Austurglugginn - 07.08.2015, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 7. ágúst AUSTUR · GLUGGINN
Stóru austfirsku sveitarfélögin tvö,
Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað eru
afar skuldsett og á mörkunum að
rekstur þeirra standi undir skuldum.
Minnstu sveitarfélögin tvö, Fljóts-
dalshreppur og Borgarfjarðarhreppur,
eru hins vegar í hópi best stæðu sveit-
arfélaga landsins. Breiðdalshreppur
er hins vegar í erfiðustu stöðunni.
Þetta kemur fram í nýlegri úttekt Ís-
landsbanka á fjármálum sveitarfélaga
og byggir á ársreikningi síðasta árs.
Þar er sveitarfélögunum skipt í fjóra
flokka eftir stöðunni. Í fyrsta lagi
með lítilli skuldsetningu þar sem
rekstur stendur vel undir núverandi
skuldsetningu, í öðru lagi þar sem
skuldsetning er mikil en reksturinn
stendur undir henni, í þriðja lagi þar
sem reksturinn stendur ekki undir
skuldsetningu þótt hún sé lítil og
í fjórða lagi þar sem skuldsetning
er mikil og reksturinn stendur ekki
undir henni.
Rekstri sveitarfélaga er almennt
skipt upp í A og B-hluta. Til einföld-
unar má segja að í A-hlutanum séu
lögbundin verkefni sveitarfélaganna
fjármögnuð með skatttekjum. Í B-
hlutanum eru fyrirtæki eða stofnanir
í meirihluta í eigu eða ábyrgð sveitar-
félaganna, svo sem hafnarsjóðir eða
veitustofnanir, sem fjármögnuð eru
með sértekjum. Stundum er afgangur
úr B-hluta nýttur til að vinna upp halla
í A-hluta en þar eru þó hömlur á. Á
móti er A-hlutinn stundum bakhjarl
félaga í B-hluta ef þau eiga erfitt.
Breiðdalshreppur í verstu
málunum
Sé horft til samstæðureikninga
sveitarfélaganna, það er A og B-
hluta saman, er Breiðdalshreppur
eina sveitarfélagið sem fellur í síð-
astnefnda flokkinn. Skuldir sveitar-
félagsins eru 200% af veltu enda hafa
þar verið í gangi aðgerðir til að ná
tökum á rekstrinum en veltufé frá
rekstri er nánast ekkert. Fljótsdals-
hérað er við að detta í þennan flokk,
veltufé frá rekstri er reyndar um 15%
en skuldirnar um 250%. Hjá Fjarða-
byggð og Seyðisfjarðarkaupstað er
veltuféð um 20% en skuldirnar um
150%, þó heldur lægra á Seyðisfirði.
Vopnafjarðarhreppur, Djúpavogs-
hreppur, Borgarfjarðarhreppur og
Fljótsdalshreppur fara í fyrsta flokk
fyrir samstæðureikninga sína. Þar
skora litlu sveitarfélögin hvað best en
veltufé frá rekstri þeirra er um 20%.
Stóru sveitarfélögin
skuldug
Myndin breytist dálítið þegar aðeins
er horft til A-hlutans. Þar er Fjarða-
byggð á mörkunum að falla í þann
flokk þar sem reksturinn stendur
ekki undir skuldunum enda var í
vetur ráðist í vinnuna „Fjarðabyggð
til framtíðar“ þar sem einkum er
stefnt að því að takast á við rekstur
A-hlutans. Fljótsdalshérað er heldur
ekki langt frá línunni.
Breiðdalshreppur færist yfir í
flokk með sveitarfélögum með lágar
skuldir en rekstur sem stendur vart
undir þeim. Djúpavogshreppur fellur
einnig í þann flokk, hlutfall veltufjár
frá rekstri er þar um 5% en skuldirnar
rúm 100%. Sú athugasemd fylgir frá
skýrsluhöfundum að það séu einkum
sveitarfélög sem hafa stór orkufyr-
irtæki, hafnir og þess háttar inni á
starfsemi sinni sem færist á milli reita.
Seyðisfjarðarkaupstaður og Vopna-
fjarðarhreppur sigla nokkuð lygnan
sjó en Fljótsdalshreppur og Borgar-
fjarðarhreppur virðast eftir sem áður
í góðum málum. Hlutfall veltufjár frá
rekstri A-hluta þeirra er rúm 20%.
