Austurglugginn - 10.04.2015, Síða 3
AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 10. apríl 3
Landsvirkjun hefur um áratugaskeið
starfrækt sumarvinnuflokka ungs
fólks. Hóparnir sinna viðhaldi,
uppbyggingu og fegrun starfsstöðva
Landsvirkjunar og vinna jafnframt að
ýmsum samstarfsverkefnum víða um
land. Samvinna sumarvinnuflokka
Landsvirkjunar og félagasamtaka,
sveitarfélaga og stofnana hefur skilað
sér í auknum umhverfisgæðum og betri
aðstöðu til útivistar og ferðamennsku.
Í boði er vinnuframlag sumarvinnu
flokka og flokksstjórn yfir þeim. Verkefnin
lúta að ræktun, hreinsun, viðhaldi og
öðrum umhverfisbótum ásamt ýmsum
samfélagsverkefnum.
Óskað er eftir að samstarfsaðilar leggi fram
vel skilgreind verkefni. Umsóknareyðublað
með nánari upplýsingum er að finna á vef
Landsvirkjunar, www.landsvirkjun.is.
Nánari upplýsingar í síma 515 9000, og hjá
thora.maria.gudjonsdottir@landsvirkjun.is
Umsóknarfrestur rennur út 30. apríl.
Umsóknareyðublöð er að finna á
landsvirkjun.is
Landsvirkjun auglýsir eftir
samstarfsaðilum að verkefninu
Margar hendur vinna létt verk
sumarið 2015.
Aðildarfélög Starfsgreinasambandsins
afturkölluðu sameiginlega atkvæða-
greiðslu um verkfallsboðun eftir að
Félagsdómur dæmdi sambærilega at-
kvæðagreiðslu nokkurra félaga innan
Rafiðnaðarsambandsins ólögmæta
þar sem atkvæði höfðu verið greidd
og talin sameiginlega. SA höfðaði
málið fyrir dómnum. Það eru undar-
legar áherslur að þvæla málum fyrir
dómstólum frekar en að snúa sér að
hinu raunverulega verkefni, að ganga
frá kjarasamningum.
Nú mun hvert félag fara í at-
kvæðagreiðslur um vinnustöðvun
til að fylgja eftir kröfum félaganna
en meginkrafa aðildarfélaga SGS er
að lágmarkslaun verði hækkuð í 300
þúsund krónur innan þriggja ára og
stefna félögin saman á verkfallboðun
til að þrýsta á um að ná fram mark-
miðum sínum um mannsæmandi
kjör. Aðgerðirnar ná til félagsmanna
sem starfa í fiskvinnslu, kjötvinnslu
og sláturhúsum, í þjónustugreinum,
svo sem ferðaþjónustu og ræstingum
og í byggingarstarfsemi, mannvirkja-
gerð, iðnaði og flutningsgreinum.
Eftir helgina munu félagsmenn
AFLs Starfsgreinafélags sem starfa
í þessum greinum fá senda atkvæða-
seðla heim þar sem þeir greiða atkvæði
um tillögu trúnaðarráðs félagsins um
verkfallsboðun. Atkvæðagreiðslan
verður rafræn en aðstoð býðst á skrif-
stofum félagsins fyrir þá sem þess
óska. Þeir félagsmenn sem falla undir
ofangreint samningssvið en fá ekki
senda atkvæðaseðla eru beðnir um að
snúa sér til félagsins eftir skýringum.
Baráttan er núna- vertu með?
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir,
formaður AFLs Starfsgreinafélags.
Atkvæðagreiðslur um verkföll
Skýringar:
Boðað hefur verið til vinnustöðv-
unar vegna kröfu AFLs um samn-
inga við undirverktaka á Alcoalóð
Viðræður ganga ekkert í samn-
ingum verslunarmanna og iðn-
aðarmanna.
Viðræður eru í gangi vegna starfs-
manna Alcoa.
Samningar við ríkið og sveitar-
félögin renna út í lok apríl.
Ekki er verið að fara í atkvæða-
greiðslum hjá þessum hópum núna.
Aðrir hópar sem eru ekki í deilunni
í dag eru sjómenn, starfsmenn á
bændabýlum, við uppstokkun og
beitningu og við Norðfjarðargöng
auk nokkurra sérsamninga.
Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri
lækninga hjá Heilbrigðisstofnun
Austurlands, segir að verkfall
geisla- og lífeindafræðinga hafi
„ekki mjög alvarlegar afleiðingar“
í fyrstu á starfsemi stofnunarinnar
þar sem báðar stéttir sinni áfram
bráðarannsóknum.
„Hins vegar er það svo að rann-
sókn sem ekki flokkast sem lækn-
isfræðilega bráð í dag, getur að
óbreyttu, eða versnandi ástandi
viðkomandi einstaklings, ekki
beðið nema takmarkaðan tíma og
þar með getur eftir einn – eða fáa
daga orðið nauðsynlegt að fram-
kvæma hana,“ segir Pétur.
Dráttur á rannsóknum sem ekki
teljast bráðar getur tafið vinnslu í
veikindatilfellum og jafnvel úrræða.
Hann segir að reikna megi með
„meiri og erfiðari afleiðingum“
dragist verkföllin á langinn.
Hann segir að rétt sé að taka
fram að stéttarfélög viðkomandi
stétta sýni mikla ábyrgð gagnvart
því að aðstoða stjórnendur við að
tryggja öryggi sjúklinga.
Yfirlæknir Fjórðungssjúkra-
hússins í Neskaupstað segir að
þar geti verkfallið mögulega tafið
fyrir útskrift sjúklinga auk þess
sem vinna aukist hjá læknum og
hjúkrunarfræðingum.
GG
Ekki
alvarlegar
afleiðingar
af verkfalli
í fyrstu