Íslenzk fyndni - 01.06.1933, Page 99
97
kel föður að baminu. En Áskell, sem var
harðsnúinn maður og kjarkmikill, neitar
harðlega framburði þeirra fyrir rétti hjá
sýslumanni. Sýslumaður símar þá til skrif-
stofustjóra dómsmálaráðuneytisins og spyr
hann, hvað gera skuli í málinu.
„Eins og þú veizt“, segir skrifstofustjóri,
„liggur hegning við afbroti þessu, þú verð-
ur að taka manninn fastan“.
„Taka hann fastan“, segir sýslumaður,
„nei, það geri ég ekki. Þetta er illmenni“.
147.
Skólapiltur var uppi í stærðfræði, og
vissi ekki neitt. Gramdist þá kennaranum
og sagði:
„Það er til lítils fyrir yður að lesa stærð-
fræði. Þér eruð eins og fótalaus maður. Eða
haldið þér kannske, að hann mundi stökkva
langt?“
„Hann gæti þó alltaf stokkið upp á nef
sér“, svaraði pilturinn.