Austurglugginn


Austurglugginn - 10.04.2015, Side 7

Austurglugginn - 10.04.2015, Side 7
 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 10. apríl 7 keyrði mig hreinlega í kaf með fyrr- greindum afleiðingum. Við fengum svo sannarlega skellinn og þurftum að endurmeta líf okkar.“ Stendur upp og dustar af sér moldina Í kjölfar veikindanna ákvað Elísabet að fara í skóla. „Fyrst lífið bauð mér upp á þetta, þurfti ég plan B. Ég ákvað að bjarga sjálfri mér, en þarna voru liðin þrjú ár og ég hafði ekki náð heilsu. Mig hafði alltaf langað til þess að læra annað hvort matvæla- og næringar- fræði eða tannlækninn. Þarna fannst mér yfirþyrmandi að fara í sex ára tannlæknanám án þess að vera einu sinni búin með stúdentinn. Niður- staðan varð sú að ég fór í þriggja ára nám í næringarþerapíu í Danmörku sem byggðist upp á því að ég mætti í lotu þangað einu sinni í mánuði, nokkra daga í senn. Læknar voru ekki bjartsýnir á að ég héldi námið út auk þess sem þeir bentu mér á að hópíþrótt og skíði yrði aldrei á minni stundatöflu. Þeir reyndust ekki sannspáir því ég kláraði námið og fer bæði á skíði og æfi blak í dag.“ Elísabet setti sér þriggja ára mark- mið sem samanstóð að því að klára námið í Danmörku og stúdentspróf fyrir fertugt, sem og hún gerði. Bætti þó um betur og hélt áfram og er nú að klára mastersnám í næringarfræði við Háskóla Íslands. „Þetta hefur verið pínu töff á stundum, en er að hafast. Maður hefur aðeins um tvennt að velja – að gefast upp eða dusta af sér moldina eftir fallið. Auðvitað eru vankantar á því að missa heilsuna, en ég hef aldrei verið að velta mér mikið upp úr þessu eða láta það stoppa mig að ég sé kannski orkuminni en aðrir – ég haga bara lífi mínu samkvæmt því eða reyni að taka tillit þegar ég finn að ég er að keyra mig út. Þetta var mikil lífsreynsla og eins og ég segi alltaf, plan B er ekkert endilega verra, ég veit hreinlega ekki hvert hvert ég hefði stefnt með plan A. Í staðinn fékk ég að vera heimavinnandi með börnin mín í mörg ár, það er frábært tækifæri þó svo það hafi ekki komið til af góðu.“ Fann hárrétta húsið Það hafði alltaf blundað í Elísabetu að koma aftur austur og árið 2007 sá hún tækifærið. „Alcoa auglýsti í blöðunum eftir vélstjóra og tækni- fræðingi, en Gunni er vélstjóri og trommuleikari. Mig langaði aftur austur, sérstaklega til þess að komast nær fólkinu mínu. Gunni þvertók fyrir slíkar hugmyndir og fannst ég vera orðin eitthvað óskýr í kollinum.“ Á þessum tíma var Gunnar að klára tæknifræðinám frá HR og fór í skoðunarferð austur í Alcoa og varð mjög hrifinn af fyrirtækinu. Svo vildi til að þá vantaði vél- og tæknifræð- ing og að endingu var hann lokkaður austur og segir Beta að hann hafi verið knúsaður í starfið, en hann kolféll fyrir fólkinu, starfsumhverfinu og staðnum. Hann bjó fyrsta árið einn á Reyðarfirði og þegar flutningar fjölskyldunnar nálguðust klikkaði fyrirhugað leiguhúsnæði. „Ég vildi þá bara kaupa hús og Gunni spurði mig hvort ég vildi nú ekki prófa að búa á staðnum fyrst. Ég sagði að það væri allsstaðar gott að búa og sá ekki vandamálið við þetta. Þarna vorum við stödd í fríi á Húsavík. Það var frábært veður og við stóðum út á palli við kvisthús sem stóð við á. Gunni segir; „Ókei Beta, finndu þá hús. En, ég vil bara kvisthús sem stendur við á.