Austurglugginn


Austurglugginn - 25.11.2021, Side 11

Austurglugginn - 25.11.2021, Side 11
 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 25. nóvember 11 „Megrunarkúltúrinn er jafn farsæll og hann er því hann virkar ekki. Ef ein duftdolla skilaði því sem lofað er þá væri gróðinn ekki svona mikill. Framleiðendurnir græða því okkur mistekst. Við teljum okkur sjálf vera ástæðuna þannig við reynum aftur og kaupum annan kúr. Staðreyndin er hins vegar að megrunarkúrar lukkast illa og í þeim tilfellum þar sem fólk grennist hratt eru líkur á að það fitni aftur og þá enn meira. Utan á sígarettupökkum stendur að reykingar drepi. Í tilfelli megrunarkúranna eru 95% líkur á að þeir virki ekki en 12% líkur að viðkomandi þrói með sér átraskanir, sem eru geðsjúkdómur. Hví eru ekki viðvaranir á þeim? Það er alltaf verið að mata okkur á að við séum ekki nóg heldur þurfum að breyta einhverju til að við upplifum okkur nóg. Til að græða á okkur þarf markaðurinn fyrst að brjóta okkur niður þannig við trúum að við þurfum að kaupa okkur hamingjuna. Svona skilaboð eru svo víða að við erum orðin blind á þau. Síðan koma ný orð. Megrunarkúr er orðið neikvætt svo nú er talað um lífsstílsbreytingu, þótt í raun sé oft það sama á bakvið.“ Þetta segir Erna Kristín, sem vakið hefur athygli fyrir orð sín um jákvæða líkamsímynd á samfélagsmiðlum undir nafninu Ernuland, auk þess sem hún hefur gefið út tvær bækur um málefnið. „Ég var með neikvæða líkamsímynd frá barnsaldri, átröskunin poppaði síðan upp á unglingsárunum. Ég náði tökum á henni með bættri sjálfsímynd og jákvæðri líkamsímynd, fyrir alvöru í kringum 2018 og hef haldið góðum bata síðan. Ég er hins vegar alltaf á tánum því þetta er geðrænn sjúkdómur sem hverfur ekkert endilega fyrir fullt og allt. Þess vegna er svo mikilvægt að leita aðstoðar fagaðila til að vinna úr málunum,“ segir Erna um eigin reynslu. Ólíkir líkamar Hún leggur áherslu á að í grunninn séu líkamar mannfólksins ólíkir. Staðalímyndir, einkum í auglýsingum, komi inn hjá fólki brengluðum hugmyndum um útlit sem aftur skapi óánægju með eigin líkama og pressu um að gera eitthvað í málinu. Úr þessu geti orðið erfiður vítahringur. „Fyrsta skrefið í átt að jákvæðri líkamsímynd er því að gera fólk meðvitað um umhverfið og hvers vegna við upplifum líkamann okkar ekki sem nóg. Jákvæð líkamsímynd felst í að bera virðingu fyrir líkama okkar og annarra óháð útliti, heilsu, stærð eða líkamsgetu. Að virða hann eins og hann er í dag og í gegnum allar breytingar. Við eigum öll að fá að elska okkur eins og við erum.“ Niðurlægingin virkar ekki Erna heimsótti Austurland á sama tíma og talsverð umræða var um offitu barna og ungmenna á landsbyggðinni eftir sýningu fréttaskýringaþáttarins Kveiks á RÚV. Erna segir umræðu sem þessa vandmeðfarna. Ekki skili neinu að skamma þá sem teljist of þungir, það jaðarsetji þá bara frekar. „Það stuðar fólk stundum þegar ég segi að það þurfi að bera virðingu fyrir líkömum óháð heilsu, en það er kannski fyrst þegar við dettum út af heilbrigðisvagninum sem við þurfum sjálfsmildi. Við höfum reynt niðurbrotið og vitum að það er ekkert nema skyndilausn að ætla að búllía sig út úr erfiðri stöðu. Í jákvæðri líkamsímynd felst að vilja líkamanum vel og