Austurglugginn - 07.12.2012, Page 2
2 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 7. desember
Dögun stefnir
á framboð
í Norðaustur-
kjördæmi
Dögun, samtök um réttlæti, sann-
girni og lýðræði stefnir að því að
bjóða fram lista í Norðausturkjör-
dæmi fyrir næstu þingkosningar
sem fyrirhugaðar eru í apríl á næsta
ári.
Stofnundur kjördæmisfélags
Dögunar í Norðausturkjördæmi
verður haldinn laugardaginn 8.
desember á Akureyri. Þar mun
Gísli Tryggvason kynna Dögun
og fyrirliggjandi stefnumótun og
tekin verður afstaða til aðferða við
val á framboðslista í kjördæminu.
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir,
staðfesti nýverið friðlýsingu náttúruvættisins Blábjarga
á Berufjarðarströnd í Djúpavogshreppi. Björgin, sem
eru í landi Fagrahvamms, eru sérstæð fyrir grænleitan
blæ sem rekja má til klórítsteindar sem myndaðist við
ummyndun bergsins.
Blábjörg eru hluti af sambræddu flikrubergi, sem hefur
verið kallað Berufjarðartúff (Berufjörður acid tuff ) og
myndaðist í gjóskuflóði í líparítsprengigosi. Í jarðlaga-
staflanum er það rétt ofan við svokallað Hólmatindstúff,
sem er með surtarbrandi, en nokkuð neðan við bleikt
túfflag kennt við Skessu.
„Markmiðið með friðlýsingu Blábjarga sem nátt-
úruvættis er að vernda sérstæðar jarðmyndanir sem hafa
hátt fræðslu- og vísindagildi. Blábjörg eru aðgengilegur
staður til að skoða flikruberg enda vinsæll viðkomu-
staður ferðamanna.
Hið friðlýsta svæði er 1,49 hektarar að stærð en með
friðlýsingunni verður óheimilt að hrófla við eða skemma á
annan hátt jarðmyndanir innan marka þess. Almenningi
er áfram heimil för um náttúruvættið en umsjón og
rekstur þess verður í höndum landeigenda“ segir í til-
kynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.
„Sveitarfélögin Fjarðabyggð og
Fljótsdalshérað hafa ákveðið að
vinna sameiginlega að kynningu
sveitarfélaganna sem valkost til þeirra
leyfishafa sem vinna munu að rann-
sóknum, tilraunaborunum og vinnslu
á Drekasvæðinu“ segir í sameigin-
legri fréttatilkynningu Fjarðabyggðar
og Fljótsdalshéraðs. Skrifað var undir
samstarfsyfirlýsingu sveitarfélaganna
síðastliðinn mánudag.
Austurglugginn greindi frá
því um miðjan septembermán-
uði að viðræður sveitarfélaganna
stæðu yfir um mögulegt samstarf
á þessu sviði. Í kjölfarið var tekist á
um ályktun á aðalfundi Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi (SSA).
Vopnfirðingar lögðu fram tillögu
á fundinum þar sem lagt var til að
SSA styddi „eindregið við þá vinnu
sem Vopnafjarðarhreppur og
Langanesbyggð hafa unnið
varðandi undirbúning á upp-
byggingu þjónustumiðstöðvar
á Vopnafirði og undirstrikar
mikilvægi þess að sem stærstur
hluti þjónustunnar verði veittur
þaðan og frá öðrum stöðum á
Austurlandi.“ Tillagan fékkst
ekki samþykkt og í stað þess
var henni vísað frá og til
samstarfsnefndar SSA sem
starfar milli aðalfunda sam-
bandsins. Þórunn Egilsdóttir,
oddviti Vopnafjarðarhrepps,
lýsti miklum vonbrigðum með að
ekki næðist samstaða um þetta mál
á Austurlandi.
Viðræðurnar virðast hafa borið
árangur því nú hafa sveitarfélögin
Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað
komið á fót sameiginlegum starfs-
hópi sem samkvæmt samkomulagi
sveitarfélaganna er falið að meta
hversu vel þau eru í stakk búin að
þessu leyti. „Verða innviðir rýndir
með hliðsjón af veikleikum og
styrkleikum hvors sveitarfélags,
allt frá nærsamfélagsþjónustu,
samgöngum og viðgerðar- og
viðhaldsþjónustu að húsnæði,
gistingu og afþreyingarmögu-
leikum. Niðurstöðurnar munu
nýtast í kynningar- og mark-
aðssamstarfinu ásamt frekari
stefnumótun á vegum sveitar-
félaganna“ segir í yfirlýsingu
sveitarfélaganna.
