Austurglugginn - 07.08.2015, Qupperneq 4
4 Föstudagur 7. ágúst AUSTUR · GLUGGINN
Leiðari
„Líður þér aldrei eins og Bill Murray
í myndinni Groundhog day¹,“ spurði
vinkona mín þegar við hittust í
brókarkaffi² í vikunni. „Svona eins
og þú sért alltaf á sama stað þó svo
þú sért stanslaust að brasa eitthvað
heima hjá þér.“
Jú, ég samsinnti þessu og vin-
konan hélt áfram að blása.
„Eins og í gærkvöldi. Ég settist
ekki niður hérna. Bara gekk um og
tók til drasl eftir alla, þvoði fimm
þvottavélar, setti í uppþvottavél,
moppaði gólfið og gekk frá heimilinu
eins og ég vildi hafa það næsta dag.
En hvað svo? Bingó. Ég var ekki
fyrr komin á fætur í morgun þegar
allt var orðið nákvæmlega eins og
það var seinnipartinn í gær. Alveg
eins og hjá Önnu heitinni á Hest-
eyri, að músunum og gæsunum í
eldhússkápunum undanskildum.
Dót krakkanna var út um allt, ég
náði að skrapa saman í fulla upp-
þvottavél og þegar ég kom inn í
þvottahús hafði af einhverjum óút-
skýranlegum ástæðum vaxið risa-
hrúga af óhreinum þvotti á gólfinu
sem var þó galtómt um miðnætti.
Hvernig má þetta vera?
Og altarið hans afa³. Það er nú
verst af öllu með það. Það sést
aldrei í það fyrir drasli, sama hvað
ég reyni. Eins og afi minn var nú
annálað snyrtimenni og þoldi ekki
drasl, þá virðist hann nú soga að sér
bónusbæklinga, snuð, staka sokka
og tóm glös – bara eins og ryk-
suga. Ég meira að segja reyndi að
færa það til um daginn, yfir á aðra
kommóðu, en það var eins og við
manninn mælt, þar fylltist allt svo
að rétt glitti í skallann á afa.“
Ég átti ekkert svar við þessu, enda
sama lögmál í gangi heima hjá mér,
alltaf 1. febrúar. Nema þá kannski
bara að láta sig þetta engu varða.
Panta sér bara fullorðinslitabók og
stóran pakka af trélitum sem er jú
varningur sem nú tröllríður öllu. Ku
vera einstaklega slakandi og renna
burtu öllu stressi og leiðindum.
Ég veit þetta er einstaklega óþarf-
ur pistill í annars afar málefnalegt
blað. Langaði bara að deila þessu
með ykkur. Góða helgi.
¹ Groundhog day: Kvikmynd frá árinu
1993 um mann sem upplifir það að
vakna alltaf þann 1. febrúar dag eftir
dag, sem vissulega er mjög þreytandi.
² Brókarkaffi: Við vinkonurnar köllum
það „brókarkaffi“ þegar við hittumst á
morgnana með börnin okkar þar sem
allir eru iðulega nýstignir upp úr rúm-
inu og aðeins rétt rúmlega á brókinni.
³ Altarið hans afa: Vinkona mín missti
afa sinn fyrir nokkrum árum, en hann
var henni afar kær. Afi á nú sinn heið-
ursstað upp á ákveðinni kommóðu þar
sem hann brosir framan í heiminn á
fallegri ljósmynd. Kommóðuna köllum
við aldrei annað í daglegu tali en „alt-
arið hans afa“.
KBS
Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Sverrir Mar Albertsson • Fréttir: 477 1750 / frett@austurglugginn.is
Auglýsingar: 696 6110 / auglysing@austurglugginn.is • Áskriftarsími: 477 1571 • Umbrot og prentun: Héraðsprent.
Efnisvinnsla og auglýsingasala: Austurfrétt ehf. • Arnar Þór Ingólfsson blaðamaður • Gunnar Gunnarsson blaðamaður
• Kristborg Bóel Steindórsdóttir blaðamaður • Stefán Bogi Sveinsson auglýsingastjóri
Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf., Búðareyri 7, 730 Reyðarfjörður
Hann er orðinn heimsþekktur litli
fýlustrákurinn sem stendur fyrir utan
Söxu Guesthouse á Stöðvarfirði og
spurning hvort hann sé ástæða góðs
gengis hótelsins.
Gamla kaupfélagshúsið á Stöðvarfirði
hefur verið rekið sem hótel undan-
farin fjögur sumur en húsnæðið hafði
staðið autt um árabil þegar verslun-
arrekstur þar lagðist af.
Það eru hjónin Helena Hannes-
dóttir og Ævar Ármannsson sem eiga
og reka Söxu. Um er að ræða sextán
herbergja hótel og veitingastað.
„Það hefur orðið rosaleg aukn-
ing í gistingu frá því í fyrrasumar,
líklega allt að 100%. Bæði er um að
ræða hópa og einstaklinga og eru er-
lendir ferðamenn þar í langmestum
meirihluta. Veðrið hefur engin áhrif
á okkur, enda gestirnir flestir búnir
að skipuleggja fríið sitt með mjög
löngum fyrirvara.“
Auk þess sem gistingin er opin yfir
vetrartímann halda eigendur annað
slagið pubquiz og sýna enska boltann.
Athygli vekur að fyrir utan Söxu
grúfir sig niður lítill strákur, sem
virðist vera í afar súru skapi. Þarna
er á ferðinni dúkkustrákur sem fljótt
á litið líkist skuggalega mikið raun-
verulegu barni. „Litli fýlustrákurinn
er búinn að vera með okkur lengi og
hann er orðinn frægur um allan heim
en hann er mjög vinsæll hjá gestum
og það eru myndir af honum um
allt,“ segir Helena.
KBS
Saxa Guesthouse
Heimsfrægur
fýlustrákur á
Stöðvarfirði
Litli fýlustrákurinn við Söxu. Myndir: KBS