Austurglugginn


Austurglugginn - 25.11.2021, Side 8

Austurglugginn - 25.11.2021, Side 8
8 Fimmtudagur 25. nóvember AUSTUR · GLUGGINN Eins og vera á fljúgandi vélsleða Flug með paramótorum Hópur paramótor flugfólks var meðal þeirra sem heimsóttu Austurland á liðnu sumri. Um er að ræða íþrótt sem aðeins handfylli af fólki stundar reglulega hérlendis enda veðuraðstæður oft snúnar. Austfirskar aðstæður eru með þeim mest krefjandi en þegar vel viðrar er gaman að svífa um svæðið. Áður en lengra er haldið er rétt að útskýra örfá enskuskotin hugtök. Margir kannast við svifflug, eða gliding, sem felst í að svífa um á óvélknúnu loftfari. Það er þá gjarnan dregið á loft af ökutæki. Paragliding, eða fallhlífarsvifflug, er að svífa um á væng. Tekið er á loft með aðstoð ökutækis, eða með að hlaupa upp í vindinn, oft fram af fjallshlíð. Með paramótor er léttum mótor bætt við vænginn sem eykur flugmöguleikana til muna. „Þetta er svolítið eins og að vera á seglskútu eða spíttbát. Í paragliding ertu háðari veðri og vindum. Með mótornum geturðu tekið á loft nánast hvar sem er á 15-20 mínútum“ segir Skúli Sveinsson, einn þeirra sem stunda paramótorflug. Flugu um Austurland Hann og Marvin Wallace komu fyrst tveir í sumar. Marvin var á undan og flaug þá um á Jökuldal en þeir flugu síðan saman upp Norðurdal Fljótsdals, yfir í Suðurdalinn og til baka, frá Skjöldólfsstöðum á Jökuldal og inn að Stuðlagili og í Mjóafirði. „Við flugum inn að Klifbrekkufossum en ætluðum út að Dalatanga. Það var of mikil ókyrrð til þess, sennilega hefðum við ekki átt að fara í loftið þennan dag en við vorum komnir langa leið og því var kýlt á þetta,“ segir Skúli. Hann kom síðan aftur tveimur vikum síðar með alþjóðlegum hópi sem reyndi að fljúga upp Fljótsdal en varð frá að hverfa vegna ókyrrðar. „Það leit út fyrir að vera í lagi en þegar við vorum komnir upp fundum við að það var hliðarvindur sem síðan endurkastaðist af fjöllunum.“ Um var að ræða hóp undir merkjum Scout, slóvensks fram- leiðenda paramótora sem jafnframt stendur fyrir ferðum víða um heim og hefur komið reglulega til Íslands. Hugmyndasmiðurinn að baki Scout fer fyrir hópunum og var með eystra í sumar. Mikilvægast að læra á vænginn Aðspurðir segjast Marvin og Skúli reiknast það til að sjö manns séu virkir í paramótorflugi hérlendis. Marvin hefur flogið í sex ár en Skúli í fjögur. „Ég sá myndband úr fyrstu ferð Scout til Íslands á YouTube og hugsaði með mér að ég væri að missa af einhverju svo ég skráði mig á námskeið,“ segir Skúli. Bæði Skúli og Marvin segja að fyrsta árið hafi farið í að læra bara á vænginn sjálfan, taka á loft, svífa, bregðast við hvernig hann hegðar sér og lenda. Mótorinn sé í raun minnsta málið. „Hann er í raun bara til að koma þér í loftið,“ segir Marvin. Skúli notaði síðan fyrsta tækifærið sem honum gafst til að fara í ferð með Scout-hópnum. „Ég lærði mikið af þeim. Þannig fékk ég reynslu til að meta aðstæður og vita hvenær óhætt sé að fara í loftið,“ segir hann. Öruggara að vera hærra Flughæðin með paramótornum er í allt að 300 metra hæð yfir jörðu. Marvin útskýrir að öryggi sé falið í hæðinni, samanborið við að í paragliding er flogið neðar. „Öryggið er meira því hærra sem flogið er því þá hefurðu meiri tíma