Austurglugginn - 07.12.2012, Side 6
6 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 7. desember
Snæfell – kjötvinnsla
Kaupvangi 23b, Egilsstöðum.
Opið virka daga kl. 8.00 – 17.00.
Gæðin í fyrirrúmi og hagurinn er heimamanna.
Sími 471-2042
snaefellkjot@snaefellkjot.is
www.snaefellkjot.is
Senn líður að jólum
Hamborgarhrygginn, hangikjötið og
steikurnar fyrir jólin færðu hjá okkur.
Einnig er jólakjötið okkar fáanlegt í
verslunum víða um Austurland.
Esther Jökulsdóttir, söngkona mætti austur í
síðustu viku og hélt tónleika í Egilsstaðakirkju.
Tónleikarnir voru feikna vel sóttir og má segja að
það hafi verið húsfyllir í kirkjunni. Hún mætti með
átta manna úrvalslið og flutti jóla- og gospellög að
hætti Mahaliu Jackson. Efnisvalið af hljómplöt-
unni Silent Night var í aðalhlutverki auk gospel-
perla frá I believe og You´ll never walk alone.
Með henni mætti karlakvartett sem var skipaður
þeim Benedikt Ingólfssyni bassa, Einari Clausen,
Skarphéðni Hjartarsyni og Erni Arnarsyni ten-
órum, Aðalheiður Þorsteinsdóttir, lék á píanó, á
trommum var Erik Qvick, Gunnar Gunnarsson
lék á Hammond orgel og Gunnar Hrafnsson
á kontrabassa, einnig lék Örn eitt lag á gítar.
Útsetningar laganna voru unnar af Aðalheiði og
Skarphéðni. Áhrifin voru vægast sagt mögnuð og
greinilegt að þetta var ekki í fyrsta skiptið sem
Esther syngur þessi lög en eins og hún segir, þá
komu jólin ekki í æsku hennar fyrr en platan
með Mahaliu, Silent Night var kominn á fóninn.
Mikil sorg greip um sig á heimili Estherar en
þá hafði jólaplatan lent undir rassinum á systur
hennar og jólin urðu ekki eins án plötunnar. „Við
vorum að skreyta á aðfangadag og vorum að þvæl-
ast með plötuna, einhverra hluta vegna lögðum
við hana í sófann. Ossa settist í sófann ...og þá var
það búið... Ég hélt alltaf að ég hefði gert þetta þar
til hún leiðrétti þetta fyrst í fyrra og þungu fargi
var af mér létt. Það voru skrýtin jól, Jim Reeves
og Brunaliðið sáu aðallega um jólatónana það
árið. Mikil hamingja var, þegar Oddný kom með
nýja Silent Night ein jólin. Hin heilaga þrenn-
ing var þá loks fullkomnuð eða hreindýrasteikin,
kaffisúkkulaði, jólafrómasið hennar mömmu og
Mahalia Jackson að auki.“
Esther kom í sumar ásamt tveimur bræðrum
sínum, þeim Hlöðver og Hlyni og tróð upp með
Jónasi Sigurðssyni á Borgarfirði við mikinn fögnuð
þeirra sem hlýddu á. Systkinin hafa lokið við
að taka upp plötu, lög eftir Hlyn bróðir hennar
sem kemur út næsta vor. Esther er alin upp hér
á Héraði, nánar tiltekið í Grímsárvirkjun en býr
nú ásamt fjölskyldu sinni í Hafnarfirði. Hún lærði
söng í FÍH undir leiðsögn Bjarkar Jónsdóttur.
Síðan var förinni heitið til Spánar, nánar til tekið
til Barcelona í Escola Luthier, sem rekin er af
Arnaldi Arnarssyni gítarleikara og konunnar hans
Alicu. Þar hafði hún tvo kennara, þau hjónin,
Ferran og Isabel. Ferran sá um klassísku hlið-
ina en Isabel kenndi henni spænskan ljóðasöng.
Þaðan útskrifaðist hún 16. júní 2003, lauk „Grad
Superior“ sem klassískur mezzosopran með 9.5
í lokaeinkun. Í dag kennir Esther söng og píanó
við tónlistarskólann Tónsali, sem er tónlistaskóli
í Kópavogi, þar sem áhersla er lögð á rythmíska
tónlist eins og dægurlög, blús, djass og rokk söng.
Hún hefur ekki setið auðum höndum þetta árið.
Í apríl sl. tók hópur tónlistarmanna sig saman
og gaf út Leonard Cohen tribute disk þar sem
Esther ásamt Soffíu Karlsdóttur (sem á ættir
sínar að rekja til Eskifjarðar eins og Esther og til
Fljótsdal) syngja lög Cohens. Diskurinn hefur
hlotið virkilega góðar móttökur hér á landi og
erlendis og er fyrsta upplag eða um 1000 eintök
uppseld. Jólalögin byrjuðu að hljóma ansi snemma
þetta árið hjá Esther eða um miðjan nóvember,
þar sem hún syngur á jólahlaðborðinu í Turninum
Kópavogi á 19 hæð.
Þetta er í fyrsta sinn sem hún kemur með þetta
prógramm hingað austur en er sjötta árið í röð
sem hún flytur það. Seinni tónleikarnir verða
í Fríkirkjunni í Reykjavík þann 13. desember
klukkan hálf níu og þar verður Bjarni Arason
gestasöngvari. Miðarnir eru fáanlegir á midi.is.
Á tónleikum fyrri ára hefur aðsókn verið þannig
að færri hafa komist að en vilja og hafa tónleik-
arnir hlotið mikið lof tónleikagesta. Nú er bara
að vona að þetta verði árlegur viðburður að koma
heim og leyfa okkur hér á Austurlandi að njóta
þessa flottu listviðburðar.
Stórkostlegir
tónleikar Ásdís Jóhanns skrifar
trandur@internet.is