Austurglugginn


Austurglugginn - 10.04.2015, Page 5

Austurglugginn - 10.04.2015, Page 5
www.sgs.is 300 þúsund króna lágmarkslaun – atkvæðagreiðsla um verkfall hefst aftur mánudaginn 13. apríl Aðalfundur verslunarmannadeildar AFLs Starfsgreinafélags verður haldinn 14. apríl 2015 kl. 18 – að Víkurbraut 4 Hornarði Dagskrá 1. Kjaramál 2. Skýrsla um störf deildarinnar liðið starfsár 3. Kjör stjórnar deildarinnar 4. Önnur mál Stjórn Verslunarmannadeildar AFLs Aðalfundur verkamannadeildar AFLs Starfsgreinafélags verður haldinn 16. apríl 2015 kl. 18:00 – að Búðareyri 1 Reyðarrði Dagskrá 1. Kjaramál 2. Skýrsla fum störf deildarinnar 3. Kjör stjórnar deildarinnar 4. Önnur mál Stjórn Verslunarmannadeildar AFLs Kór Menntaskólans við Hamrahlíð heldur tónleika í Djúpavogskirkju næstkomandi sunnudagskvöld og hefjast þeir klukkan 20:00. Kór MH er skipaður 83 nemendum á aldrinum 16 til 20 ára og meðal kórfélaga eru margir hljóðfæraleik- arar. Stjórnandi kórsins er Þorgerður Ingólfsdóttir, en fararstjóri í ferðinni er rektor Menntaskólans við Hamra- hlíð, Lárus H. Bjarnason. Erla Dóra Vogler, ferða- og menn- ingarmálafulltrúi Djúpavogshrepps, segir komu kórsins mjög ánægjulega. „Allir menningarviðburðir eru að sjálfsögðu af hinu góða og fjöl- breytni í framboði viðburða er mik- ilvæg. Okkur þykir mjög gaman er að fá hingað kór af þessari stærðar- gráðu sem hefur getið sér gott orð til fjölda ára. Ekki nóg með að kórinn sé í fremstu röð heldur er stjórnandi kórsins, Þorgerður Ingólfsdóttir, goð- sögn í lifanda lífi. Það er alveg ómetanlegt kórinn bjóði upp á tónleika sem þessa án endur- gjalds. Það eina sem þau biðja um er tónleikaaðstaða, en sókn Djúpavogs- hrepps leggur til Djúpavogskirkju og kirkjukórinn mun taka að sér að bjóða kórmeðlimum upp á veitingar að loknum tónleikunum. Svo vona ég að bæði íbúar úr sveitarfélaginu, sem og nærliggjandi, nýti þetta tækifæri, mæti og njóti.“ Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur á Djúpavogi „Gaman að fá hingað kór af þessari stærðargráðu“ KBS

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.