Austurglugginn - 07.08.2015, Page 3
Fréttir frá Fjarðaáli
Umsjón: Hilmar Sigurbjörnsson ritstjóri Álpappírsins,
fréttabréfs starfsmanna Alcoa Fjarðaáls.Álnotkun í byggingar-
iðnaði á Norðurlöndum
Byggingariðnaður notar um fimmtung af öllu áli sem framleitt er í
heiminum og þar hefur verið mikil og stöðug nýsköpun. Á Norður-
löndunum er rík hefð fyrir framsækinni byggingarlist og þróun bygg-
ingarefna úr áli.
Nýjar höfuðstöðvar Statoil í Fornebu við Ósló þykja afar vel heppnaðar
að innan sem utan. Fimm álklæddar einingar tengjast saman í opnu
rými. Áklæðningin er að sjálfsögðu frá álfyrirtækinu Hydro sem hefur
verið hluti af Statoil frá árinu 2007.
Bláa plánetan á eyjunni Amager við Kaupmannahöfn er stærsta sædýra-
safn í Norður-Evrópu. Danska arkitektastofan 3XN hannaði safnið sem
ofan frá séð lítur út eins og risavaxin hringiða vatns. Fyrir klæðninguna
smíðaði Novelis í Göttingen í Þýskalandi meira en 40.000 álplötur sem
eru um hálfur fermetri að stærð og 1,2 millimetrar á þykkt. Báðar hliðar
á plötunum voru húðaðar með 3 míkrómetra (0.003 millimetra) þykku
glæru, veðurþolnu lakki.
Ísjakinn (Isbjerget) í Árósum í Danmörku er íbúðahúsaþyrping með
um 200 íbúðum. Ísjakinn er klæddur rúmlega 10.000 fermetrum af ál-
plötum þar sem EcoClean™ tækni Alcoa er notuð. Klæðningin brýtur
niður óhreinindi og rykagnir og hreinsar sig þannig sjálf með regni og
sól. 10.000 fermetrar af EcoClean™ klæðningu brjóta niður álíka mikið
af sóti og 800 meðalstór tré.
Fjallabúðirnar (The Mountain Dwellings) í Kaupmannahöfn er önnur
margverðlaunuð bygging þar sem Alcoa lagði til lausnir. Á Fjallabúð-
unum eru samtals 15.000 fermetrar af 4 millimetra þykkum, samsettum
Reynobond® álplötum með DURAGLOSS® 5000 húðun í tíu mis-
munandi litum.
Í Fjallabúðunum eru 80 þakíbúðir með sólarsvölum á 11 hæðum. Bíla-
stæði eru undir íbúðunum.
Sama álklæðning er inni í opna rýminu sem er meðal annars nýtt undir
matsal starfsmanna.
Snúni Torso íbúðaturninn í Malmö í Svíþjóð er hæsta bygging á Norð-
urlöndum, 54 hæðir og 190 metrar á hæð. Turninn er klæddur 2.800
sveigðum álplötum og 2,250 beinum álgluggum.