Austurglugginn - 07.12.2012, Blaðsíða 16
Þann 1. desember opnaði Skíðasvæðið í Stafdal
og fjölmargir gerðu sér ferð þangað á skíði. Sömu
sögu er að segja af skíðasvæðinu í Oddskarði en
það opnaði um miðjan nóvember og hefur verið
opið í 12 daga frá þeim tíma. Aðsóknin í Oddskarð
hefur verið góð í vetur.
Skíðakennsla hafin
Skíðasvæðið í Stafdal verður opið fram yfir áramót
sex daga vikunnar. Opið verður alla daga aðra en
mánudaga frá klukkan 17 – 20 og um helgar frá
10 - 16. Skíðaæfingar eru nýhafnar í Stafdal en
boðið er upp á byrjendanámskeið fyrir börn og
fullorðna og svo stendur Skíðafélagið í Stafdal
fyrir æfingum barna á aldrinum 3-16 ára.
Ákvörðun um opnunartíma Skíðasvæðisins í
Stafdal hefur ekki verið endanlega ákveðin en
opnunartíminn verður auglýstur innan fárra daga.
Góð aðsókn í Oddskarð
„Þetta var önnur helgin hjá okkur. Búið að vera
opið í 11 daga frá miðjum nóvember. Aðsókn
hefur verið góð eða um 70 gestir að meðaltali
hvern dag“ segir Dagfinnur Ómarsson forsvars-
maður Skíðamiðstöðvar Austurlands í Oddskarði.
Hann segir að fyrirhugað sé að hafa opið til 10.
desember en þá verður farið í frí fram að 26. des.
Stefnt er að því að hafa allar lyftur opnar milli
jóla og nýárs.
Opnunartími fram að 10. des. er frá kl. 16 - 19
virka daga og frá kl. 12 - 15 um helgar. 26. des. verður
opið frá kl. 10 - 16. Dagana 27. og 28. des. verður
opið frá kl.12 - 19 og þann 29. des. frá kl. 10 - 16.
Nýverið gengu forsvarsmenn Körfuknattleiks-
deildar Hattar frá tveggja ára samningi við þjálfara
liðsins Viðar Hafsteinsson eða til ársins 2014.
Viðar er spilandi þjálfari með meistaraflokki karla
og þjálfar auk þess einn yngri flokk.
Viðar tók við þjálfun Hattar liðsins 2011 og
stýrði því sl. leiktíð. Árangur Hattar var góður og
náðu þeir fjórða sæti og komust í umspil um laust
sæti í úrvalsdeild. Gengi liðsins í vetur hefur verið
gott en Höttur er sem stendur í toppbaráttu 1.
deildar. „Viðar stóð fyrir sumaræfingum sl. sumar
sem hefur skilað sér vel og leikmenn mættu tilbúnir
í verkið. Viðar stefnir að því að halda körfubolta-
búðir næstkomandi sumar en Körfuknattleiksdeild
Hattar stefnir markvisst að fjölgun iðkenda á
komandi misserum. Síðustu ár hefur verið unnið
gott starf í yngri flokkum og er stefnan að halda
því góða starfi áfram“ segir í tilkynningu forsvars-
manna körfuknattleiksdeildarinnar.
Viðar Hafsteinsson, þjálfari Körfuknattleiksdeildar Hattar og
Þórhallur Harðarson, formaður meistaraflokksráðs að handsala
samninginn eftir undirritun.
Mynd/GG
Skíðasvæði Austurlands opnuð
Viðar Hafsteinsson framlengir til 2014