Austurglugginn


Austurglugginn - 25.11.2021, Side 12

Austurglugginn - 25.11.2021, Side 12
skynbragð okkar á að til sé nokkuð sem heita samfélagsleg verðmæti. Í innviðum. Í samskiptum. Í fólki. Það hefur verið áhugavert að bera saman Ísland og Svíþjóð á þessum mánuðum, bæði staðreyndir og hversu mjög þær geta bjagast á hinni stuttu leið yfir Noregshafið. Óþarfi er að rekja mun á smittölum og andlátum, hvar tókst að halda faraldrinum í skefjum og hvar menn misstu af lestinni þegar í upphafi. Hinsvegar er áhugavert að þrátt fyrir álag af allt annarri stærðargráðu réð sænskt heilbrigðiskerfi við verkefnið. Auðvitað þurfti að fresta ýmsu og forgangsraða og að sjálfsögðu er starfsfólk þreytt. En það kom aldrei til tals að fara þyrfti í samfélagslegar takmarkanir því heilbrigðiskerfið væri að kikna. Aldrei. Það getur verið stór áskorun í starfi læknis að skilja hvað sé einkenni sjúkdóms og hvað sé einkenni heilbrigðis. Stundum getur svokallaður „einkennaberi“, sá er leitar læknis vegna vanlíðunar af ýmsum toga, hreinlega verið heilbrigðasti einstaklingurinn í sjúklegum aðstæðum. Börn alkóhólista eða maki í ofbeldissambandi eru lýsandi dæmi um þetta. Ef við nú skoðum samfélagið í sama ljósi, hver er þá sjúkur og hver er einkennaberi? Það má vel færa rök fyrir því að núna sé samfélaginu haldið í spennitreyju vegna lasburða heilbrigðiskerfis (vandamálið er ekki einangrað við Landspítalann). Ég ætla þó að halda því fram að heilbrigðiskerfið sé einkennaberi í sjúku hugarfari sem hefur gegnsýrt samfélagið. Ég á við þá fixídeu að einungis með því að pressa fólk að þolmörkum náist árangur og að sá árangur verði eingöngu metinn á hlutlægan hátt. Að allt sé sóun sem ekki fæst með lágmarks tilkostnaði og hámarks tímanýtingu. Hið sjúklega er þó kannski ekki hugmyndin sem slík heldur að ætla sér þannig að reka samfélag eða nauðsynlegar stofnanir þess. Hvað þá hinar húmanísku lykilstofnanir eins og menntakerfi og heilbrigðiskerfi þar sem yfirgripsmesta og verðmætasta þekkingin býr í fólkinu á gólfinu. Sóun getur nefnilega verið ýmiskonar. Hvað er það annað en sóun þegar hjúkrunarfræðingur brennur út. Eða þegar barn fær ekki aðstoð við hæfi því kennari berst í bökkum við að sinna þungum og fjölmennum bekk. Það viðgengst gríðarleg sóun á hverjum degi þegar fólk fær ekki tækifæri til að laga brotalamir í starfinu því það er of upptekið við að slökkva elda, redda fólki eða uppfylla blæti fjarlægra skriffinna fyrir skýrslur og excel-skjöl. Brotalamir sem leiða til mistaka. Oft er haft á orði að við lærum af mistökum okkar. Það er rangt. Við lærum af því að hugleiða mistök okkar og skoða þau í samhengi. Stærsti lærdómurinn af Kófinu mun liggja í því að horfast í augu við og breyta því hugarfari sem leiddi til þess að heilbrigðiskerfið hefur í yfir tuttugu ár bara verið einu hópslysi frá hörmungum. Ztonelove vill gera garðinn frægan í tónlistinni „Ég hef verið að semja tónlist frá því að ég var bara smástelpa og nú er ég að stíga mín fyrstu alvöru skref í tónlistinni,“ segir Steinunn María Bragadóttir en hún líka þekkt undir listamannsnafninu Ztonelove. Undir því nafni rappar hún sín eigin lög og texta. Steinunn hefur vakið athygli í heimabænum Neskaupstað og víðar en hún hefur tekið upp nokkur lög og gert tvö tónlistarmyndbönd við sem komin eru á tónlistarveitur eins og YouYube og Spotify en það bara byrjunin því næsta skref segir hún að koma tónlistinni sinni á fast form í alvöru stúdíói, verða sér úti um umboðsmann og leita hófanna hjá tónlistarútgáfum. „Ég á allt of mikið af tónlist þannig að ég verð að velja og hafna hvað ég vil gefa út. Ég vil klára að gera það áður en ég fer að leita fyrir mér hjá útgáfufyrirtækjum. Nú er ég að setja saman mix-tape af efninu mínu og gæli við að koma því út einhvern tímann á næsta ári.“ Myndböndin heimagerð Tvö myndbönd má finna á YouTube með tónlist Ztonelove og hefur fyrra myndband hennar þegar verið skoðað yfir þrjú þúsund sinnum sem þykir dágott fyrir lítt þekktan listamann á Íslandi og hefur hún þó ekki kynnt myndbandið sérstaklega neins staðar. Hún fær vini og kunningja til að leika í þeim, tekur þau upp á hinum ýmsu mismunandi stöðum í bænum, mamma er gjarnan á tökuvélinni og Steinunn klippir sjálf til efnið að tökum loknum. „Ég kunni ekki neitt þegar við vorum að byrja en ég bara lærði það sem til þurfti. Í myndböndin fæ ég vini mína og jafnvel ættingja og svo tökum við upp hér og þar í bænum. Ég er mjög ánægð með það sem okkur hefur tekist að gera fyrir litla peninga og það er töluvert áhorf.“ Sumir lítið hrifnir en ég kippi mér ekkert upp við það Aðspurð um viðtökurnar í bænum segir Steinunn meirihluta fólks vera ánægt með hvað hún sé að gera en ekki allir. „Það eru sumir sem kunna ekkert við hvorki tónlistina né myndböndin en það kannski fyrst og fremst eldra fólk. Flestir aðrir hafa tekið þessu mjög vel og ungt fólk þá sérstaklega. Ég kippi mér ekkert upp við gagnrýnina því ég hef mikla trú á að fólk megi vera hvað sem það vill og allir eiga að hafa trú á sjálfum sér í einu og öllu. Það eru mikilvæg skilaboð sem ég reyni að deila eins og ég get.“ Steinunn er uppalin í Breiðholtinu en flutti austur til Neskaupstaðar fyrir nokkru síðan. Hún kann vel við sig þó bærinn sé vitaskuld töluvert minni en höfuðborgarsvæðið og minna sé um að vera. „Já, ég kvarta ekki. Ég átti pínulítið erfiða æsku fyrir sunnan svo ég sakna ekki mikils þannig. Auðvitað getur fámennið skapað ákveðin vandamál líka en þau eru yfirleitt ekki stór.“ AE 1041 0966 UMHVERFISVOTTUÐ PRENTSMIÐJA www.heradsprent.is Eyjólfur Þorkelsson Lokaorð Fram úr Kófinu Síðustu tvö ár hafa verið lærdómsrík. Við höfum séð kenningum nýfrjálshyggjunnar rutt á haugana og anda Keynes rísa upp frá dauðum. Við höfum séð hverju vísindi og ríkisvald geta áorkað þegar þeim er beitt af þunga og afleiðingar þess að heykjast á því að nýta þau. Síðast en ekki síst höfum við endurheimt Ztonelove dreymir um að geta lifað af tónlist sinni í framtíðinni. Aðsend mynd

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.