Austurglugginn


Austurglugginn - 07.08.2015, Page 7

Austurglugginn - 07.08.2015, Page 7
 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 7. ágúst Brammer er leiðandi dreifingaraðili í Evrópu á vörum fyrir iðnaðarviðhald, viðgerðir, enduruppgerðir og þjónustu. Meðal helstu vara eru legur, vélrænar skiptingar, loftþrýstikerfi, vökvaþrýstikerfi og verkfæri ásamt heilsu- og öryggisbúnaðar. En eitt af helstu einkennum Brammer er að skoða birgðakerfi í heild og finna út sparnaðarleiðir fyrir fyrirtæki. Brammer kom til landsins árið 2005 vegna uppbyggingar Fjarðaáls á Reyðarfirði. Árið 2010 var ákveðið að fara í frekari fjárfestingar og byggja upp íslenskt fyrirtæki. Reynslan af samvinnu Alcoa og Brammer hérlendis hefur verið nýtt í verkefnum í flestum verksmiðjum Alcoa í Evrópu. Starfssvið • Ábyrgð á daglegum rekstri starfsstöðvarinnar, þ.m.t. starfsmannamálum • Mikil samskipti og þjónusta við viðskiptavini • Mikil samskipti við aðrar deildir fyrirtækisins • Þróun og endurbætur á ferlum • Samskipti við birgja • Mikil greiningarvinna í excel • Áætlanagerð og stefnumótun í samstarfi við næsta yfirmann Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Haldbær stjórnunarreynsla • Reynsla af mannaforráðum • Reynsla og skilningur á starfssemi vöruhúsa • Mikið frumkvæði og geta til að finna lausnir • Mikil þjónustulund og góð samskiptahæfni • Mjög góð excelkunnátta • Góð íslensku- og enskukunnátta • Reynsla af störfum í alþjóðlegu umhverfi æskileg Búseta á Austurlandi er skilyrði. Upplýsingar veitir Marías Ben. Kristjánsson, malli@starfsfolk.is. Umsóknir óskast fylltar út á www.starfsfolk.is. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið Rekstrarstjóri Brammer á Austurlandi Starfshlutfall Fullt starf. Dagsetning ráðningar Sem fyrst eftir samkomulagi Umsóknarfrestur er til og með 9. ágúst 2015 www.brammer.is • www.starfsfolk.is er ný austfirsk ráðningarskrifstofa og starfsmannamiðlun sem hefur tekið til starfa. Við erum á Facebook. af þeim. Hluti sýningarinnar er því tileinkaður sögu veiðanna. Nýting hreindýraafurða á Austurlandi hefur tekið á sig ýmsar myndir í gegnum tíðina, en það sem í dag einkennir þá nýtingu umfram fyrri tíð er fjöl- breytt matseld hreindýrakjöts, smíði listmuna og skarts úr hreindýrshornum og hönnun tískufatnaðar úr skinn- unum, auk þess sem handverksfólk nýtir skinn, horn og klaufir dýranna með fjölbreyttum hætti. „Það er því greinilegt að hreindýrið er þáttur í menningarlífi Austur- lands og margt sem minnir á tilvist þess þegar farið er um fjórðunginn; hreindýraleiðsögumennirnir, hrein- dýrarannsóknirnar, stjórnsýslan í kringum hreindýraveiðarnar, hand- verkið, sögurnar, myndefnið og síð- ast en ekki síst hreindýrin sjálf, en nú er orðið æ algengara að sjá þau í byggð en þangað hafa þau sótt síðustu áratugi eftir að þeim tók að fjölga og þau vöndust umferð og manna- ferðum miðað við það sem áður var þegar þau voru ljónstygg og komu ekki niður í byggð nema haglaust væri orðið og þeim allar bjargir bannaðar á öræfum og heiðum. En þótt hreindýr séu nú algengari sjón en áður var þá þykir það enn vera í frásögur færandi þegar þau sjást, og birtast til dæmis oft myndir af þeim á Facebook þegar þau koma hingað í Egilsstaði og eru á beit á túni Egils- staðabýlisins.