Austurglugginn


Austurglugginn - 10.04.2015, Side 11

Austurglugginn - 10.04.2015, Side 11
 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 10. apríl 11 Sérfræðingur hjá norrænu rann- sóknamiðstöðinni Nordregio segir það hafa verið forvitnilegt að sjá með eigin augum þá þróun sem orðið hafi í Fjarðabyggð á síðustu árum með tilkomu mikillar fjárfestingar í stórum vinnustað. Sveitarfélagið er eitt af tólf norrænum sveitarfélögum sem eru til skoðunar í verkefni mið- stöðvarinnar um byggðaþróun. „Við höfum heyrt og lesið tölu- vert um Fjarðabyggð en vildum sjá staðinn með okkar eigin augum, hvar hlutirnir eru staðsettir, meta fjarlægðirnar og hvað það þýðir fyrir lífið á svæðinu. Íbúaþróunin hefur verið jákvæð hér síðustu ár í kjölfar mikillar fjárfestingar og okkur þykir áhugavert að skoða það,“ segir Lis- beth Greve Harbo, rannsakandi hjá Nordregio sem er með höfuðstöðvar sínar í Stokkhólmi. Nordregio vinnur að norrænum samanburðarrannsóknum á ýmsum svæðum. Vinna Lisbeth er hluti af verkefni sem norræna ráðherraráðið fyrirskipaði um byggðaþróun á norð- urslóðum. Rannsókn hennar gengur út á að skoða smábæi á norðurslóð- um, það er á Grænlandi, Íslandi og Færeyjum auk norðlægari byggða í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Valdir voru tólf staðir, tveir í hverju landi, sem eiga að endurspegla flóruna út frá umhverfi, samfélagsgerð, atvinnu- möguleikum og fleiru. „Við reyndum að velja staði sem endurspegla fjölbreytnina. Sums stað- ar fækkar fólki, annars staðar fjölgar því, við skoðum aldursdreifingu og fleira,“ segir hún en Árborg var hitt íslenska sveitarfélagið sem varð fyrir valinu. „Í Fjarðabyggð hefur íbúum fjölgað eftir tilkomu álversins og það er áhugavert dæmi fyrir aðra staði eins og Grænland þar sem hyllir undir fjárfestingar í stórum atvinnutækifærum. Við skoðum líka bæi eins og Hestvig sem hefur búið við olíuiðnað árum saman til að sjá hver langtímaáhrifin eru.“ Skoða viðhorf heimamanna Það er hins vegar ekki eingöngu horft á stóru tækifærin. „Við erum að skoða viðhorf heimamanna og safna heild- stæðri þekkingu á því hvað er að ger- ast í samfélögunum. Sums staðar er áherslan á viðskiptatækifæri, annars staðar á öryggismál. Það er mikið talað um hvað gerist ef heimskautaísinn bráðnar og siglingaleiðir opnast eða ef olía finnst á nýjum svæðum. Við erum líka að horfa á hið smáa. Býsna oft tengist fólksfjölgunin mikilli fjár- festingu eins og þið hafið séð hér en við skoðum líka samfélög þar sem atvinnulífið byggir á nokkrum mis- munandi greinum. Það þarf að taka það með í reikninginn ef ætlunin er að byggja upp lifandi samfélag. Íbúarnir virðast opnir fyrir ólíkum lausnum og gera sér grein fyrir að það þarf líka að styðja við litla frumkvöðul- inn, jafnvel þótt hann sjái ekki nema einni fjölskyldu farborða. Þegar við ræðum við fólkið þá fáum við hug- myndir og sýn og það vill ekki bara hið stóra. Það getur verið einfalt og ódýrt að ráðast í litlu atriðin og oft er hægt að vinna í þeim á sama tíma og stefnt er að stærri markmiðum.