Austurglugginn - 07.12.2012, Síða 7
Myndir: Fljótsdalshérað og Austurglugginn.
4. árg - 3. tbl. 2012
Bygging hjúkrunar-
heimilis á Egilsstöðum
í nokkur Eins og kunnugt er hefur misseri verið
yggingu hjunnið að undirbúningi á b úkrunar-
og gefur að heimilis á Egilsstöðum. Eins skilja
ki síst nú þegar er þar að mörgu að hyggja, ek
ngri stöðu og fjármál ríkisins hafa verið í jafn þrö
fni dregist raun ber vitni. Því hefur þetta verke
ærslan á meira en menn hefðu helst kosið. Útf
því sambærilegum byggingum síðustu ár hefur
verið sú að sveitarfélögin byggja húsnæðið, með
amkvæmfr da- og rekstarsamning við ríkið á bak
við sig. Sveitarfélögin sjá alfarið um fjármögnun
verksins en hlutdeild ríkisins (85% af fyrirfram
skilgreindum byggingarkostnaði) er greidd með
leigusamningi til 40 ára.
Í byrjun ársins var málið komið á það stig að
heimild var fengin um byggingu á hjúkrunarheim-
ili með allt að 40 rýmum. Til að byrja með mun þó
Heilbrigðisstofnunin leigja 10 af þessum rýmum
sem sjúkrarými með ákveðnum samningi þar um.
Í framhaldinu var farið í hönnunarsamkeppni og
að henni lokinni var samið við Hornsteina/Eflu
um hönnun byggingarinnar á grunni vinningstil-
lögunnar. Byggingarnefnd hjúkrunarheimilisins
hefur á þessum tíma fundað mikið með hönn-
uðum og starfsmönnum Framkvæmdasýslu ríkis-
ins og verið í miklu sambandi við starfsmenn
Velferðarráðuneytisins. Lagt var upp með að
hönnun og útboðsgögn væru tilbúin seinni hluta
nóvember, en einhver dráttur hefur orðið á þeirri
vinnu. Stefnt er þó að því að fyrsti hluti verksins,
sem er jarðvinnan, verði boðin út fyrir árslok og
annar hlutinn upp úr áramótum. Reiknað er með
að þrískipta útboðinu, þannig að í fyrsta hluta
verði jarðvinnan, í öðrum hluta verði uppbygg-
ing hússins og í þriðja hlutanum verði frágangur
lóðarinnar.
Það er von bæjarstjórnar að þetta stóra verkefni
verði mikil innspýting fyrir atvinnulífið á svæðinu,
enda um stóra byggingarframkvæmd að ræða. Að
sama skapi er þörfin fyrir þessi hjúkrunarrými
orðin mjög brýn og aðstaða lengi verið óásættan-
leg, þar sem allt að 4 sjúklingar hafa þurft að deila
herbergi í yfirfullri hjúkrunardeild. Samkvæmt
áætlun er gert ráð fyrir að taka hjúkrunarheimilið
í notkun síðla árs 2014.
Verkefnisstjóri sviðslista
Sigríður Lára Sigurjónsdóttir var ráðin verkefnisstjóri sviðslista við Menningarmiðstöð Fljótsdals-
héraðs frá og með 1. ágúst síðast liðnum, til loka árs 2013. Hlutverk menningarmiðstöðvarinnar
er að efla menningar- og listastarf og samkvæmt samningi Fljótsdalshéraðs við Menningarráð
Austurlands (nú Austurbrú) hefur menningarmiðstöðin sviðslistir sem sérsvið, og kemur hluti
fjármögnunar til verkefnisins í gegnum þann samning. Sigríður Lára mun í starfi sínu m.a. hafa
umsjón með samstarfi við stofnanir og skóla á sviði sviðslista með það að markmiði að efla þær
á Austurlandi, hafa samstarf við Þjóðleikhúsið m.a. um leiklistarverkefnið Þjóðleik, veita ráðgjöf
og upplýsingar um sviðslistir og vinna að framþróun listgreinarinnar á svæðinu. Einnig kemur
Sigríður Lára að mótun sviðslistanáms við listabraut Menntaskólans á Egilsstöðum og kennir
tengda áfanga við skólann.
Sigríður Lára hefur undanfarin ár stundað doktorsnám við HÍ þar sem leikhús og gjörningar á
Íslandi síðustu ár hafa verið hennar viðfangsefni. Hún hefur lokið fjölda námskeiða í leiklist, leik-
ritun og leikstjórn hérlendis og erlendis, starfað með leikfélögum og að málefnum leiklistarinnar.