Austurglugginn


Austurglugginn - 07.08.2015, Blaðsíða 12

Austurglugginn - 07.08.2015, Blaðsíða 12
Um forgengileika allra hluta Í síðustu viku fór ég í sex daga göngu um svokallaðar Víknaslóðir. Gengið var frá Borgarfirði suður í Loðmundarfjörð, með viðkomu í Beiðuvík og Húsavík. Náttúrufeg- urðin á þessum slóðum er ótrúleg og það gladdi mig mjög að fá loks- ins tækifæri til að kynnast svæðinu. Á göngunni hugsaði ég margt, enda nægur tími og friður til að hugsa þegar maður er á göngu í átta tíma á dag. Ég hugsaði til dæmis um daglegt streð fólksins sem byggði þessar slóðir. Margar kynslóðir lögðu á sig gífurlega vinnu við að rækta land og bú- stofn og koma sér upp húsakosti. Svo lögðust þessir staðir smátt og smátt í eyði þegar lífsmunstur Ís- lendinga breyttist á 20. öldinni. Allt sem fólk hafði baksað við varð að engu. Húsin grotna niður og nátt- úran tekur aftur völdin. Í kjölfarið fylgdu hugsanir um þróun byggðar almennt og svo það hvernig við lifum lífinu. Við streðum flest við að byggja eitthvað varanlegt. Eitthvað sem stenst tímans tönn. Eitthvað til að eftirláta börnunum okkar og barnabörnum þegar við hrökkvum upp af. Í þetta streð okkar fer gífurleg orka. Við sláum lífinu á frest fyrir vinnuna. Við viljum eignast þak yfir höfuðið, góðan bíl og öryggi. Það gerist bara með því að vinna hörðum höndum. En hversu oft stöldrum við við og hugsum málið? Til hvers er allt þetta streð þegar öllu er á botninn hvolft? Við tökum ekkert af þessu með okkur í gröfina. Allt sem við byggjum upp mun tíminn mylja niður. Heimsókn á stað eins og Loð- mundarfjörð minnir mann óþægi- lega á þessa staðreynd. Við lifum lífinu alltaf eins og við höfum nógan tíma, eins og hægt sé að byggja upp eignir, öryggi og stöðugleika, eitt- hvað sem endist. Sannleikurinn er sá að allur tíminn sem fer í streðið fæst aldrei til baka. Það er ekki hægt að nota hann í eitthvað fallegt og skemmtilegt. Og ég óttast að í ell- inni muni maður ekki sjá eftir því að hafa ekki verið meira í vinnunni, að maður hafi aldrei eignast rétta bílinn eða náð að borga niður hel- vítis húsnæðislánið. Maður mun sjá eftir því að hafa ekki ferðast meira, upplifað meiri fegurð, hlegið meira, elskað meira, eytt meiri tíma með fólkinu sínu. Með þessu er ég auðvitað ekki að segja að við eigum að hætta að vinna og liggja bara í leti. En hættum að taka allt svona fjandi alvarlega! Hættum að láta eins og allt þurfi að gerast akkúrat strax. Hættum að vinna meira en 40 tíma á viku. Ef hlutirnir klárast ekki á 40 tímum, þá þarf bara að ráða fleira fólk, eða sætta sig við að sumt þarf bara að bíða. Notum svo tímann í að gera góða hluti: Vera úti í náttúrunni, eyða tíma með þeim sem við elskum, elda og borða góðan mat, fara á tónleika, myndlistarsýningar og íþróttakappleiki, sitja á kaffihúsi með vinum okkar og hlæja. Ég held raunar að ef samfélagið okkar væri meira svoleiðis, þá ættum við kannski auðveldara með að halda í unga fólkið okkar og lokka til okkar nýja íbúa. Ég held að það minnki líkurnar á því að í framtíðinni fari fólk úr borgunum í gönguferðir á „Fjarðaslóðir“ til að skoða yfirgefin þorp og verksmiðjur. Sigurður Ólafsson Lokaorð vikunnar Austfirðingarnir Tinna Rut Guð- mundsdóttir og Hallur Ásgeirsson gengu í hjónaband í lok júlí. Sjón- varpsstöðin CNN myndaði brúð- kaupið og tók viðtal við hjónin fyrir þáttinn Wonderlist 2015 sem sýndur verður ytra í febrúar. Tinna Rut og Hallur giftu sig í Garðakirkju laugardaginn 26. júlí síðastliðinn. Rúmri viku fyrir stóra daginn barst Tinnu Rut beiðni gegnum vinkonu sína að taka þátt í klukkustundarlangri heimildamynd í sjónvarpsseríunni Wonderlist 2015 sem er ferða- og samfélagsgreining- arþáttur sem tekinn er upp út um allan heim, þar sem „samsettar fjöl- skyldur“ eru í brennidepli. Tinna Rut og Hallur samþykktu að vera með en saman eiga þau tvö börn og Hallur önnur tvö úr fyrri samböndum. Sex manna tökulið fylgdi þeim eftir yfir daginn og tóku nýgiftu hjónin í viðtal daginn eftir. Verður ómetanlegt að eiga upptökuna „Þetta gekk allt saman mjög vel,“ segir Tinna. „Ég hef oft hugsað um stóra daginn, hvernig það yrði þegar ég gifti mig. Ég hlakkaði mest til þess að heyra brúðarmarsinn og einnig að ganga inn kirkjugólfið með pabba. Ég ætlaði mér aldeilis að sjá svipinn á Halli þegar hurðin opnaðist, en þar sem dóttir mín, sem átti að vera brúðarmær, var ekki tilbúin í þetta og bara grét og vildi koma til mín, stressaðist ég svolítið upp og náði því ekki alveg. Alla athöfnina horfði ég aðallega á Hall, trúði varla að þetta væri að gerast – hann var að verða maðurinn minn og það var ansi góð tilfinning,“ segir Tinna. Tinna segist ekki hafa hugsað mikið um allar myndavélarnar sem þó fylgdu henni allan daginn. „Ég hafði um svo margt annað að hugsa í kirkjunni. Það var aðeins erfiðara meðan ég var að taka mig til en ég var bara ég sjálf. Þeir mynduðu meira að segja þegar ég var að gefa Emmu brjóst, í brúðarkjólnum. Ég er ekki mikið fyrir athygli en mér þótti þetta spennandi og skemmti- legt. Það verður gaman að sjá þetta og okkur á eftir að þykja ómetanlegt að fá að eiga upptökurnar og góðar myndir frá þeim. Hrifnir af öllu saman Í viðtalinu að brúðkaupi loknu voru auk Tinnu Rutar og Halls, börnin þeirra auk barna Halls sem og önnur barnsmóðir hans. Þau segja að það hafi komið þáttastjórnendum í opna skjöldu hversu samskiptin eru góð. „Þeir voru mjög hrifnir af öllu saman, þótti umhverfið dásamlegt og umgjörðin á brúðkaupinu einn- ig. Það var mikil gleði í athöfninni, ég og dóttir mín sungum til Tinnu, pabbi hennar söng útgöngulagið og strákarnir sem ég þjálfa í Fjölni stóðu heiðursvörð. Þetta var allt einstak- lega vel heppnað. Þeim þótti einnig mjög athyglisvert að önnur barns- móðir mín sé góð vinkona okkar og spurðu mikið út í það sem og fjöl- skyldutengslin almennt,“ segir Hallur. KBS Austfirskt brúðkaup á CNN Ljósmyndari CNN fangar gleðiríkt augnablik.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.