks bentu
á að skipulagsbreytingin fæli
aðeins í sér breytta nýtingu á svæði
sem þegar væri skilgreint undir
iðnað. Þeir töldu líka rétt að safna
upplýsingum og að vísbendingar
væru um mikilvægi hagnýtingu
vinds í orkuskiptum. Til frambúðar
sé mikilvægt að kortleggja möguleg
vindorkusvæði, hver eigi að nýta eða
vernda.
Fulltrúar Austurlistans töluðu á
svipuðum nótum, bæði í ræðu og
bókun, að skoða þyrfti vindorku
sem kost til framtíðar og fara þyrfti
yfir möguleg nýtingarsvæði. Þeir
ítrekuðu að um tilraunaverkefni
væri að ræða.
Fulltrúar Vinstri grænna og
Miðflokks greiddu hins vegar
atkvæði á móti. Þeir vöruðu
við umhverfisáhrifum, bæði af
vindmyllunum sjálfum sem og á
framkvæmdum við þær. Eins töldu
þeir rangt að leyfa tilraunirnar
áður en búið væri að móta stefnu
á víðari grundvelli um orkuöflun í
sveitarfélagin. Þeir lýstu einnig yfir
efasemdum um þörfina á orku.
AE/GG
Ánægja með rekstur
hafnarinnar
Heimastjórn Seyðisfjarðar
fagnar góðu gengi að rekstri
Seyðisfjarðarhafnar. Von er á
góðri loðnuvertíð sem eykur
tekjur auk þess sem komum
skemmtiferðaskipa fjölgar
á ný. Von er á 70 skipum á
næst ári og þegar hafa 84 skip
verið bókuð 2023. Auknar
tekjur liðka fyrir uppbyggingu.
Framundan er raftenging
Norrænu og endurbygging
Angró-bryggjunnar.
Vilja færa veginn við
Teigarhorn
Heimastjórn Djúpavogs telur
mikilvægt að sem fyrst verði
ráðist í að færa þjóðveginn
þar sem hann liggur framhjá
Teigarhorni í Berufirði.
Heimastjórnin telur núverandi
aðkomu að svæðinu bæði
óviðeigandi og beinlínis
hættulega. Nokkuð sé um óhöpp
á svæðinu og umferð gangandi
fari vaxandi. Þá standi núverandi
veglína í vegi fyrir uppbyggingu
á svæðinu. Nefndin leggur einnig
áherslu á að samhliða verði brú
yfir Búlandsá þar skammt frá
endurnýjuð.
Fyrstir koma
Umhverfis- og framkvæmdaráð
Múlaþings úthlutaði í liðinni
viku íbúðalóð að Bláargerði 1-3
á Egilsstöðum. Þrjár umsóknir
bárust fyrir fundinn og fékk
sá aðili sem sótti fyrstur um.
Nefndin ákvað hins vegar að í
ljósti stöðu á húsnæðismarkaði
þurfti viðkomandi að sýna
fram á að hann geti fjármagnað
framkvæmdir, með staðfestingu
frá fjármálastofnun, innan 15
daga frá staðfestingu úthlutunar
ella falli hún úr gildi og lóðin
gangi til næsta umsækjanda.
Austurglugginn til
áramóta
Tvö tölublöð Austurgluggans
eru eftir á þessu ári. Í næstu viku,
2. desember, verður frídreifing á
blaðinu. Síðasti skiladagur efnis
og auglýsinga er á mánudag,
29. nóvember. Síðasta tölublað
ársins er jólablaðið sem kemur
út 16. desember, en það er
umtalsvert stærra en önnur blöð
ársins. Fyrsta tölublað nýs árs
verður síðan 7. janúar.
MOLAR
Heimila tilraunir með vindmyllur
Einar Þorsteinsson nýr forstjóri Fjarðaáls
HAUST getur tekið að sér fleiri verkefni
Einar Þorsteinsson tekur við starfi forstjóra Alcoa Fjarðaáls í næstu viku. Mynd: Alcoa Fjarðaál
Lagarfossvirkjun. Mynd: Orkusalan