Austurglugginn


Austurglugginn - 07.08.2015, Page 9

Austurglugginn - 07.08.2015, Page 9
 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 7. ágúst Heiti skips Landanir Afli (kg) Vopnafjörður Venus NS - 150 2 1.147.731 Faxi RE - 9 1 495.311 Lundey NS - 14 1 490.499 Borgarfjörður Njáll SU - 8 5 6.752 Högni NS - 10 2 5.308 Axel NS - 15 4 3.203 Seyðisfjörður Gullver NS - 12 1 46.976 Díana NS - 131 4 2.833 Fönix NS - 33 4 2.822 Mjóifjörður Haförn I SU - 42 2 1.567 Norðfjörður Bjarni Ólafsson AK - 70 2 1.250.723 Beitir NK - 123 2 1.175.392 Börkur NK - 122 1 715.754 Eskifjörður Aðalsteinn Jónsson SU - 11 1 1.202.710 Dögg SU - 229 4 2.512 Sólfaxi SU - 178 4 2.405 Reyðarfjörður Edda SU - 91 1 734 Fáskrúðsfjörður Litli Tindur SU - 508 3 1.114 Stöðvarfjörður Auður Vésteins SU - 88 5 42.003 Gísli Súrsson GK - 8 5 36.971 Kristján HF - 100 4 25.025 Breiðdalsvík Von GK - 113 4 28.360 Oddur Guðjónsson SU - 100 4 3.138 Kría SU - 110 4 3.104 Djúpivogur Vigur SF - 80 3 19.736 Öðlingur SU - 19 2 6.618 Kristbjörg SH - 112 1 4.637 Sjávarsíðan Strandveiðar hafa gengið vel úti fyrir Austfjörðum í júlí en alls bár- ust 1.154 tonn á land þannig, nánast allt þorskur. Bátarnir sem fyrr helst á sveimi á Djúpavogi, Stöðvarfirði, Breiðdalsvík og Norðfirði. Á síðast- nefnda staðnum eru makrílskipin þó fyrirferðamest. Sú vertíð er í fullum gangi og kom Aðalsteinn Jónsson með stærsta farminn til Eskifjarðar, ríflega 1.200 tonn. Meðfylgjandi er yfirlit yfir þrjá aflahæstu bátana í hverri höfn dagana 26. júlí -1. ágúst. Tölur eru fengnar frá Fiskistofu. GG Landanir í austfirskum höfnum Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Akureyri um verslunarmannahelgina og var það fjölmennasta unglinga- landsmót frá upphafi en um 2200 keppendur tóku þátt í mótinu. 106 unglingar frá UÍA tóku þátt í hinum ýmsu keppnisgreinum, en á unglinga- landsmótum er ekki einungis keppt í hefðbundnum greinum eins og sundi og frjálsum íþróttum, heldur einnig í stafsetningu, tölvuleikjum og parkour, svo eitthvað sé nefnt. „Við vorum með 106 keppendur svo maður hafði ekkert alltof góða yfirsýn yfir keppnina,“ segir Hildur Bergsdóttir framkvæmdastýra UÍA í samtali við Austurgluggann. „En við áttum stóran og góðan hóp og það var bara gaman. Keppnisgreinarnar voru ofboðslega fjölbreyttar og við eignuðumst til að mynda meistara í stafsetningu og fleiri greinum. Það var bara gleði og gaman og gott veður meira að segja, þvert á allar spár,“ segir Hildur, sem segir einn- ig keppendurna frá UÍA hafa verið héraðssambandinu og Austurlandi til mikils sóma. Það var gríðarlega margt um mann- inn á Akureyri um helgina, en auk fjölmennasta unglingalandsmóts sögunnar fór þar fram fjölskylduhá- tíðin Ein með öllu. Margir undruðust þá ákvörðun að halda unglinga- landsmót á Akureyri um verslunar- mannahelgina en Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, segir að engir árekstrar hafi komið upp á milli unglingalandsmótsins og fjölskylduhátíðarinnar. „Ég fékk bæði tölvupósta og sím- hringingar þar sem fólk var að lýsa furðu sinni á því hvað ungmenna- félagshreyfingin væri að meina með því að vera með mótið á Akureyri um verslunarmannahelgi. Ég svar- aði þannig til að þetta væri ögrandi og spennandi verkefni og það væri gaman að sjá hvernig til tækist. Það er svo sannarlega að ganga upp því hvergi komu upp árekstrar. Þetta fór bara vel saman og gekk allt rosalega vel og við erum öll í skýjunum með þetta,“ segir Helga í viðtali á heima- síðu UMFÍ. Góður árangur austfirskra keppenda Keppendur frá UÍA náðu góðum árangri á mótinu og voru víða í verð- launasætum. Alls hrepptu keppendur frá UÍA 9 gullverðlaun og auk þess fjöldann allan af silfur- og brons- verðlaunum. Þátttakan og félags- skapurinn eru samt aðalverðlaunin fyrir meirihluta keppenda og það er ekki að ástæðulausu sem Unglinga- landsmót UMFÍ eru búin að marka sér sess sem ein stærsta fjölskyldu- samkoman um hverja verslunar- mannahelgi. Unglingalandsmótsmeistarar UÍA eru eftirfarandi: Þór Albertsson – 100m bringusund, 50m bringusund og 100m fjórsund, 11-12 ára. Elísabet Eir Hjálmarsdóttir – park- our, 11-14 ára. Austur – fimleikar, 11-14 ára stúlkur. Fanney Ösp Guðjónsdóttir og Marta Lovísa Kjartansdóttir (1.-2. sæti) – glíma, 13-14 ára. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir – borðtennis, 14-15 ára. Mikael Máni Freysson – stafsetn- ing, 15-18 ára. Atli Pálmar Snorrason – 800m hlaup, 16-17 ára. AÞI 106 keppendur frá UÍA á Unglingalandsmóti UMFÍ Gleði, gaman og gott veður Lið UÍA gengur inn við setningu Unglingalandsmótsins. Mynd: GG

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.