Starfshópinn skipa bæjar-
stjórarnir Björn Ingimarsson
og Páll Björgvin Guðmundsson
ásamt Birni Inga Knútssyni,
Steinþóri Péturssyni og Sævari
Guðjónssyni, sem skipaðir eru af
Fjarðabyggð. Fyrir Fljótsdalshérað
skipa þau Ágústa Björnsdóttir, Eyrún
Arnardóttir og Óðinn Gunnar
Óðinsson starfshópinn.
Orkustofnun hefur ákveðið að veita
félögunum Faroe Petroleum Norge
AS og Íslensku Kolvetni ehf. annars
vegar og Valiant Petroleum ehf. og
Kolvetni ehf. hins vegar, sérleyfi fyrir
rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíu
og gass) á Drekasvæðinu. Þá hafa
norsk stjórnvöld, með bréfi dagsettu
3. desember, ákveðið að norska ríkis-
olíufélagið Petoro verði þátttakandi
í báðum leyfunum, að fjórðungs hlut
í hvoru leyfi fyrir sig eins og samn-
ingur Íslands og Noregs frá árinu
1981 heimilar þeim.
„Þátttaka Noregs í sérleyfum á
Drekasvæðinu er mjög jákvæð fyrir
framhald olíuleitar á Jan Mayen
svæðinu í heild enda undirstrikar
hún trú Norðmanna á því hversu
raunhæft verkefni hér er um að ræða.
Þátttaka Norðmanna í sérleyfum
gerir rannsóknir á Drekasvæðinu
eftirsóknarverðari og dregur athygli
olíufélaga að Íslandi sem fýsilegum
kosti til rannsókna og eftir atvikum
vinnslu olíu frá svæðinu til lengri
tíma litið“ segir í tilkynningu frá
atvinnuvegaráðuneytinu.
Steingrímur J. Sigfússon atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðherra fagnar
aðkomu Norðmanna. „Að mínu
mati er augljóslega mikill styrkur
að hafa Norðmenn sér við hlið
í verkefnunum á Drekasvæðinu.
Það gefur þeim aukið vægi og trú-
verðugleika. Noregur býr yfir mik-
illi reynslu á þessu sviði og þá ekki
síst í umhverfismálum enda eru
þeir þekktir fyrir að gera ströng-
ustu kröfur í öryggis- og umhverf-
ismálum í tengslum við olíu- og gas-
vinnslu á hafi úti“ segir Steingrímur
á heimasíðu ráðuneytisins.
Þrjár umsóknir bárust í útboði
vegna sérleyfa sem lauk 2. apríl
síðastliðinn. Við úthlutun sérleyf-
anna leitaði Orkustofnun umsagna
í samræmi við ákvæði laga og kann-
aði ítarlega getu umsækjenda til
að takast á við þá umfangsmiklu
starfsemi sem í leyfisveitingunni
felst. Þá fékk þriðji umsækjandinn,
Eykon ehf., frest til 1. maí 2013 til
að afla sér samstarfsaðila sem hefði
að mati Orkustofnunar nægjanlega
sérþekkingu, reynslu og bolmagn til
að annast þá starfsemi sem í leyfis-
veitingunni felst.
Áður en sérleyfin verða gefin
út þarf norska stórþingið að sam-
þykkja þátttöku norska ríkisins í
verkefninu. Í kjölfar þess og þegar
aðilar sérleyfanna hafa undirritað
samstarfsamninga sína um verkefnin
mun Orkustofnun gefa út umrædd
leyfi, væntanlega í byrjun janúar á
næsta ári.
Norska ríkisolíufélagið
Petoro tekur þátt í olíuleit
Fjarðabyggð og Fljótsdals-
hérað í markaðssamstarf
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs og Páll
Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, við undir-
ritun samkomulagins. Mynd/ Helga Guðrún Jónasdóttir
Blábjörg við Djúpavog friðlýst
Mynd/Andrés Skúlason