Austurglugginn - 08.03.2007, Page 1
Verð í lausasölu kr. 350 Áskriftarverð kr. 1.140 á mánuði (kr. 285 eintakið) ISSN 1670-3561
Beinagrindur frá miðöldum
undir kjallaragólfinu bls. 4
Sveitarblöðin voru blogg
forfeðranna bls. 6
ístölt Austurland
2007 bls. 8
SECURITAS
Landflutningar - Samskip
Kaupvangi 25
700 Egilsstaðir
Sími 458 8800
Fax 458 8808
Opnunartími:
Mánudaga til föstudaga
frá kl. 08:00-16:00
Landflutningar
JJ sámskip
Seyðfírðingar fagna góðum árangri keppenda sins i Skólahreysti sem fram fór á Egiisstöðum í seinustu viku. Seyðfirðingar
voru áberandi á áhorfendapöllunum, klæddir írauðgula boli merkta „sfk.is"svo ekki varð um villst hverjir væru þar á ferðinni.
Nánari umfjöllun um Skólahreysti og aðrar iþróttir er á síðum 14 og 15. Mynd: GG
Það kostar peninga að vera gáfaður
Það kostar rúmlega eina milljón
króna í heildina, fyrir nemendur
Menntaskólans á Egilsstöðum að
fara til Reykjavíkur og keppa í spurn-
ingakeppni framhalsskólanna, Gettu
betur, í sjónvarpinu þann 16. mars
næstkomandi. Þá er gert ráð fyrir að
fara suður með í kringum 150 manna
stuðningslið keppenda skólans, þegar
keppt verður við Menntaskólann við
Hamrahlíð í átta liða úrslitum.
Að sögn Bjargar Eyþórsdóttur
formanns málfundafélags Mennta-
skólans á Egilsstöðum kom aldrei
til greina að þetta yrði hér eystra.
„Nei í rauninni ekki, þó svo að við
höfum að sjálfsögðu verið að reyna
að gera okkur vonir um það. Þannig
stóð málið að MA-ingar, sem einnig
eru í þessum átta liða úrslitum núna,
voru í úrslitum í fyrra og gerðu sér
þá ferð suður til að keppa við Versló,
sem áttu heimaleik þá. Þessi tvö lið
drógust síðan aftur saman núna og
keppnin því haldin á Akureyri í þetta
skiptið. Ætli RÚV séu nokkuð hrifnir
af því að vera að flækjast mörgum
sinnum út á land. Við fengum líka
heimaleik síðast þegar við komumst í
sjónvarpið, það er fyrir tveimur árum
síðan þannig við neyðumst til að
halda suður á bóginn í þetta skiptið”.
Menntskælingar munu ferðast með
rútum í þessari ferð „Tanni Travel
ætlar að skutla okkur suður” segir
Björg.
Við höfum að sjálfsögðu rekið okkur
á og upp hafa komið harkaleg skoð-
anaskipti og umræður innan raða
framhaldsskólanema um þennan
aðstöðumun sem kemur í ljós þegar
lið kemst í úrslit í sjónvarpi og situr
þá um leið uppi með svimandi háan
kostnað samfara því.
„RÚV styrkir öll lið í úrslitum sem
þurfa að ferðast um 230 þúsund
krónur, sem er hugsað sem ferða-
kostnaður fyrir stuðningslið. Við
ákváðum að hringja um daginn og
spyrjast fyrir um hvemig þessi tala er
reiknuð út og þá kom í ljós að þetta
er bara samkvæmt undirrituðum
samning milli RÚV og ráðs fram-
haldsskólanema, sem samanstendur
af fjórum nemendum úr fjómm
framhaldsskólum landsins. Engu er
bætt við eða dregið frá, sama hvaðan
liðið er að koma eða hvert það er að
fara. Landsbyggðaskólar njóta engra
forréttinda í þessu máli, frekar en
öðrum.
Við munum leita til fyrirtækja, sækja
um styrki og gerum okkur vonir um
að fá jákvæð viðbrögð. Við nýtum
styrkinn frá RÚV til að greiða ferðina
niður en nemendur koma til með að
þurfa að borga eitthvað sjálfir, von-
andi sem allra minnst” segir Björg
Eyþórsdóttir formaður málfundafé-
lags Menntaskólans á Egilsstöðum.
SigAð
Opið á fimmtudögum
frá kl 9:00 til 22:30
www.austurlandid.is/nesbær
ISjáuimt í Bónus
á E^ilsstöðum
i
5
r
’Sfutí býöuJi omm
Sama verð um allt land!
Afgreiðslutími í Bónus ó Egilsstöðum
Mánudag til fimmtudags
12.00 til 18.30
rmttJPil
Föstudag 10.00 til 19.30
Laugardag 10.00 til 18.00
Sunnudag 12.00 til 18.00