til að bregðast við. Það hefur verið mikil framþróun í þessum búnaði síðustu 10 ár, græjurnar eru orðnar góðar og bæði einfaldara og öruggara að fljúga. Vængirnir þola meira þannig meira þarf til að þeir brotni saman. Vængurinn er það sem þú treystir á að lokum, það má allt bila nema hann. Það getur drepist á mótornum eða brotnað upp á vænginn. En þó það gerist hefurðu varafallhlíf. Tölfræðin hefur sýnt að þetta er alls ekki hættulegra en annað flug,“ segir Marvin. „Þú getur átt mótorhjól og keyrt það skynsamlega eða eins og brjálæðingur. Ef varlega er farið þá er þetta tiltölulega öruggt sport – það er að minnsta kosti það sem ég segi konunni minni!“ bætir Skúli við. Mótorinn er á baki flugmannsins. Hann vegur um 30 kg en síðan bætast við 12 kg af eldsneyti. Félagarnir segja að við það dugi til tæplega tveggja og hálfs tíma flugs, eða um 100 km. „Það er hóflegt að fljúga í 1,5-2 tíma, velja sér 65-70 km hring,“ segir Skúli en bætir við að dæmi séu um að hérlendis hafi mjög reyndir flugmenn, með auka eldsneyti, verið á loftið í 5 tíma og flogið yfir 250 km. Sjáum ekki vindinn Þeir fara yfir veðurfræðin fyrir flugið, hvernig veður og vindar eru í mörgum lögum. Yfirleitt eru skilyrðin best á morgnana, þeir eru oft komnir á staðinn klukkan fimm, eða seint á kvöldin. Sólin hitar jörðina og þá myndast ókyrrð. Tæknilega séð er hægt að fljúga allan ársins hring, svo lengi sem veðrið er stillt. „Það er betra að kunna skil á þessu, í raun erum við bara að fljúga á víniltaui. Við vitum ekki alltaf um vindinn því við sjáum hann ekki. Við göngum út frá að vindur sé undir 5 m/s. Það er hægt að fljúga í aðeins meira en þá getur verið erfitt að höndla vænginn á jörðinni því hann þarf að vera flatur þegar flogið er af stað,“ segir Marvin. „Það er samt sagt að það sé betra að vera á jörðinni og óska þess að maður sé í loftinu frekar en vera í loftinu og óska þess að vera á jörðinni,“ skýtur Skúli að. Fyrir flug á Íslandi fer því nokkur tími í að elta veðrið. „Hóparnir sem koma hingað keyra stundum landshornanna á milli. Stundum ná þeir ekki að fljúga nema 3-4 daga af vikunni sem þeir eru hér. Þetta er ekki eins og á Spáni þar sem þeir fljúga á hverjum degi. Þeir eru samt dolfallnir yfir náttúrunni hér. Það er hægt að sjá sambærilegt annars staðar í heiminum en ekki sömu fjölbreytnina í jafn stuttu flugi,“ segir Skúli. Að draga fótinn eftir haffletinum Frelsið og fjölbreyttara sjónarhorn á náttúruna er það sem heillað hefur Skúla og Marvin mest við paramótorflugið. „Ég var á flugi í 20 metra hæð yfir skógi um daginn. Ég hallaði mér fram og hugsaði: „Mikið er þetta eðlilegt sjónarhorn.“ Þetta er skilgreiningin á frelsi fyrir mér,“ segir Marvin. „Snilldin við þetta form flugs er að það fer ekki hratt. Það er ótrúleg upplifun að fljúga nánast við jörðina og geta dregið fótinn eftir haffletinum. Þetta er svolítið eins og að vera á fljúgandi vélsleða,“ segir Skúli. Þeir hafa hug á að koma aftur næsta sumar, þótt fjöllin og dalirnir geri aðstæður krefjandi og fljúga víðar, nefna Þerribjörg, Berufjörð og Lónsöræfi. „Þetta er svo allt öðruvísi náttúra en hér syðra,“ segir Marvin að lokum. GG Skúli á flugi í sumar. Mynd: GG

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.