“ Ég rauk inn, settist við tölvuna og fann þetta hús – kvisthús við á. Gunni átti ekki möguleika á að bakka út úr þessu og við vorum búin að kaupa hús- ið nokkrum dögum síðar. Ég segi honum reyndar oft að gæta að því hverju hann óskar sér því það hefur tilhneygingu til að rætast." Nýbúar í þorrablótsnefnd Fjölskyldunni líkar vel á Reyðarfirði en Betu þótti erfitt að komast inn í samfélagið. „Mér fannst þetta erfitt í fyrstu og samfélagið lokað. Við vorum dregin í þorrablótsnefnd í vetur og kynntumst þeim hópi mjög vel, en þekktum líklega ekki helminginn af þeim sem við vorum að gera grín að. Það er alveg magnað að upplifa hve slík nefnd, samsett af ólíkum ein- staklingum, getur unnið vel saman og gert flotta hluti. Líklega er snið- ugt að hafa alltaf ein nýbúahjón í nefnd til þess að koma þeim inn í samfélagið.“ Kamelljónið Elísabet Eftir að hafa setið með Elísabetu um stund er ekki erfitt að átta sig á því að hún hefur gaman að lífinu og nýtur þess að gera skemmtilega hluti. „Ég er algert kamelljón og finnst eigin- lega gaman að gera allt mögulegt. Ég er í blaki með frábærum hópi hér á Reyðarfirði, við fjölskyldan förum á skíði, förum mikið út að ganga með hundinn í þessu dásamlega umhverfi sem við búum við. Ég hef líka gaman af lestri og eldamennsku og er ein- mitt með matreiðslunámskeið fyrir Austurbrú núna í vetur. Ég finn mér alltaf eitthvað og finnst gaman að gefa öllu sjenst, en mesta ánægju hef ég af mannlegum samskipum og eyða tíma með fólki. Vinir mínir segja samt að ég geti ver- ið orðhvöss og hafi sterkar skoðanir, en ég vil meina að það eigi að ræða hluti af ástríðu og hafa skoðun og tjá sig. Reyndar á ég mikið af karlkyns vinum og vil ég meina að þeir þoli oft betur góðar rökræður sem hafa engan eftirmála. Ég er einmitt svo ánægð með að börnin mín geti rökrætt, tjáð sínar skoðanir og staðið á sínu – ég tel það kost á meðan aðrir segja að það sé yfirgangur, svona getum við verið misjöfn. Annars held ég að ég sjái nú oft spaugilegu hliðina á lífinu og er ekk- ert sérlega mikið að velta leiðinleg- um hlutum fyrir mér. Góður hlátur er eitthvað sem ég elska og ég nýt þess í botn að hlæja og njóta lífsins.“ Bæjarhátíðir eiga að byggja á listafólki svæðisins Að endingu barst talið að íbúasam- tökum Reyðarfjarðar, en Elísabet er ein þeirra sem tók þátt í að virkja þau á nýjan leik og situr nú í fimm manna stjórn þeirra. „Mig langaði til þess að starfa í samtökunum og leggja þannig mitt að mörkum við að gera gott samfélag enn betra. Maður heyrir allt of oft raddir þess efnis að ekkert sé að gerast á staðnum. Okkur langar að rífa þetta upp í samvinnu við íbúa. Fyrirhugað er að endur- vekja Bryggjuhátíðina í einhverri mynd í sumar og tengja jafnvel við Hernámsdaginn. Bæjarhátíðir eiga að byggja á lista- fólki svæðisins. Við eigum ótrúlega mikið af hæfileikaríku fólki sem er um að gera að efla og nýta. Það þarf ekki alltaf að að leita út fyrir, bara að smúla rétta fólkinu út og virkja það. Sjáum það best þegar kemur að okkar árlega þorrablóti, hvernig hæfi- leikarnir leynast í hverri manneskju. Við eigum það til að halda að gras- ið sé grænna hinumegin, en svo er ekki. Sagan af gamla manninum er ansi góð. Hann fór ungur að heiman til þess að leita að gulli. Hann eyði- lagði líkama sinn með því að grafa og grafa eftir gulli um allan heim, án árangurs. Að endingu fór hann heim á túnblettinn sem gamall maður til þess að deyja. Eftir andlát hans fannst gullnáma, aðeins 50 metrum frá húsinu. Við erum svo ansi oft með gullnámuna í bakgarðinum án þess að gefa því gaum. Við þurfum að líta okkur nær og njóta.“ KBS Betu þykir fátt skemmtilegra en að verja tíma við vinum sínum. Frá vinsrti; Lísbet Alexandersdóttir, Elísabet, Berglind Ingvarsdóttir og Jóna Bjarnadóttir. „Við erum svo ansi oft með gull- námuna í bakgarðin- um án þess að gefa því gaum.“

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.