Austurglugginn - 25.11.2021, Síða 3
Fréttir frá Fjarðaáli
Ábyrgðarmaður: Dagmar Ýr Stefánsdóttir
Flest okkar hafa orðið vör við
það að gömlu glóperurnar og
flúorljósin eru að hverfa af markaði
og þess í stað notuð LED lýsing
sem hefur ýmsa kosti fram yfir
gömlu ljósin og þá sérstaklega frá
umhverfisverndarsjónarmiði séð.
Vinnustaðalýsing skiptir miklu
máli fyrir fólk sem er allan daginn
baðað í lýsingu sem ýmist getur
aukið eða dregið úr vellíðan þess.
Flúorljós gefa frá sér útfjólubláa
geislun og breyta henni í sýnilegt
ljós með hjálp fosfórs í perunni.
LED ljósin eru að ýta gömlu
natríum, flúor og málmhalogen
ljósunum út úr iðnaðarflórunni
og í raun líka að yfirtaka allt sem
glóperur og sparperur gerðu áður.
Hjá Fjarðaáli er núna stórt verkefni
í gangi með því markmiði að skipta
smám saman yfir í LED lýsingu en
stórum áfanga verkefnisins lýkur
á næsta ári þegar klárað verður
að skipta um öll ljós í kerskála
álversins.
Dýrasti vinnupallur í
heimi?
Aðspurður að því hvers vegna
það er verið að skipta út ljósum í
álverinu segir Jón Garðar Helgason,
umsjónarmaður lágspennu hjá
Fjarðaáli: „Það er orðið erfitt að fá
varahluti í gömlu ljósin og þau eru
frek á viðhald. Í kerskála til dæmis
þarf að nota svokallaða PTM krana
til að komast í ljósin og það er dýr
stillans að nota fyrir viðgerðir
á lýsingu. Skermarnir á gömlu
ljósunum verða fljótt óhreinir og þá
minnkar nýtni ljósanna mjög hratt.
Á LED ljósunum er ekki skermur
heldur gler sem vísar beint niður
og það ætti að vera lengur að falla
á sléttan flöt sem snýr beint niður.“
Af hverju er LED lýsing betri
en þessi hefðbundna flúorlýsing
sem nú er? „LED er með miklu
betri litarendurgjöf sem þýðir að
það eru mun fleiri litir sem ljósið
gefur frá sér heldur en natríum ljós
sem er víðast hvar að finna hér,“
segir Jón Garðar. „Natríum ljósin
hafa alltaf þótt mjög nýtin og góð
ljós en þeirra galli er guli liturinn
í þeim. Með því að skipta þá fáum
við ljós með tíu ára ábyrgð.“
LED ljósin
umhverfisvænni en þau
gömlu
„Almennt er álitið að orkusparnaður
sé umhverfisvænn. Þarna er þó
svolítið tvíeggja sverð á lofti því
stærsti galli LED ljósa út frá
umhverfissjónarmiðum er sá að
þegar ljósið hefur lokið líftíma
sínum er það ónýtt og því er skipt
út fyrir nýtt. Gömlu ljósin okkar
eru ekkert saklaus heldur með þetta
því það er mikið af búnaði sem þarf
að endurnýja reglulega í þeim og
í ákveðnum gerðum af perum er
að finna kvikasilfur sem þykir ekki
náttúruvænt efni. Ljósin sem við
erum að kaupa eru að miklu leyti
smíðuð úr áli sem er auðvelt að
endurnýta og hver sá búnaður sem
hefur góða endingu er í eðli sínu
umhverfisvænn,“ segir Jón Garðar.
LED ljósin eru líka væn fyrir
vinnuumhverfið að sögn Jóns
Garðars. „Góð lýsing skiptir miklu
máli við að búa starfsfólki öruggt
vinnuumhverfi og sérstaklega í
umhverfi eins og okkar þar sem
margt ber að varast. Munurinn á
gömlu ljósunum og þessum er mjög
mikill og fólki líður betur í bjartara
umhverfi.“
Hvað með kostnaðinn?
Aðspurður um hugsanlegan
sparnað segir Jón Garðar að
sparnaðurinn á hans vinnusvæði
liggi að mestu leyti í minna
viðhaldi. „Ef við setjum upp ljós
sem þarf ekki að sinna neitt í tíu
ár er það gríðarlegur sparnaður,
miklu meiri en sá orkusparnaður
skilar okkur sem er þó auðveldara
að reikna út og sýna fram á.“ Hann
bendir á samstarfsmann sinn, Bríeti
Ósk Moritz Hjörvarsdóttur, sem
skrifaði lokaverkefni í rafiðnfræði
við HR um orkustýringu og
orkunýtni Alcoa vegna innleiðingar
ISO 50001:2018. „Það er mikill
fróðleikur um lýsingu og þessi
útskipti okkar þar.“
Í lokin spyrjum við Jón Garðar
um viðbrögð fólks sem vinnur í
þessari lýsingu. Hann svarar: „Ég
hef unnið markvisst að því að reyna
að fá fólk til að benda mér á gallana
við hana því útskiptin eru dýr. Það
eru gallar við LED lýsingu sem þarf
að passa upp á en þau eru mjög
stefnuvirk sem getur valdið því
sem heitir glýju, eða ofbirtu með
því að horfa í áttina að ljósunum.
Ég hef ekki fengið neinn til að
hallmæla þessari lýsingu þrátt fyrir
þessar tilraunir að einni ungri konu
undanskilinni en hún sagði það
galla að þurfa lengri tíma í að mála
sig áður en hún mætti í vinnuna af
því að lýsingin er orðin svo góð.“
Sjá má mikinn mun á nýju (t.v.) og gömlu lýsingunni (t.h.). Mynd: Alcoa Fjarðaál/Hilmar Sigurbjörnsson
Breytt lýsing bætir starfsumhverfið
hjá Fjarðaáli