Austurglugginn - 07.12.2012, Side 4
4 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 7. desember
É
g lofaði því í síðustu viku að fjalla ítar-
lega um rannsókn Rannsókna- og þró-
unarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri
um starfsemi ríkisins í Norðausturkjördæmi –
tekjur og útgjöld. Skýrslan er mjög ítarleg og
ekki að sjá annað en að vandað sé til verka en
skýrslan er gerð að beiðni Eyþings og SSA. En
lesendur góðir verða að bíða enn um sinn eftir
umfjölluninni vegna óviðráðanlegra aðstæðna.
Ég get aftur á móti heitið umfjölluninni í næsta
tölublaði Austurgluggans sem kemur út í lok
næstu viku. Þá gefur Austurglugginn út jólaút-
gáfu blaðsins sem verður ekki síður veglegri en
jólablöð undanfarinna ára.
Jólaundirbúningur er farinn af stað á flestum
heimilum, jólaskreytingar, jólabakstur og ég tala
nú ekki um jólahreingerninguna sem allir bíða í
ofvæni eftir á hverju ári. Í öllu þessu amstri sem
tengist jólunum eiga margir það til að gleyma
sjálfum sér, þeim sem standa sér næst og jafnvel
því sem þetta snýst allt um. Í öllu þessu amstri
er mikilvægt að taka sér „breik“ frá amstrinu
og njóta nærveru fjölskyldunnar, skella sér á
tónleika eða njóta annarra menningarviðburða.
Þangað til næst.
Lifið heil.
Ragnar Sigurðsson
BÚÐAREYRI 7, 730 REYÐARFJÖRÐUR
Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Ragnar Sigurðsson • frett@austurglugginn.is • Fréttasími: 477 1750
Auglýsingastjóri og þjónusta við áskrifendur: Guðmundur Y Hraunfjörð • 477 1571 & 891 6484 - auglysing@austurglugginn.is
Fréttaritari í Neskaupstað: Áslaug Lárusdóttir s. 695 8498 - aslaugl@gmail.com • Fréttaritari á Vopnafirði: Bjarki Björgólfsson s. 865 7471 - fagri15@simnet.is.
Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf. • Umbrot og prentun: Héraðsprent.
JÓLA
AMSTRIÐ
Hjalli
AusturlandsmiðstöðvarMenningar
Aðventa, sagan um Fjalla-Bensa og svaðilfarir
hans á fjöllum vikurnar fyrir jól, sem Gunnar
Gunnarsson skrifaði árið 1936 hefur unnið sér
sess sem jólasaga hérlendis hin síðari ár. Á hverju
ári er hún lesin í Útvarpinu síðustu daga fyrir jól
og lestri hennar lokið síðdegis á aðfangadag. Á
síðustu árum hefur sá siður jafnframt skotið rótum
að lesa skáldsöguna upphátt fyrir gesti víða um
land og einnig erlendis.
Í ár dreifist upplestur á Aðventu á tvær helgar
á þeim stöðum sem vitað er um. Sunnudaginn
9. desember mun Hjörtur Pálsson lesa söguna
í Gunnarshúsi í Reykjavík að Dyngjuvegi 8.
Rithöfundasamband Íslands stendur fyrir þeim
lestri. Aðgangur er ókeypis og heitt á könnunni
en lesturinn hefst kl. 13.30. Sama dag verður
Aðventa lesin á þýsku í samkomusal norrænu
sendiráðanna í Berlín kl. 14.00. Þar mun þýski
leikarinn Matthias Scherwenikas lesa söguna
og verður boðið upp á íslenskt bakkelsi í hléi.
Sendiráð Íslands og Gunnarsstofnun standa fyrir
þeim upplestri en Aðventa kom fyrst út á þýsku
hjá forlaginu Reclam árið 1936 og er vel þekkt
meðal þýskra unnenda íslenskra bókmennta.
Á þriðja sunnudegi í aðventu, hinn 16. des-
ember, verður Aðventa lesin samtímis á tveimur
stöðum. Menningarmiðstöð Þingeyinga
stendur fyrir upplestri á Grenjaðarstað og hjá
Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri í Fljótsdal mun
Ævar Kjartansson lesa söguna. Lesturinn hefst
á báðum stöðum kl. 14 og eru allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Fréttatilkynning
Aðventa Gunnars lesin víða
í desember – Reykjavík og
Berlín næsta sunnudag
Á árlegri jólaskemmtun á Reyðarfirði þann 1. des. sl. var kveikt á jólatrénu, sungin jólalög og
jólasveinarnir komu í heimsókn. Eitthvað var annar jólasveinninn ringlaður eftir allt ferðalagið
því börnunum til mikillar undrunar þóttist hann vera Leppalúði. Jólasveinninn virtist ranka fljótt
við sér og átta sig á því að það gengi vart upp og sagðist þá heita Giljagaur. Ekki blasti við honum
minni undrun við þá útskýringu því Giljagaurarnir voru skyndilega orðnir tveir.
Jólafriður
í Eskifjarðar-
kirkju
Tónleikarnir Jólafriður verða í
Eskifjarðarkirkju sunnudaginn 9.
desember klukkan 20:00.
Á tónleikunum koma fram 10 manna kór ásamt
7 manna hljómsveit og flytja þau saman ljúfa
jólatóna. Einsöngvari er Þórunn Lárusdóttir.
Miðaverð er 2000 kr. Frítt fyrir 16 ára og yngri.
13. desember
Tónleikar
Hangikjöt
með uppstúf og
grænum baunum
Fyrir hver jól eru fjölskyldur og einstaklingar sem
leita til Rauða Krossins með ósk um aðstoð til
að halda jólin hátíðleg.
Því er blásið til Fjölskyldutónleika í frystiklefa-
num þar sem fjölmargir listamenn af öllu Austur-
landi koma fram og gefa vinnu sína.
Nánari upplýsingar innan tíðar um þá sem koma
fram.
FRÍTT INN
Tekið á móti framlögum á staðnum og vakin
athygli á Söfnunarreikningi Héraðs- og Borgarf-
jarðardeild Rauðakross Íslands
Léttar veitingar í boði Ölgerðarinnar,
Bónus og Hátíðarkaffi í boði Kaffi Valný