“ Leiðangur sem markaði tímamót Á hreindýrasýningunni rúlla einnig tvær gamlar heimildamyndir. Önnur þeirra ber nafnið „Á hreindýraslóð- um“ gerð af Eðvarði Sigurgeirssyni ljósmyndara og kvikmyndagerðar- manni árin 1939, 1943 og 1944 en sýningin er einmitt tileinkuð Eðvarði og Helga Valtýssyni, rithöfundi og kennara á Akureyri. „Helgi hafði mikinn áhuga á velferð hreindýra á Íslandi en ekki síður á því að hér væri stofnað til hreindýrabú- skapar líkt og tíðkast hjá Sömum og taldi hann Íslendinga geta margt af þeim lært. Hann skrifaði fjölda greina um þau mál en einnig um mikilvægi þess að friða hreindýrin og stýra veiðum á þeim til að byggja upp hjörðina og viðhalda henni í æski- legri stofnstærð. Hann fékk styrk frá stjórnvöldum til að fara í leiðangra í Kringilsárrana til að athuga með hreindýrin, fjölda þeirra og ástand. Eðvarð Sigurgeirsson fór með til að taka myndir. Niðurstaðan verður sú að Helgi telur að aðeins séu til 100 dýr og brýnir fyrir stjórnvöldum í skýrslu til alþingis eftir fyrsta leið- angurinn 1939 að friða þurfi dýrin ef þau eigi ekki að deyja út. Alþingi brást við og þessi ferð þeirra félaga í Kringilsárrana markar þau tímamót að lög tóku gildi árið 1940 um veiðar og friðun hreindýra sem núverandi fyrirkomulag um veiðar og friðun á rætur að rekja til. Mér fannst því rétt og skylt að þessi hreindýrasýning væri tileinkuð þeim Helga og Eðvarði,“ segir Unnur Birna. „Mynd Eðvarðs er merkileg í sögu íslenskrar kvikmyndasögu sem ein- stæð heimild um ferðamáta um öræfin fyrrum og horfna menn, en þar koma fyrir þekktir fjallagarpar á Austur- landi á þessum tíma og svo auðvitað konungar og drottningar hálendisins, þ.e. hreindýrin sjálf, en eitt af því sem Helgi og Eðvarð gerðu með ferðum sínum í Kringilsárrana var að vekja athygli Íslendinga á fegurð og lífs- baráttu þessara villtu fjallabúa sem fáir leiddu hugann að á þessum tíma.“ Heppni að finna mynd Toblers Annað á sýningunni sem kallast má djásn í sögu kvikmyndunar á Íslandi og merkileg heimild um hreindýr á Íslandi er örstuttur bútur úr Íslands- mynd Svisslendingsins Walters Tobler sem ferðaðist um Ísland í því skyni að gera um það kvikmynd á sjötta áratugnum. Hann myndaði m.a. sum- arið 1956 hjörð hreinkúa með kálfa sína á Vesturöræfum. Kvikmyndin á filmu fannst fyrir tilviljun við vinnslu sýningarinnar. „Þegar ráðist er í svona sýningargerðarvinnu koma stundum upp úr kafinu hlutir sem enginn hef- ur leitt hugann að því að halda sér- staklega á lofti. Ég heyrði af þessari mynd Toblers og hóf þegar leit að henni og var svo heppin að hún kom í leitirnar á Kvikmyndasafni Íslands,“ segir Unnur Birna og segir áfram að vel hafi gengið að safna myndefni og munum fyrir sýninguna. „Allir sem ég leitaði til tóku er- indinu vel og aðstoðuðu ef þess var kostur og ég náði reyndar ekki að leita fanga eins víða og ég hefði kosið tímans vegna. Minjasafnið á í sínum fórum dágott safn eldri muna unn- um að hluta eða alveg úr hreindýrs- hornum en ýmsa hluti aðra fékk ég líka lánaða á sýninguna, bæði gerða af mannahöndum en einnig náttúru- gripi, þ.e. horn og bein hreindýra“. GG Saga hreindýra á Íslandi snýst mikið um veiðar, iðkun þeirra og sögur af þeim. Mynd: GG Hönnun úr hreindýraskinni frá Arfleifð á Djúpavogi. Mynd: GG

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.