þannig náum við utan um almennt heilbrigði. Líkamsvirðing er annað svið jákvæðrar líkamsímyndar, hvernig við komum fram við jaðarsetta hópa. Heilsu of þungs fólks hrakar meira út af útskúfun heldur en fitu. Við setjum samasemmerki milli fitu og óheilbrigðis meðan orsakasamhengið er mikið flóknara. Í okkar heilbrigðiskerfi og víðar hefur verið kerfisbundin mismunum sem hjálpar svo sannarlega ekki þeim sem eru jaðarsettir að leita þjónustu. Við eigum öll að hafa sama aðgang að heilbrigðiskerfinu óháð stærð. Í því breska er verið að taka upp þyngdarhlutlausa nálgun, þar er sjúklingi mætt óháð stærð. Um leið og fólk fær þá þjónustu sem það á að fá sem manneskja þá skilar það meiri árangri.“ Góð næring, hreyfing og svefn Hreyfing er einn af grunnþáttum heilbrigðis en hún getur líka keyrt um þverbak. Jaðarsetningin þýðir líka að erfitt getur verið fyrir þá sem vilja stunda hreyfingu að byrja, þar sem útskúfun veldur því að hvorki aðgengi né viðhorf, er ekki það sama og manneskja í viðurkenndri stærð fær. „Það getur verið erfitt að sækja sér almennt heilbrigði þegar maður er jaðarsettur, tækin í salnum henta ekki endilega feitum og það er erfitt að finna íþróttafatnað. Á sama tíma hugsar forréttindafólkið: „Ég ætla að hreyfa mig,“ og gengur inn í salinn án nokkurra vandkvæða. Hver einstaklingur þarf að horfa á hvað hann geti gert til að þóknast sínum líkama, hvað hann geri til að honum líði vel og hafi orku í lífið. Almennt heilbrigði snýst um þetta. Til þess þarf að hugsa að góðri næringu, sofa nóg og hreyfa sig hóflega. Almennt heilbrigði er ekki ofþjálfun eða neita sér um mat. Gallinn er hins vegar að góð næring og hreyfing er ekki aðgengileg öllum.“ Bænastund á Hellisheiði Erna kveðst afar ánægð með þær viðtökur sem hún fékk við fyrirlestrum sínum eystra. „Ég fann mikinn áhuga sem ég er mjög þakklát fyrir. Unglingarnir, sem létu oft fara lítið fyrir sér á fyrirlestrunum, voru þeir sem sendu skilaboð eftir fyrirlesturinn. Allt eins og þau sem spurðu á fyrirlestrunum þá eru þau að fást við ýmislegt og vilja fá ráð. Þess vegna skiptir máli að þau hafi öruggt rými heima hjá sér og í skólanum til að ræða málin því utan þess er hamrað á þeim alla daga.“ Erna tilkynnti skömmu eftir að hún sneri aftur suður að hún væri orðin ófrísk af tvíburum. Hún vissi það hins vegar sjálf í ferðinni. „Ferðin var æðisleg en ég var að fást við mikla ógleði og á milli fyrirlestra lá ég fyrir uppi á hóteli. Það var samt miklu skemmtilegra en að vera lasin heima hjá sér.“ Svo var það ferðin yfir Hellisheiði eftir fyrirlesturinn á Vopnafirði. „Á leiðinni hringdi ég í vinkonu mína, hún var hissa á að ég væri þarna, hélt að heiðin væri lokuð. Ég hugsaði með mér hvort þessi vegur væri nokkurn tíman opinn. Mér leið eins og ég myndi hrynja niður af fjallinu, þetta var svo bratt. Leiðin kom mér á óvart að því leyti að hún var rosalega falleg en að sama skapi hef ég aldrei farið með jafnmargar bænir á svo stuttum tíma – og verandi guðfræðimenntuð kann ég nokkrar.“ GG „Eigum öll að fá að elska okkur eins og við erum“ Jákvæð líkamsímynd Erna Kristín á fyrirlestri með nemendum í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Mynd: GG

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.