Austurglugginn


Austurglugginn - 10.04.2015, Síða 12

Austurglugginn - 10.04.2015, Síða 12
12 Föstudagur 10. apríl AUSTUR · GLUGGINN Tvö mál Annað málið: Það vakti athygli mína á dögunum hversu reiðar margar jafnöldrur mínar urðu út af brjóstaafhjúpunum ungra kvenna á samfélagsmiðlum. Pistlar og athugasemdir gegnsýrð af heilagri vandlætingu streymdu um netið, sumar konurnar voru mjög reiðar. Ég velti fyrir mér allri þessari reiði og hvaðan hún sé sprottin. Við sem erum á fimmtugsaldri núna höfum alist upp við að hylja á okkur brjóstin og vera sómasamlegar – getur verið að reiðin komi til af því? Eða finnst okkur bara að ungu konurnar séu að ræna af okkur jafnréttisbyltingunni og gera það undir kolvitlausum for- merkjum (að okkar mati)? Konur á mínum aldri hafa margar verið framarlega í jafnréttisbaráttu árum saman – en leyfist mér að segja að kannski höfum við ekki staðið okkur neitt stórkostlega vel? Betur má í öllu falli ef duga skal, og ég tek ofan fyrir þessum frábæru ungu konum og vona að átakið eigi eftir að hafa ýmislegt gott í för með sér. Ég velti því fyrir mér í fram- haldinu að fara ber að ofan í sund á Egilsstöðum, en hafði mig ekki í það - alls konar hugsanir um for- eldra/nemendur héldu aftur af mér. Og ég var ósátt við sjálfa mig þegar ég fann það. Við erum bundin í viðj- ar einhverra undarlegra reglna sem enginn kannast við að hafa samið en stjórna alveg ótrúlega miklu. Hitt málið: Það gladdi mig þegar ég sá grein Jóneyjar Jónsdóttur í síðasta Aust- urglugga um stóra fermingarmálið - sem er þó ekki stærra en svo að það er enginn að tala um það. Á næsta ári verður ekki fermt á pásk- um á Fljótsdalshéraði, prestarnir hafa ákveðið að gleðskapur sé ekki við hæfi á þessum tíma og með- limir kirkjunnar eigi að vera heima á þessum tíma, ekki sækja veislur. Nokkur börn voru fermd á undan- þágu á páskadag í ár – næst verður það ekki í boði. Áralöng hefð er fyrir fermingum t.d. á skírdag og ferðalögum stórfjöl- skyldna milli landshluta í þessu fríi sem mörgum finnst einmitt upplagt að nota til að hittast og fagna líf- inu, trúnni og samverunni, án þess að þurfa að taka löng frí úr vinnu. Ég er raunar ekki í þessum söfnuði, en tel ekki eftir mér að hafa skoð- anir á þessu þrátt fyrir það. Og mín skoðun er sú að kirkjan, hver sem hún er, eigi að þjóna fólkinu, en ekki fólkið kirkjunni. Ingunn Snædal Lokaorð vikunnar Atli Þór Erlendsson frá Egilsstöð- um fór nýverið með sigur af hólmi í keppninni um Matreiðslumann Íslands og verður fulltrúi Íslands á Norðurlandamótinu í sumar. Hann gerðist matreiðslumaður fyrir hálf- gerða tilviljun. Fjórir matreiðslumenn kepptu til úrslita í Hörpu í síðasta mánuði en keppnin var haldin í tengslum við Matarmarkað Búrsins sem leggur áherslu á vörur beint frá bónda. Áður hafði Atli komist í gegnum forval og forkeppni þar sem áherslan var á þorskrétti. „Það var lítið mál að henda í einn rétt, taka mynd og senda inn. Eftir að maður var kominn áfram lagði maður sig allan í verkið,“ segir Atli. Í úrslitakeppninni þurftu keppendur að útbúa þrjá forrétti og aðalrétt úr hráefni frá markaðinum. Tíminn til undirbúnings var naumur, ekki var ljóstrað upp hvaða hráefni væru í boði fyrr en daginn áður. Í forréttina átti að nota nautasíðu, lífrænt ræktað græn- meti frá Vallanesi og humarsoð frá Hornafirði. Í aðalréttinn mátti velja um grís, lamb eða kjúkling. Íslendingar trúa á kartöflur „Það er ótrúlega erfitt að hafa ekki tækifæri til að fara heim og spá í rétt- ina heldur þurfa að ákveða á staðnum hvað maður ætli að gera úr hverju. En maður reyndi að spá í það fyrir- fram hvað maður myndi gera. Hvað ef það kæmi grís, fugl eða kind og hvaða grænmeti maður myndi nota með. Maður gat gengið út frá því að það yrðu kartöflur – Íslendingar trúa á kartöflur.“ Atli setti saman aðalrétt úr grísa- hnakka og kjúklingalæri og notaði meðal annars kartöflur úr Vallanesi með. Fleiri hráefni þaðan, svo sem bankabygg, rófur og repjuolía, nýtt- ust í forréttina. Norðurlandamótið í júní Keppnisfyrirkomulagið er haft jafn knappt og raun ber vitni til að undir- búa keppendur fyrir keppni í Norð- urlandamótinu í matreiðslu. Það verður haldið í Álaborg í Danmörku í byrjun júní og þangað fer Atli fyrir Íslands hönd. Minni undirbúningur á að jafna aðstöðumun keppenda. „Þeir vilja að keppendur séu óæfðir þannig þeir hugsi frekar sjálfstætt.“ Hann gerir ráð fyrir að maímán- uður fari í undirbúning fyrir keppn- ina í Danmörku. „Við eigum að elda þriggja rétta máltíð fyrir tólf manns og fáum fimm tíma til að undirbúa hana. Sex skammtar af aðalréttinum eiga að vera á fati, sem er frábrugðið því sem ég er vanur, en annað er á diskum.“ Vanur matreiðslukeppnum Atli Þór er ekki óvanur matreiðslu- keppnum, hann fór út í Bocuse d‘Or sem aðstoðarmaður árið 2011, var í íslenska ungkokkaliðinu sem fékk gullverðlaun í keppni á Írlandi árið 2010 og einnig verið aðstoðarmaður í keppninni um Matreiðslumann Íslands. Atli Þór, sem síðustu þrjú ár hefur verið aðstoðaryfirmatreiðslumaður á Hótel Sögu, hafði ekki valið sér mat- reiðslubrautina þegar hann flutti suður til Reykjavíkur að loknum mennta- skóla. „Ég byrjaði að vinna í þjón- ustuveri hjá símafyrirtæki en fannst það drepleiðinlegt. Ég hafði unnið í eldhúsi á hótelunum á Egilsstöðum á sumrin og hafði tengsl inn á Hótel Sögu þannig ég hringdi þangað og spurði hvort það vantaði ekki kokka- nema á samning. Þeir spurðu bara hvenær ég gæti byrjað.“ GG Austfirðingur er matreiðslumaður ársins Fékk nóg af símaverinu og snéri sér að matargerðinni Atli Þór einbeittur í keppninni. Mynd: Bændablaðið/SMH

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.