Austurglugginn


Austurglugginn - 10.04.2015, Qupperneq 6

Austurglugginn - 10.04.2015, Qupperneq 6
6 Föstudagur 10. apríl AUSTUR · GLUGGINN Elísabet Reynisdóttir fluttist með fjöl- skyldu sinni á Reyðarfjörð fyrir stuttu. Hún vinnur nú að mastersverkefni sínu í næringarfræði við Háskóla Ís- lands og kennir við Menntaskólann á Egilsstöðum. Elísabet vill láta til sín taka í samfélaginu og verkin tala. Austurglugginn heimsótti hana á dögunum. Elísabet er fædd í Vestmannaeyjum árið 1968 en fluttist með fjölskyldu sinni til Vopnafjarðar í kjölfar goss- ins. „Ég man óljóst eftir gosinu,“ segir Elísabet, sem í daglegu tali er kölluð Beta. „Pabbi var fljótur að reisa hús fyrir austan, enda alveg sannfærður um að það yrði aldrei byggilegt í Eyjum aftur. Amma mín í Eyjum, Ragnheiður Valdórsdóttir, var reyndar Reyðfirðingur en fór ung kona til Eyja að passa fyrir bróður sinn og giftist þar honum Palla afa.“ Móðir Betu, Guðrún Pálsdóttir, er því frá Vestmannaeyjum en faðir hennar, Reynir Árnason frá Vopnafirði þar sem þau búa enn. „Það var æðis- legt að alast upp í litlu sjávarþorpi og þaðan á ég margar góðar minn- ingar sem og góða vini. Ég reyndi mikið að sannfæra börnin mín um hve frábært væri að búa út á landi – en fyrsta skrefið í því var að flytja frá Reykjavík til Hveragerðis árið 2009 og svo hingað austur. Þau voru miskát með þetta en að ég tel alsæl í dag.“ Vissi frá fyrstu stundu að hann væri sá rétti Eftir skóladvöl á Laugum lá leið Betu til Vestmannaeyja, þar sem hún gekk í framhaldsskóla um tíma, en flutti svo til Reykjavíkur. Hún hitti eigin- mann sinn, Gunnar Hrafn Gunn- arsson, í Eyjum þegar þau voru 19 ára og frá fyrstu stundu vissi hún að þau yrðu hjón. „Ég sá hann eftir ball í Eyjum þar sem hann stóð fyrir utan. Ég hafði ekki hugmynd um hver hann var, fannst hann pínu hallærislegur í rauðum joggingbuxum og strigaskóm, en samt svo sætur. Ég hugsaði með mér að maðurinn væri líklega hér á vertíð.“ Í ljós kom að um trommara Greifanna var að ræða. „Við enduðum á því að tala saman alla nóttina og ég sagði vinkonum mínum að þetta væri maðurinn sem ég ætlaði að giftast.“ Leiðir Betu og Gunnars lágu þó ekki saman fyrr en mörgum árum síðar. „Ég fylgdist alltaf með honum úr fjarlægð og stóð föst á því að hann væri sá eini sanni, okkar tími kæmi. Vinir mínir nánast gubbuðu þegar ég talaði um þetta,“ segir Beta og hlær. Á þessum árum voru hvorki far- símar né samfélagsmiðlar og því ekki eins aðgengilegt að hafa upp á fólki og nú. Þegar Beta hins vegar frétti að draumaprinsinn væri á lausu gerði hún sér þó lítið fyrir og hafði upp á honum. „Ég hringdi í Vélskólanum þar sem ég vissi að hann væri í námi. Mér var sagt að allir væru í prófum og lét því skilja eftir svo hljóðandi skilaboð og símanúmerið þar sem ég vann; „Ætla að kaupa bílinn þinn, hringdu þegar þú getur. Kveðja Elísabet.“ Gunna var afhentur mið- inn þegar hann var að setjast niður í prófið, en hann vissi ekkert um hvað málið snérist, því í fyrsta lagi þekkti hann mig aðeins sem Betu og í öðru lagi var hann alls ekki að selja bílinn sinn.“ Skemmst er frá því að segja að hann hringdi til baka og úr varð ástarsamband og síðar hjónaband. Beta og Gunnar eignuðust fljótlega börnin sín tvö, fyrst Reynir Rafn árið 1995 og Auði fimm árum síðar. Á þessum árum rak Beta lítið fyrirtæki sem seldi tannlæknavörur, vann við útvarpsþátt og fannst að eigin sögn lífið hafa upp á of mikið að bjóða. Plan B Eftir fæðingu Auðar veiktist Beta alvarlega þegar hún greindist með Gillian Barré syndrom, sem er vöðva- lömun og lýsir sér á svipaðan hátt og MS og MND. „Þarna var Auð- ur aðeins fjögurra mánaða. Ég fann að það var eitthvað að, ég var alltaf þreytt og slöpp. Hélt þó að ég væri bara með vöðvabólgu, enda með barnið á brjósti. Þetta gerðist allt rólega, sem hæg lömun sem byrjaði í fingrum og dreifðist svo smám saman um líkamann. Gunni sagði reyndar að það hefði verið fínt þegar þetta lagðist á raddböndin á mér því þá hefði hann fengið að tala smá stund,“ segir Elísabet og skellihlær og bætir því við að þau hafi passað sig á því að halda í húmorinn gegnum þetta erfiða tímabil. Elísabet var átta mánuði á Grens- ási og eftir það á Reykjalundi. „Ég lifði hratt og var alltaf allt í öllu – ég Plan B er ekkert endilega verra Fjölskyldan við fermingu Auðar. Frá vinstri; Reynir Rafn, Gunnar, Auður og Beta „Við enduðum á því að tala saman alla nóttina og ég sagði vinkonum mínum að þetta væri maðurinn sem ég ætlaði að giftast.“

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.