Í niðurstöðu skýrsluhöfunda hjá
greiningardeild Íslandsbanka segir
að almennt sé staðan sú að íslensk
sveitarfélög séu með sterk B-hluta
félög sem sveitarsjóðir njóti góðs af.
Rekstur þeirra sé nokkuð traustur
og þau standi flest undir núverandi
skuldsetningu.
GG
Fjármál sveitarfélaga
Á mörkunum að rekstur stóru sveitarfélag-
anna standi undir skuldum
Borgarfjarðarhreppur virðist standa vel miðað
við úttekt Íslandsbanka. Mynd: GG
Heilbrigðiseftirlit Austurlands gerði
athugasemdir við þrif á leikskólum
á Fljótsdalshéraði í eftirliti fyrir
skemmstu. Bæjarfulltrúar kalla eftir
að skerpt sé á ábyrgð þannig að ekki
verði gerðar athugasemdir við sömu
atriðin ár eftir ár.
Til skoðunar voru skólarnir að Há-
degishöfða í Fellabæ og Skógarland
og Tjarnarland á Egilsstöðum. Í
öllum eftirlitsskýrslunum eru gerð-
ar athugasemdir við þrif á húsnæði
skólanna. Um Hádegishöfða segir að
þrifum hafi verið ábótavant á öllum
deildum og rýmum fyrir utan eld-
húsið. Á Egilsstöðum segir að þrif
hafi verið „ófullnægjandi“ í skólunum
í heild og gerðar athugasemdir við
ryk, að ekki hafi verið farið nægilega
vel út í horn eða ákveðin svæði verið
kámug sem skapað geti smithættu.
Fleiri athugasemdir eru gerðar við
aðstöðuna, meðal annars um viðhald
á leiktækjum sem farin séu að láta
á sjá og flísar séu teknar að losna af
veggjum eða hreinlega dottnar af. Í
skýrslunni kemur fram að hluti at-
hugasemdanna sé ekki nýr af nálinni
heldur verið bent á þær í eldri eftir-
litsskýrslum.
Óljós ábyrgð
Í bókun bæjarstjórnar Fljótsdals-
héraðs um skýrslurnar segir að við-
hald verði að vera þannig að ekki séu
gerðar endurteknar athugasemdir af
hálfu HAUST og því verði fylgt eftir
að þeir sem eigi að sjá um þrif geri
það „á ásættanlegan hátt“. Skóla-
stjórnendum er þar falið að fylgja
málunum eftir og veita upplýsingar
til bæjaryfirvalda í haust.
Bæjarfulltrúinn Stefán Bogi Sveins-
son sagðist í umræðum um skýrsl-
urnar telja að skerpa þyrfti á ábyrgð
á viðhaldinu. Hún sé fljótandi á milli
eignasjóðs, framkvæmdasviðs og
skólastjórnendanna. Fyrir nokkrum
árum hafi verið bætt við starfsmanni
í þjónustumiðstöð til að efla viðhald
og það hafi gefið ágæta raun en nú
virðist aftur þurfa að spýta í lófana.
Hans mat er að best sé að fela yfir-
mönnum stofnananna eftirlitshlut-
verkið.
Leitt að fá sömu
athugasemdirnar
„Það er afar leitt ef við fáum sömu
athugasemdirnar inn en það er mín
tilfinning að þetta sé eitthvað sem
lendir á milli ábyrgðarsviða, þ.e. að
óljóst sé hver eigi að vera drifkrafturinn
í að kýla þessar endurbætur í gang.
Að mínu mati er það fyrst og fremst
á ábyrgð forstöðumanna stofnananna
að bregðast við þegar skýrslurnar koma.
Það er enginn betur í stakk búinn til
þess en sá sem fer með daglega yfir-
stjórn mála. Ég er ekki að segja að
menn hafi ekki verið að sinna sínu
hlutverki en þarna er einhver óvissa.
Henni verður að eyða og koma þeim
skilaboðum skýrt á framfæri hverjum
sé ætlað að sinna þessu hlutverki.“
GG
Fljótsdalshérað
Athugasemdir gerðar við þrif á leikskólum
HAUST taldi þrif á leikskólunum á Egilsstöðum „ófullnægjandi“. Mynd: GG