Austurglugginn - 07.12.2012, Page 10
Á liðnu sumri var tölvuþjónusta á vegum sveitar-
félagsins boðin út. Samningur um altæka tölvu-
þjónustu við Nýherja, sem verið hafði í gildi um
skeið rann út í lok september og vildu menn því
nota tækifærið og kanna hvort hægt væri að haga
þessum málum á annan og ódýrari hátt, en jafn-
framt að fylgja eftir tæknibreytingum sem eru
mjög tíðar í þessum geira.
Samið var við AN-lausnir á Egilsstöðum um
úttekt á tölvumálum sveitarfélagsins og á grunni
hennar unnu starfsmenn fyrirtækisins útboðs-
lýsingu og útboðsgögn. Útboðið var fjórskipt,
þannig að hægt var að bjóða í hvern lið fyrir sig ,
eða þá alla eftir hentugleikum bjóðenda.
Niðurstaða tilboðanna var sú að samið var
við Myndsmiðjuna/Tölvuteymi um kaup á net-
þjónum. Samið var við Nýherja um hýsingu og
tengingar og að síðustu var ákveðið að hafna öllum
tilboðum um notendaþjónustu og tölvuumsjón og
ráða starfsmann til að sjá um þau mál hjá sveitar-
félaginu. Auglýst var eftir starfsmanni og eftir að
metumsóknir höfðu verið nar og rætt hafði verið
Haddvið umsækjendur var ur Áslaugsson ráðinn
til starfans.
AkureyHaddur er 37 ára ringur og starfaði
Símansáður á fyrirtækjasviði við rekstur net-
ækja ogþjóna, útstöðva og jaðart uppsetningu á
ona hanIP símkerfum. Sambýlisk s er Sigríður
EgilsstöðuFanney Guðjónsdóttir frá m og eiga
dan er nú aþau saman einn son. Fjölskyl ð huga
Haddur er þegar að flutningi til Egilsstaða, en
raði. kominn til vinnu hjá Fljótsdalshé
nna við að Nú eru starfsmenn Nýherja að vi
í tölvu-setja upp nýja netþjóna Fljótsdalshéraðs
kerfi sal sínum og færa þangað gögn og tölvu
sveitarfélagsins af eldri netþjónum fyrirtækis-
ins. Jafnframt verður unnið við uppfærslur og
breytingar á samböndum stofnana, til samræmis
við kröfur í útboði og tilboð Nýherja.
nÁformað er síðan að taka búnaðarmál stof -
sveitarfélagsins til gagngerðar endurskoð-anna
eftir því sem ástand hans gefur tilefni til og unar,
yfa. Þar er meðal annars til skoðunar fjármunir le
rvélar, sem keyra áað setja upp svokallaðar sýnda
einum miðlægum þjóni. Þessi búnaður hefur þá
kosti að hafa litla bilanatíðni, er mjög hljóðlátur
og notar litla orku, miðað við hefðbundnar borð-
eða fartölvur. Auk þess er hann mun ódýrari í
nnkaupi og einfaldari í umsýslu. Þessi búnaður i
var settur upp í Fellaskóla sl. vor og nú er verið
að setja sambærilegan búnað upp í Brúarásskóla.
Einnig hefur svona sýndarvél verið sett upp bæði
í Þjónustumiðstöðinni og á bæjarskrifstofunni,
í stað hefðbundins tölvubúnaðar sem bilaði og
þurfti að endurnýja.
Eftir þessar breytingar er það von manna að
finni mun á hraða og virkni tölvukerf-notendur
ta verkefni m.a. með það isins, enda farið í þet
fyrir augum.
Ný tilhögun í tölvumálum
Fljótsdalshéraðs
Nýr skólastjóri og nýtt húsnæði
Tónlistarskólans á Egilsstöðum
Fljótsdalshérað er á Facebook
Á Facebook síðu Fljótsdalshéraðs má finna upplýsingar um ýmislegt sem er á döfinni í sveitarfélaginu,
s.s. fréttir og tilkynningar. Þar eru einnig myndir frá ýmsum viðburðum. Vilji menn fylgjast með þá
er um að gera að vera „vinur“ Fljótsdalshéraðs.
Viltu fá fréttir af heimasíðu Fljótsdalshéraðs í tölvupósti?
Ef þú vilt fá fréttirnar á heimasíðu sveitarfélagsins sendar til þín í tölvupósti þá þarftu bara að skrá
þig á póstlistann og fréttaveituna sem þú finnur aðgang að neðst á forsíðu heimasíðu sveitarfélagsins
Bæjarstjórnin er í beinni!
Fundir bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs eru sendir beint út á Netinu, í hljóð og mynd. Fundirnir eru
haldnir 1. og 3. miðvikudag í mánuði og hefjast kl. 17.00. Dagskrá hvers bæjarstjórnarfundar er
birt á mánudögum sem frétt á heimasíðu sveitarfélagsins. Það er líka hægt að horfa á útsendingar
funda eftir að þeir hafa farið fram, þar sem hver fundur er varðveittur í nokkurn tíma. Viljir þú
fylgjast með umræðum kjörinna fulltrúa um málefni sveitarfélagsins er þetta góð leið til þess.
Í haust urðu talsverðar breytingar á starfi
Tónlistarskólans á Egilsstöðum. Ráðinn var nýr
skólastjóri, Daníel Arason. Daníel er
fæddur og uppalinn í Neskaupstað
og hefur starfað sem tónlistarmaður
á Austurlandi um árabil. Daníel hefur
verið tónlistarskólakennari auk þess að
hafa starfað sem skólastjóri Tónskóla
Djúpavogs frá 1996-1999. Hann
hefur einnig starfað sem organisti og
kórstjóri.
Í haust flutti skólinn sig einnig um set en hann
hefur um langt skeið verið staðsettur í Selási 18.
Flutt var inn í húsnæði Egilsstaðaskóla og hefur
tónlistarskólinn nú til umráða 5 kennslustofur
þar og aðgang að tónmenntastofu og sal. Með
þessu er vonast til að hægt verði að auka sam-
vinnu milli grunnskóla og tónlistarskóla. Nú býðst
nemendum tónlistarkennsla á grunnskólatíma
og notast við breytilega stundaskrá sem þýðir að
nemandi kemur ekki alltaf á sama tíma í tónlistar-
skólann og missir þ.a.l. ekki alltaf sama
tíma í grunnskólanum. Nemendur
tónlistarskólans eru nú um 120 og
mikil aðsókn í skólann. Átta kenn-
arar starfa við skólann og kennt er á
öll helstu hljóðfæri.
Á dögunum var haldin árshátíð elsta
stigs Egilsstaðaskóla. Sett var upp
leikritið 6tán á (von)lausu eftir Gísla
Rúnar Jónsson. Tónlistarskólinn tók þátt í þeirri
uppfærslu með aðstoð við söngæfingar og undir-
leik. Sýndar voru tvær sýningar við góða aðsókn.
Þá má nefna að tónlistarskólarnir á Héraði
héldu sameiginlega tónleika þann 16. nóvember
síðastliðinn. Þar sýndu nemendur allra skólanna
hvað í þeim býr og voru þessir tónleikar mjög
fjölbreyttir og skemmtilegir.