“ Móta stefnurnar að vilja fólksins Verkefnið skiptist upp í þrjá verkþætti. Í fyrsta skrefinu er litið á viðhorf íbúa en til þess var haldinn íbúafundur á Reyðarfirði fyrir skemmstu. Þar var reynt að fá íbúa til að hugsa út í þróun staðarins næstu 10-30 árin út frá þeim auðlindum og samfélags- gerð sem til staðar er. Búið er að heimsækja alla staðina tólf í þessum tilgangi og næsta skref er að taka saman niðurstöður og ræða við við- eigandi stjórnvöld. Ekki er bara rætt við sveitastjórnir því tilgangurinn er meðal annars að komast að því hvort byggðaáætlanir virki í raun og séu sniðnar að þörfum íbúanna. „Það eru allir með stefnur sem snúa að byggðamálum eða norður- slóðum, hvort sem það er Evrópu- sambandið, Norðurlandaráð eða stakar ríkisstjórnir. Við reynum að spyrja bæði þá sem móta stefnuna og þá sem eiga að framfylgja henni. Við berum svör ráðamanna saman við svör fólksins og ef fólkið vill eitt- hvað annað en stefnt hefur verið að þá þarf að skoða það.“ Atvinnumálin koma oftast fyrir Lisbeth segir fjölbreytnina í valinu á sveitarfélögunum koma vel fram í svörum fólksins. „Þau velta algjör- lega á samhenginu á hverjum stað og uppbyggingu stjórnkerfisins.“ Atvinnumál er það sem helst brennur á fólki en undir ólíkum formerkjum. „Sums staðar vantar fjölbreyttari störf, annars staðar einfaldlega atvinnu og enn annars staðar stuðning við frumkvöðla.“ Fjarðabyggð var þar engin undan- tekning en þátttakendur bentu á að stærstu vandamálin fælust í einhæfu atvinnulífi, jafnvel of mikilli áherslu á atvinnulífið í samfélaginu. Samgöngur og hversu dreift sveitarfélagið er var einnig nefnt og minnst á að fjölbreytni vantaði í afþreyingu. Að sama skapi voru stærstu sóknarfærin talin felast í stuðningi við frumkvöðla, aukinni samvinnu milli austfirskra sveitar- félaga og að koma því á framfæri sem þegar er til á svæðinu. Íbúarnir almennt ánægðir með samfélagið Lisbeth er varfærin þegar hún er spurð út í niðurstöður enda á ekki að kynna lokaskýrsluna fyrr en um mitt næsta ár. „Mér finnst fólkið sem velur sér að búa á norðurslóðum jafn fjölbreytt og annars staðar. Ég sé engan einn sam- nefnara meðal þess. Kannski sérðu meira um fólk sem nýtur útiveru en við hittum fólk sem kann vel við sig innandyra. Þetta ræðst fyrst og fremst af persónuleika hvers og eins. Snjór og vond veður eru algeng á veturna en annars tekst fólkið á við áskoranir hvers staðar á sinn hátt. Íbúarnir virðast almennt ánægðir með samfélagið sitt en það er erf- itt að alhæfa út frá þeim sem taka þátt í rannsókn okkar. Við náum til hópsins sem vill ræða samfélagið en ekki til þeirra sem er sama. Fólkið sem kemur til okkar sér samt alveg ákveðin vandamál en líka það sem þarf til að þróa samfélagið áfram.“ Þriðja og síðasta skrefið í rann- sókninni verður að bera það sem fram kemur hjá íbúum og ráðamönnum fram á alþjóðlegum vettvangi. „Við vinnum út frá ákveðinni aðferðafræði en við erum með vinnuhóp sem tekur lokaákvarðanir um vinnuna. Það sem við fáum frá hverjum stað fyrir sig ræður því við hverja við tölum næst. Samtalið á síðasta stiginu gæti bæði orðið milli ákveðinna ríkja eða á sam- ráðsvettvangi Norðurlandanna alla. Við höfum safnað miklu af þekkingu, staðreyndum og tölfræði, vonandi verður útkoman góðar spurningar til þeirra sem taka ákvarðanirnar.“ GG Byggðaþróun á norðurslóðum Ef fólkið vill aðra stefnu en mörkuð hefur verið þarf að taka tillit til þess

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.